Fréttablaðið - 18.03.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þegar hann byrjaði á
þessu var hann bara
skrýtni þarakallinn!
Ragnheiður Axel
ser@frettabladid.is
„Ég held að þetta verði einstök upp
lifun fyrir göngufólkið,“ segir fjalla
vinurinn og hjartalæknirinn Tómas
Guðbjartsson sem stendur fyrir
afmælisgöngu að gígnum fræga í
Geldingadölum á morgun, en þá
verður einmitt eitt ár liðið frá því
eldar teygðu sig upp úr jörðinni á
Reykjanesskaga og fóru allmikinn
á svæðinu um margra mánaða skeið,
íslenskum og erlendum ferðamönn
um til ómældrar gleði og einstakrar
upplifunar.
Gangan hefst klukkan 11.00 frá
björgunarsveitarskúrnum á veg
inum rétt austan við Grindavík og
verður farin í mestu makindum, að
sögn Tómasar. „Þetta verða kannski
einhverjir átta til tíu kílómetrar í
hægviðri og það er, vel að merkja,
snjór yfir öllu sem gerir upplifunina
enn sterkari en oft áður, því and
stæðurnar eru svo miklar á milli
alls þessa hvíta yfirborðs og svo
kolsvarts hraunsins sem enn nær
að bræða snjóinn.“
Og hann segir sjónarspilið ekki
einvörðungu bundið við þessar
andstæður ólíkra lita. „Gígurinn
sjálfur er augnayndi, enda óvenju
lega mosagulur eftir brennisteins
útfellingar og einstaklega fallegur á
að líta. Hann er berið ofan á þessari
afmælistertu,“ segir Tómas og á von
á fjölmenni á morgun, en bendir
fólki á að vera vel búið „og ekki er
verra að vera með heitt á brúsa.“
Tómas sér um leiðsögnina ásamt
Salóme Hallfreðsdóttur fyrir hönd
Ferðafélags Íslands, en Magnús
Tumi Guðmundsson, prófessor í
jarðeðlisfræði, og Helga Kristín
Torfadóttir, doktorsnemi í sama
fagi, munu ræða gosið sjálft, fram
vindu þess og samanburð við önnur
gos á eldfjallaeyjunni.
„Og svo verður forsetinn með í
för, Guðni Th. Jóhannesson,“ segir
Tómas „en hann hefur komið alloft
með mér upp að gosinu og er alltaf
jafn áhugasamur um jarðhrær
ingarnar á þessu svæði í bakgarði
höfuðborgarinnar.“ ■
Afmælisganga í Geldingadali
Fjölmiðlarisinn BBC birti á
dögunum þátt frá Íslands
heimsókn vefþáttanna A
Taste of a City eða Borgar
bragð. Þáttarstjórnandi fer
í bragðlaukaferðalag og í
Reykjavíkurþættinum eldar
hún lax og safnar söli og
blöðruþara.
margret@frettabladid.is
A Taste of City eru matreiðsluþættir
á BBC þar sem tekin eru fyrir hráefni
úr heimabyggð úr ýmsum borgum
heimsins. Stjórnandi þáttarins Kate
HardieBuckley kynnir sér hráefni
úr heimabyggð frá ýmsum svæðum.
Á dögunum birtist Reykjavíkur
þátturinn, hvers titill er From Shame
to Superfood, eða Frá skömm að
ofurfæðu, og er þar átt við sölin.
Nútímaleg matartínsla
„Ég fékk bara skilaboð á Instagram
– eins og ég fæ reglulega. „Hæ, hæ, ég
er með matreiðsluþátt,“ segir mat
reiðslumeistarinn Fanney Dóra
Sigurjónsdóttir sem leiðir mat
reiðsluna í þættinum, en þar er eld
aður lax með góðgæti úr fjörunni.
Hún segist hafa tekið skilaboðunum
með fyrirvara í fyrstu. „Ég fæ mörg
svona skilaboð og tek þeim mis
hátíðlega.“
Fanney var mikið í mun að sýna
ferska lúxusmatreiðslu, að hennar
sögn til mótvægis við tvo sjónvarps
þætti eftir heimsfræga sjónvarps
kokka sem íslenskt mataráhuga
fólk gæti kannast við. Annars vegar
þegar Gordon Ramsey gerði matar
þátt um Ísland og hins vegar þegar
Anthony Bourdain heimsótti land
og þjóð. Þar var meðal annars fjallað
um tengsl kjötsúpu og úthalds í
bólinu.
„Ég vildi ekki þessa „allir borða
hákarl annars ertu aumingi“stemn
ingu,“ segir Fanney. Fanney og Katie
heimsóttu því meðal annars hið
kvenrekna brugghús Lady Brewery.
Fanney starfar í dag á Hnossi í
Hörpu þar sem mikið er lagt upp úr
árstíðabundnum mat og íslensku
hráefni. „Íslendingar hafa auð
vitað sótt sér mat í náttúruna í aldir.
Hreindýramosinn, f jallagrösin,
hvönnin, sölin.“
Ragnheiður Axel er sú sem fer
með umsjónarmanni þáttarins
að tína söl og góðgæti í fjörunni.
„Pabbi og fjölskylda mín eru búin
að vera að tína þara í mörg ár. Þegar
hann byrjaði á þessu var hann bara
skrýtni þarakallinn!“ segir Ragn
heiður Axel. „Í dag erum við að selja
til fínna veitingahúsa eins og Noma,
en kokkarnir þar ásamt Gunnari
Karli á Dilli hvöttu hann áfram í
þessu upp úr 2000,“ segir hún.
„Þessi tínsla og söfnun mat
væla, nefnd „foraging“ á ensku, er
í sókn í matarmenningunni,“ segir
Ragnheiður Axel og bætir við að
samskiptin við náttúruna séu svo
mögnuð. „Núvitundin, að lesa í árs
tíðirnar og tengjast náttúrunni.“
Hún nefnir að langflestir Íslend
ingar eigi dásamlegar minningar
úr berjamó. „Að renna saman við
náttúruna og nýta hana. Þetta er
svipað, það er hægt að fara í alls
konar „mó“ og tína fæðu.“ Ragn
heiður Axel segist hvetja fólk til að
stunda matartínslu.
Erum að komast af gelgjunni
„Auðvitað var rosalega gaman
þegar basilíkan kom og oft heyri
ég að hér vaxi ekkert skemmtilegt,“
segir Fanney og bætir við að það sé
bara rugl. „Við erum með geggjaðar
kryddjurtir hér og byrjuðum aftur
að líta okkur nær fyrir svona fimm
til sjö árum síðan. Við erum að finna
sjálfstraustið okkar í íslensku matar
gerðinni á ný. Smá eins og við séum
að koma af gelgjunni og sættumst
við upprunann.“ ■
Að borða hákarl eða vera
aumingi er búið
„Við erum að
finna sjálfs-
traustið okkar í
íslensku matar-
gerðinni á ný.
Smá eins og
að við séum
að koma af
gelgjunni.“
Fanney Dóra
Sigurjónsdóttir
og Ragnheiður
Axel.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Tómas Guðbjartsson leiðsögumaður
á vettvangi gossins í Geldingadölum.
N Ó I SÍ R Í US
Hinir sívinsælu Nóa Hnappar sóma sér
einstaklega vel í páskaeggjum og það er
óhætt að segja að hnappaeggin okkar séu
sannkallaðir hnappafengir! Við bjóðum upp
á tvær ómótstæðilegar tegundir í ár, hið
klassíska perluhnappaegg og frábæra nýjung
sem svíkur engan, saltkaramelluhnappaegg!
Ekki missa af þessum
hnappdrættisvinningum!
22 Lífið 18. mars 2022 FÖSTU-FRÉTTABLAÐIÐ