Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Side 10
FRÉTTASKÝRING 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022 V eistu hvað?“ sagði maðurinn og horfði í augun á mér. „Lífaldur er versta mögulega viðmið um getu og hæfni manna á vinnumarkaði sem hægt er að hugsa sér. Sjálf- ur hef ég aldrei verið virkari en síðustu ár og lít svo á að þekking mín og reynsla hafi aldrei verið verðmætari en nú. Ég hef mjög gaman af því að vinna og vinnan gefur mér margt en auðvitað verður heilsan að vera í lagi. Þess ut- an finnst mér fjarstæðukennt að aðrir ákveði fyrir mig hvenær ég eigi að láta af störfum vegna aldurs. Ég hlýt að vera þess umkominn sjálfur.“ Maðurinn, sem heitir Jón Þorvaldsson og er ráðgjafi, gerði stutt hlé á máli sínu áður en hann hélt áfram. „Það eru einhver vúdúáhrif í samfélaginu að fólk sem komið er yfir fimm- tugt sé minna spennandi starfskraftur og geti upp til hópa minna en þeir sem yngri eru. Hvað þá þeir sem komnir eru yfir sextugt eða sjötugt. Það tapast gríðarleg þekking með þessum fordómum og þessu verður að linna. Sóunin er ótrúleg.“ Jón var ekki hættur. „Að sama skapi er það risavaxin spurning hvernig sú skoðun fær lifað í þekkingarsamfélagi nútímans að eldra fólk hafi upp á minna að bjóða en yngra fólk. Þetta órökstudda viðhorf á rætur að rekja til iðn- aðarsamfélags fortíðarinnar sem skilgreindi vinnuafl að langmestu leyti sem vöðvaafl. Þau kerfi sem beina eldra fólki út af vinnumarkaði eru því enn skilgreind á forsendum minna vöðvaafls – og hljóta því að falla um sjálf sig eins og spilaborg.“ Fleiri urðu þau orð ekki. Í það skiptið. En eftir sátu vangaveltur, fræjum hafði verið sáð. Fólk sækir margvíslega ánægju í vinnu sína, sjálfsvirðingu, félagslega næringu og svo auð- vitað blessaðar tekjurnar. Gengur því að klukka bara viðkomandi þegar hann verður sjötugur og segja hátt og snjallt: Þú ert úr leik! Skiptir ekki atgervi meira máli en aldur og eru ekki allir sem búa að stöðugu og góðu blóðflæði til heilans frambærilegur starfs- kraftur? Burtséð frá lífaldri. Er okkur stætt á því að koma í veg fyrir að fólk sem vill geti lagt sitt af mörkum til að halda uppi velferðarsam- félaginu og lífskjörum í landinu? Maður spyr! Rifjum í þessu sambandi snöggvast upp 65. grein Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Hún er svona: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kyn- þáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“ Vantar mögulega eitthvað þarna inn? Svo sem aldur. Eða fellur hann ef til vill undir stöðu að öðru leyti? Skuli láta af störfum Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins frá 1996 er lögfest sú regla að opin- berir starfsmenn skuli láta af störfum við 70 ára aldur. Þá er kveðið á um að embættis- manni skuli veita lausn frá og með næstu mán- aðamótum eftir að hann nær 70 ára aldri og hið sama gildir um þá sem skipaðir eru tímabund- ið í embætti. Þetta á ekki við á almennum vinnumarkaði en eigi að síður hefur þetta við- mið verið innbyggt í hugsun margra áratugum saman og er jafnvel enn. Það er að segja að fólk eigi ekki að vera að þvælast fyrir á vinnu- markaði eftir sjötugt. En tímarnir breytast og mennirnir með og sjötugur maður í dag er ekki sama og sjötugur maður fyrir hálfri öld eða jafnvel 26 árum þeg- ar lögin voru sett. Lífslíkur fólks eru stöðugt að aukast og fólk fer upp til hópa betur með sig; slítur sér ekki eins út í vinnu, hreyfir sig meira en tíðkaðist, borðar hollari mat og ræktar hug- ann með margvíslegum hætti. Að ekki sé talað um að læknavísindunum hefur fleygt fram. „Þegar ég var að vaxa úr grasi upp úr miðri síðustu öld var sjötugur maður á grafarbakk- anum enda sleit fólk sér út mun fyrr en það gerir í dag,“ segir Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara (LEB). „Sjálfur er ég 73 ára og finn ekki fyrir neinu, 7-9-13.“ Það er landlæg pest Helgi segir málið ekki flókið; vilji fólk vinna eftir sjötugt og hafi til þess getu og starf sé fyrir hendi þá eigi það að sjálfsögðu að fá að vinna. Það mál sé bara milli starfsmannsins sjálfs og vinnuveitanda hans og komi engum öðrum við. „Það er landlæg pest að fólki, allt niður í 55 ára, sé hent út og fái ekki aðra vinnu. Þá fóbíu þurfum við sem samfélag að yfirstíga,“ segir Helgi og bætir við að því miður gildi þetta frek- ar um konur en karla sem sé alls ekki ásættan- legt. „Það eru fordómar sem þarf að eyða.“ Helgi segir rétt eldri borgara til að stunda vinnu eitt af helstu baráttumálum lands- sambandsins um þessar mundir, samkvæmt manifestó þess. „Það er ekkert sem breytist við það að fólk verði 67 ára eða sjötugt, hvorki líkamlega né andlega. Hvers vegna eru þá við- vörunarbjöllur að hringja?“ spyr hann. „Vinna snýst um færni en ekki aldur.“ – Viltu hækka mörkin, til dæmis upp í 75 ár eða hafa þetta bara opið? „Ég vil hafa þetta opið. Ef áttræður maður er í fullri vinnu og að skila sínu kemur það ekki nokkrum manni við, nema honum og vinnuveit- anda hans. Við þurfum að búa að víðsýni og þroska til að leysa þetta mál, þannig að allir verði sáttir. Hugsaðu þér ávinninginn fyrir samfélagið ef við getum áfram leitað til alls þess færa og reynslumikla fólks sem þarf nauðugt að setjast í helgan stein eins og löggjöfin er núna.“ Að sögn Helga getur það verið þungt högg að þurfa að hætta að vinna og sé fólk ósátt gæti það hæglega orðið baggi á félagslega kerfinu og heilbrigðiskerfinu mun fyrr en hefði þurft að verða. Snýst um að hafa val Þetta þýðir vitaskuld ekki að hvetja eigi fólk til að halda áfram að vinna eftir sjötugt, hugnist það því ekki. „Nei, almáttugur,“ segir Helgi. „Ég skil vel og ber fulla virðingu fyrir þeim sem vilja hætta að vinna og fara frekar að ferðast eða út á golfvöll. Þeir sem vilji hætta eiga að fá að hætta. Málið snýst bara um að eldri borgarar hafi val.“ – Hefur þú á tilfinningunni að þeim fari fjölgandi sem kjósa að halda áfram að vinna eftir sjötugt? Er Grái herinn ekki til margra verka nytsamlegur? Er ekki rétt að spyrja fyrst um færni, síðan aldur? Svari nú hver fyrir sig. Colorbox Ekki sjúkdómur að eldast Fólk á ellilífeyrisaldri hefur aldrei verið fleira á Íslandi en nú – og fer bara fjölgandi. Sumt af þessu fólki hefur fulla starfsorku og hefur ríkan vilja til að halda áfram að vinna fulla vinnu, sér og samfélaginu til hagsbóta. Það gengur þó ekki starfi fólk hjá hinu opinbera en 26 ára gömul lög kveða á um að það þurfi að láta af störfum um leið og það verður sjötugt. Er tímabært að endurskoða það viðhorf? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Þau kerfi sem beina eldra fólki út af vinnumarkaði eru því enn skil- greind á forsendum minna vöðvaafls – og hljóta því að falla um sjálf sig eins og spilaborg. Helgi Pétursson Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Jón Þorvaldsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.