Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.03.2022, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 18.03.2022, Qupperneq 8
Sergeíj Beseda (til hægri), y rmaður utanríkisdeildar leyniþjónustunnar FSB, handtekinn ásamt undirmanni fyrir að útvega lélegar upplýsingar.  Heimildir: Brown University, New York Times Myndir: Telegraf, Twitter, VPK News Hershöfðingjar Rússa á meðal fallinna Þrjár vikur eru liðnar frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Rússar hafa nú þegar misst ’eiri hermenn en Bandaríkjamenn misstu á tveimur áratugum í Afganistan og Írak. 7.059 bandarískir hermenn féllu í Afganistan og Írak. 20.752 særðust 7.000+ rússneskir hermenn hafa fallið í Úkraínu.* 14.000-21.000 særðir 26. febrúar: Magomed Tushaev, hershöfðingi í 141. skriðdrekaherdeild Tsjetsjeníu. 28. febrúar: Andrei Súkovetskíj, hershöfðingi, 41. herinn. 15. mars: Oleg Mítíjaev (til vinstri), ofursti, 150. herdeild. 7. mars: Vítalíj Gerasímov, hershöfðingi, 41. herinn. 15. mars: Andrei Kolesníkov, hershöfðingi, 29. herinn. © GRAPHIC NEWS 498 Rússneska varnar- málaráðuneytið segir að 498 ha fallið *Mat bandarísku leyniþjónustunnar LÁTIN N LÁTIN N LÁTIN N LÁTIN N HANDTEKIN N LÁTIN N Fjóla í fyrsta sæti 1. sæti í Árborg Fjóla Kristinsdóttir Ábyrgur og skilvirkur rekstur er lykillinn að góðri grunn þjónustu og því forsenda þess að sveitar ­ félagið megi vaxa og dafna. fjolakristins.is FjolaKristins Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Árborg Laugardaginn 19. mars Mannfallið mun meira en Rússar gefa upp Úkraínskir hermenn í Lvív bera félaga sinn til grafar. Talið er að um þrjú þúsund úkraínskir hermenn hafi fallið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Leyniþjónustur telja mannfall Rússa mun meira en stjórn- völd gefi upp. Árásir Rússa á óbreytta borgara héldu áfram í gær. arib@frettabladid.is ÚKRAÍNA Hægt hefur á framgangi rússneskra hersveita á öllum víg- stöðvum í Úkraínu síðustu daga og er mannfallið mikið, samkvæmt upplýsingum frá leyniþjónustum Breta og Bandaríkjanna. Erfitt er að fá upplýsingar frá víg- stöðvunum og áróður er stífur bæði af hálfu Rússa og Úkraínumanna. Rússar segja opinberlega að tæp- lega 500 hermenn hafi fallið frá því innrásin hófst fyrir þremur vikum, á sama tíma segjast Úkraínumenn hafa banað á annan tug þúsunda. Samkvæmt skýrslu bresku leyni- þjónustunnar hafa rúmlega sjö þúsund rússneskir hermenn fallið, starfsbræður þeirra í Bandaríkj- unum komast að sömu niðurstöðu. Ef þær tölur standast þýðir það að Rússar hafa misst f leiri hermenn í Úkraínu á síðustu þremur vikum en Bandaríkin í Írak og Afganistan frá aldamótum. Rússar hafa misst töluverðan fjölda hershöfðingja, talið er að um tuttugu þeirra hafi tekið þátt í inn- rásinni. Þeir hafi verið færðir framar á víglínuna á síðustu dögum til að bæta andann meðal óbreyttra her- manna og þannig lagðir í meiri hættu. Talið er að Úkraínumenn hafi misst hátt í þrjú þúsund hermenn frá upphafi innrásarinnar, Úkra- ínumenn sjálfir segja töluna nær einu þúsundi. Samkvæmt Sam- einuðu þjóðunum hafa minnst 700 almennir borgarar fallið. Loftvarnir Úkraínumanna hafa skipt sköpum, að sögn ráðamanna þar, og hefur komið á óvart hversu vel hefur gengið að koma í veg fyrir að Rússar nái loftyfirráðum í land- inu. Mikið af orku þeirra hefur farið í að verja Kænugarð fyrir árásum. Þrátt fyrir að víglínan hreyfist lítið halda Rússar áfram að skjóta eldflaugum á almenna borgara. Í gær létust meira en 20 og 25 særðust í loftárás á skóla og félagsmiðstöð í bænum Merefa skammt frá Karkív í austurhluta landsins. Úkraínumenn halda enn yfir- ráðum í hafnarborginni Maríupol í suðurhluta landsins þrátt fyrir umsátur, íbúar eru enn vatnslausir og hungur hrjáir marga. Hátt í 1.200 konur og börn höfðu leitað skjóls í leikhúsi sem varð fyrir f lugskeyti. Búið var að setja stórar merkingar á bílastæði fyrir utan þar sem stóð „börn“ áður en árásin var gerð. Ekki liggur fyrir hversu margir létust en einhverjir náðu að koma sér út eftir árásina. Talið er að níu af hverjum tíu byggingum í borginni séu skemmdar eða eyðilagðar. Borgin Tjerníhív norðaustan við Kænugarð er ekki umkringd en stöðugar árásir hafa verið á borgina síðustu vikur. Rúmlega fimmtíu létu lífið í gær. Í gær bárust einnig óstað- festar fregnir af því að f lugskeyti hefði hafnað nálægt röð af fólki að kaupa brauð. Úkraínumenn gáfu út í gær að Ívan Fedorov, borgarstjóri Melíto- pol sem Rússar rændu, sé laus úr haldi í skiptum fyrir níu rússneska stríðsfanga. Var tekið fram að allir rússnesku stríðsfangarnir væru fæddir á árunum 2002 og 2003. Áfram er unnið að vopnahlés- samningi. Jean-Yves Le Drian, utan- ríkisráðherra Frakka, hefur sakað Rússa um að þykjast aðeins vilja semja. Oleksí Resníkov, aðalsamn- ingamaður Úkraínu, sagði á fundi með Evrópuþingmönnum í gær að mikil vinna færi í tæknileg atriði, mestu skipti að Rússar hættu öllum árásum, í raun væri boltinn hjá rúss- neskum stjórnvöldum. ■ 8 Fréttir 18. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.