Iðja - 15.03.1938, Síða 4
4
I Ð J A
1. árg.
FRÁ DEILDUNUM.
V ö R N
Gott fordæmi.
Á fundi í VÖRH;A-deild IÐJU,
er haldinn var 4.nov. s.l. var
stofnaður sjúkrasjóður.Til sjóös-
ins greiöir hver meÖlimur kr.O,5o
á viku. Almennur áhugi er fyrir
málinu og munu fleiri leiöir farn-
ar til aö afla fjár í sjóöinn,svo
hann komi sem fyrst aÖ tilætluðum
notum. J.P.
• • • • • • • . j. # |.w # • - * J ,IU*I
" • • • • • • • • • • •
" N Ó T "
Félagiö "NÓT", E-deild IBJU,
samanstendur af fólki, sem vinnur
á netageröarverkstæöum hér 1 bænum,
þ.e.a.s. þeim verkstæöum,sem hafa
á hendi viÖgerðir á netum,sérstak-
lega þeim sem notuð eru til síld-
veiða.
ViÖ þessa iðn vinna bæði karl-
ar og konur, og eru konur þar í
miklum meirihluta.
Þetta^fólk hefur aldrei haft
meö sér félagsskap, og af þeirri
ástæöu haft við slæm kjör aö búa,
sérstaklega kvennfólkiÖ,einkum ef
tekið er tillit til þess, aÖ það
vinnur sömu vinnu og það er sannað
mál,að það afkastar 1 flestum til-
fellum meiru en karlmenn,en hefir
haft mikið minna kaup en þeir, þó
kaup karlmanna hafi 1 flestum til-
fellum verið fyrir neöan almennan
kauptaxta.
Síöastliöiö haust ákvaö þetta
fólk að fá kjör sín bætt, en til
þess þurfti það að standa sameinað
og fór því að dæmum annars verka-
folks og stofnaöi meö sér stéttar-
félag, en vegna þess ^hve fá menn
stéttin er (ca. 20), ákvað það aö
leita aöstoðar eldri og sterkari
verkalýösfélaga, og gekk því sem
deild 1 IBJU.
Þessi deild stendur nú í samn-
ingum viö atvinnurekendur,og vænt-
ir deildin þess aö hún hafi stuÖn-
ing og samhug allra félaga IÐJU í
þessari baráttu sinni, því þaö er
vitaö að hiö vinnandi fólk, getur
ekki fengið kjör sín bætt nema það
standi sameinaö um kröfur sínar,^
stöndum því öll sameinuð og því
fastar,sem baráttan harönar.
SPURNINGAR
0 G S V ö R:
Blaöiö mun framvegis hafa sér-
stakann dalk |>ar sem birtar verða
spurningar fra áskrifendum og svör
blaðsins.Er til þess ætlast aö þeir
félagsmenn,sem vilja fá upplýsing-
ar um eitthvað viövíkjandi störfursst
félagsins,hag fólksins o.fl.þess-
háttar sendi blaðinu spurningar um
þessi efni og mun þá ritstjórn-
in leitast viÖ að fá þeim svarað
eÖa svara þeim sjálf.
Eftirfarandi spurningar hafa
þegar borist blaðinu:
I*_§Durning:
Er hægt 'aö draga af kaupi
fólks þótt vinna þess stöðvist
um stuttan tíma?
Svar:
í samningi IÐJU viÖ F.Í.I.
22.des.1937 segir svo:
Ekki er vinnuveitanda skylt
aö greiða verkafólki kaup,ef
vinna fellur niöur um lengri
eÖa skemmri tíma vegna vela-
bilunar eða skorts a hráefni
eða af öörum slíkum ástæðum,
enda sé þaö ekki vanrækslu
vinnuveitanda aÖ kenna.
Fyrir eins dags stöðvun og
minna greiðist þó fullt kaup.
II.spurning:
a:Á hvern hátt starfa hinir
svo nefndu fræösluhringir
eða leshópar ?
b: Væri hægt að hafa slík-
a starfsemi innan IEJU ?
Svar:
a: Hinir svo nefndu fræðslu-
hringar eða leshópar starfa
á þann hátt aö nokkrir,stund-
um margir,áhugasamir menn og
konur koma sér saman um aö
lesa og nema eitthvað ákveð-
iÖ, sem þáttakendur hafa á-
huga fyrir.Það getur verið
Frh.bl.8
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
DÓmarinn:- Þér segist hafa fleygt^
konunni yöar út um gluggann á
annari hæÖ af' eintómri
gleymsku ?
Á.kæröurs-Alveg rétt herra domari.
ViÖ höfam nefnilega alltaf^
átt heima á fyrstu hæö og ég
mundi ekkert eftir því aö viö
vorum flutt upp á aöra hæö.