Fréttablaðið - 18.03.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 18.03.2022, Blaðsíða 22
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Elías Kristjánsson fyrrverandi forstjóri Kemis ehf. verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 25. mars kl. 15.00. Lísbet Bergsveinsdóttir Þórunn Ýr Elíasdóttir Guðni Már Egilsson Sigríður Guðnadóttir Elías Guðni Guðnason Diljá Guðmundardóttir Einar Óli Guðnason Bryndís Þorleifsdóttir Ernir Freyr Guðnason Valdís Auður Arnardóttir Ellen Lísbet Guðnadóttir Egill Þór Guðnason Elena Guðný, Kristófer Örn, Sigurður Aron, Valgerður Guðný, María Ýr, Lísbet Anna Dagbjört Eysteinsdóttir og Kristján Jón Eysteinsson Bróðir minn, mágur og frændi okkar, Herbert Marinósson frá Seyðisfirði, lést á Hrafnistu Laugarási, Reykjavík, 14. mars. Útför hans verður í kyrrþey. Við færum starfsfólki Miklatorgs á Hrafnistu sérstakar þakkir fyrir umönnun og hlýju. Höskuldur Marinósson Rúnar Sigþórsson Heiðar Þór Rúnarsson Oddur Már Rúnarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna Þorbjörg Arnoddsdóttir Ægisgötu 10, Akureyri, lést 10. mars. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir eru til starfsfólksins á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir hlýja og góða umönnun. Sigurlaug Ólöf Guðmannsd. Rúnar Pálsson Arnoddur Guðmannsson Guðmann Guðmannsson Jasmin C. RuangAnant Helena Manasína Guðmannsd. Jóhann Guðmannsson Nareerat Joam ömmu- og langömmubörn. Ástkær eiginmaður, tengdasonur, sonur okkar, barnabarn, bróðir, frændi og vinur, Ölvir Freyr Guðmundsson kerfisstjóri, lést þann 25. desember 2021 í Chicago. Minningarathöfn verður í Langholtskirkju 19. mars kl. 14.00. Minningarathöfnin er opin öllum þeim sem vilja minnast hans og sýna samhug. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem hafa sýnt okkur kærleik og stuðning. Ljúfar minningar munu ávallt lifa í hjörtum okkar um yndislegan dreng. Minningarsíða: https://minningar.is/memories/ olvir-freyr-gudmundsson-1990-2021 Streymi frá athöfninni: https://laef.is/olvir-freyr/ Amy Marie Duncker Guðrún Gyða Ölvisdóttir Guðmundur Unnar Agnarsson og aðrir aðstandendur og vinir. 1871 Parísarkommúnan er stofnuð. 1922 Mahatma Gandhi er dæmdur í sex ára fangelsi á Ind­ landi fyrir borgaralega óhlýðni. Hann situr í fangelsi í tvö ár. 1926 Útvarpsstöð tekur formlega til starfa í Reykjavík. Hún hættir fljótlega, en í kjölfarið hefur Ríkisút­ varpið útsendingar 1930. 1971 Hæstiréttur Danmerkur kveður upp úrskurð sem gerir dönsku ríkisstjórninni kleift að afhenda Íslend­ ingum handrit sem geymd höfðu verið í Árnasafni í Kaupmannahöfn. 2003 Listi viljugra þjóða sem styðja afvopnun Íraks er birtur og er Ísland á honum. Tveimur dögum síðar hefst innrásin í Írak. 2004 Lið MR tapar í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, í fyrsta skipti síðan 1992. n Merkisatburðir Margrét hefur fengist við myndritstjórn í um 20 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Margrét Tryggvadóttir flytur hádegiserindi í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag um myndrit- stjórn og myndefni í bókum. arnartomas@frettabladid.is Myndritstjórinn og rithöfundurinn Margrét Tryggvadóttir f lytur hádegis- fyrirlestur í Ljósmyndasafni Reykjavík- ur á morgun undir yfirskriftinni Myndir og bækur – heimildir og hliðarsögur. Þar mun Margrét veita hlustendum innsýn í vinnu sína sem myndritstjóri og hlut- verk myndefnis í bókum. „Fyrir rúmum 20 árum fór ég að vinna hjá bókaforlagi þar sem ég var beðin um að taka að mér að vera myndritstjóri, án þess að vita nokkuð um hvað það var,“ útskýrir hún. „Það hafði aldrei verið neitt svoleiðis í föstu formi hjá bókafor- lagi á Íslandi.“ Þrátt fyrir að bókaforlagið hafi skömmu síðar næstum farið á hausinn hélt Margrét áfram að sinna myndrit- stjórn til að kynnast hlutverkinu betur og hefur gert það síðan ásamt öðrum störfum. Hún segir starfið fjölbreytt. „Stundum er maður að grúska í gömlum ljósmyndum, á öðrum tímum er maður að aðstoða fólk sem er að setja saman ævisögu í að velja myndir úr eigin lífi, en þetta er alltaf skemmtilegt,“ segir Margrét sem segir að ljósmyndir séu jafnframt frábærar heimildir. „Í síðustu bók eftir Lindu Ólafsdóttur og mig, Reykjavík barnanna, nýttum við okkur ljósmyndir til að búa til teikningar. Að baki hverri einustu mynd þar er fjöldi ljósmynda.“ Stafræn stökkbreyting Ljósmyndaheimurinn hefur breyst mikið á undanförnum árum að mati Margrétar. „Ljósmyndasöfnin eru komin með stóran hluta safnkostsins á netið og svo hefur þessi stafræna tækni gert alla leitarmiðlun svo miklu einfaldari en hún var fyrir aldamótin,“ segir hún. „Svo hafa margir stórir myndabankar sam- einast og bætt skráningu myndefnisins til muna. Stundum var hægt að finna frá- bæra mynd en engar upplýsingar með.“ Við útgáfu bóka segir Margrét að rétt myndaval skipti höfuðmáli í starfi myndritstjóra. „Það er hægt að skipta starfinu í þrennt. Það þarf að finna réttar myndir, passa upp á gæðin og svo eru það rétt- indamálin,“ segir hún. „Það þarf að hafa góða yfirsýn og vita hvar rétta mynd- efnið er, sem getur verið mjög misjafnt eftir verkefnum.“ Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.10 og er aðgangur ókeypis. n Myndir og bækur Stundum er maður að grúska í gömlum ljós- myndum, á öðrum tímum er maður að aðstoða fólk sem er að setja saman ævisögu í að velja myndir úr eigin lífi, en þetta er alltaf skemmtilegt. Það var snemma morguns þann 18. mars 1990 sem þrettán listaverkum var stolið frá Isabella Stewart Gard­ ner safninu í Boston. Verðir á safninu hleyptu tveimur mönnum inn sem dulbúnir voru sem lögregluþjónar. Þjófarnir „handtóku“ verðina og eftir að hafa bundið þá létu þeir þá vita að þeir hygðust ræna safnið. Ræningjarnir létu svo greipar sópa um safnkostinn næsta klukkutímann. Verkin sem þjófarnir höfðu á brott með sér voru ekkert slor en meðal þeirra voru verk eftir stórmeistara á borð við Rembrandt og Manet. Alríkis­ lögregla Bandaríkjanna mat stuldinn upp á einar 500 milljónir dollara og grunar að ránið hafi verið framið af skipulögðum glæpasamtökum. Málið er enn í dag óleyst og hefur safnið heitið 10 milljónum Bandaríkja­ dala í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiða til þess að verkin skili sér heim. Streymisveitan Netflix gaf í fyrra út heimildarmynd í fjórum hlutum um ránið: This Is a Robbery: The World's Biggest Art Heist. n Þetta gerðist: 18. mars 1990 Stórtækur listaverkaþjófnaður í Boston Stormurinn á Galíleuvatni er eitt verkanna sem stolið var. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 18. mars 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.