Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Qupperneq 24
Eftir að formlegri dagskrá virtist lokið hljóp skyndilega fjör í titilbaráttuna í ensku knattspyrn- unni á ný. Orrustan um fjórða og seinasta meist- aradeildarsætið ætlar líka að verða æsileg. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is E nska knattspyrnan er engu lík. Hafi menn verið búnir að gleyma því rifjaðist það ábyggilega upp á dögunum fyrir at- beina ólíkindatólanna í Tottenham Hotspur. Fyrst skruppu þeir Cont- ungar á Etihad-leikvanginn í Man- chester, alla jafna óvinnandi vígi, og skelltu heimamönnum, toppliði úr- valsdeildarinnar, á ævintýralegan hátt með sigurmarki á elleftu stundu í uppbótartíma. Fjórum dögum síðar voru sömu menn í sömu fötum mætt- ir í öllu fábrotnara mannvirki, Turf Moor í Burnley, þar sem botnlið deildarinnar tók á móti þeim. Og hvað gerðist þá? Jú, jú, Tottenham tapaði. Þið munið, við erum að tala um ensku knattspyrnuna. Ef þið get- ið bent mér á aðra deild, í þessum styrkleikaflokki, þar sem þetta getur átt sér stað skal ég persónulega skutla Mogganum heim til ykkar um næstu helgi! Eins og þessar vendingar séu ekki nógu fréttnæmar út af fyrir sig þá gerði Tottenham annað og meira með þessu undarlega uppátæki – galopnaði baráttuna um meistaratit- ilinn. Ekki svo að skilja að Lundúna- liðið eigi beina aðild að þeirri glímu sjálft. Stigin þrjú sem ríkjandi meistarar, Manchester City, töpuðu hleyptu hins vegar helstu áskorend- um þeirra, Liverpool, aftur inn í slaginn sem virtist vera lokið um áramótin. Í staðinn fyrir níu til 12 stig var munurinn allt í einu ekki nema sex stig og Rauði herinn með leik til góða – sem hann malaði svo í vikunni. Tók sprellikarlana í Leeds United til bæna á Anfield, 6:0. Þá er munurinn ekki nema þrjú stig og það eiginlegur en bæði lið hafa lokið 26 leikjum af 38. Og Liverpool með hag- stæðari markamun sem nemur fjór- um mörkum og þar sem liðin eiga eftir að kljást innbyrðis þá eru þau bæði með sín örlög í eigin hendi. Djöfulsins veisla sem þetta á eftir að verða! Hver sagði svo að Tottenham væri þess ekki umkomið að blanda sér í baráttuna um meistaratitilinn? Bikar í augsýn En áður en þeir Kloppungar leggja til atlögu við sjálfan meistarabik- arinn ætla þeir að hrifsa deildabik- arinn af City um helgina en þeir heiðbláu hafa einokað hann undan- farin ár; unnið fjögur mót í röð, líkt og Rauði herinn gerði í byrjun ní- unda áratugarins, og sex sinnum á síðustu átta árum. Það gleymdi víst einhver að segja Pep Guardiola frá því að menn tefli fram varamönnum og ungmennum í þeirri annars ágætu keppni. Ljónið á veginum á Wembley-leik- vanginum í Lundúnum er Chelsea; liðið í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar og nýbakaðir heimsmeistarar félags- liða. Framan af móti leit út fyrir að lærisveinar Tomasar Tuchels ætluðu að vera með stóru strákunum í topp- slagnum en fjarað hefur undan þeim draumum á umliðnum vikum. Chelsea er í dag 13 stigum á eftir City. Fyrir vikið hlýtur deildabikar- inn að freista. Dolla er alltaf dolla og hressandi fyrir sálarlífið og móral- inn. En hvers vegna í ósköpunum fór án aðdraganda að hellirigna úr heið- skírum himni yfir bláhvíta hluta Norður-Lundúna? Ekki var spark- stjórinn, Antonio Conte, með svarið eftir fíaskóið í Burnley. Vék sér þó fráleitt undan ábyrgð; kvaðst hrein- lega hafa efasemdir um að hann væri rétti maðurinn til að leiða klúbbinn eftir fjóra ósigra í fimm leikjum. Óvenjulegt að heyra menn tala með þessum hætti og maður gat ekki var- ist þeirri hugsun að Ítalinn vildi hreinlega losna úr prísundinni. Fyrr en síðar. Var hann með þessu að stíga í vænginn við Manchester United sem er þessa dagana undir bráðbirgðastjórn Þjóðverjans Ralfs Rangnicks? Vill hann komast þangað í sumar? Eða er hann bara svona of- boðslega ærlegur? Fyrir fáeinum vikum veðjuðu margir á að Tottenham myndi taka fjórða sæti deildarinnar og stimpla sig þar með inn í Meistaradeild Evr- ópu í haust. Conte væri sigurvegari af Guðs náð og mörkum hlyti að byrja aftur að rigna úr ranni Harrys markakóngs Kane. Það gerðist sann- arlega á Etihad en mögulega vildi hann bara minna meistarana á hvers þeir hefðu farið á mis en hugmyndir voru um að hann flytti sig milli borga síðasta sumar. Kappinn hefur auð- vitað ekkert að sanna gagnvart Burnley, Úlfunum og Southampton. Tottenham lónar nú handan góðs og ills í áttunda sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir Manchester United í fjórða sætinu – en á tvo leiki til góða. Þannig að öll nótt er fráleitt úti. United hefur hóstað og hikstað á víxl í vetur, skipt um stjóra og Guð má vita hvað, en virðist vera að kom- ast aftur á sigurbraut. Þannig að enginn skyldi afskrifa þá pilta í rimmunni um fjórða sætið. Ronaldo erkispyrnir hefur verið með ein- hverja hægðatregðu undanfarið en þeim kvilla lýkur alltaf með sama hætti – óstöðvandi þarmahláku. Byrjað að tefja á 25. mínútu United ræður þó ekki örlögum sín- um eitt og óstutt en næsta lið í töfl- unni, Arsenal, er bara einu stigi á eftir og á tvo leiki til góða. Skytt- urnar hafa átt furðulegt mót, tapa ýmist öllum leikjum eða vinna þá alla. Eftir sigurlausan og nær markalausan janúar skellti mann- skapurinn sér í hópeflistúr í sólina í Dúbai, þar sem barið var í brestina. Eftir það er liðið með níu stig úr þremur leikjum. Þar af eru tveir sigrar á Úlfunum sem verið hafa þéttari en upphandleggirnir á Annie Mist í vetur. Þar með eru fjarlægar meistaradeildarvonir Bruno Lage og hans manna nánast úr sögunni, myndi maður ætla. Kannski eins gott, viljum við sjá lið þar sem byrjar að tefja leiki á 25. mínútu og ruglast alveg „óvart“ í ríminu þegar taka á menn af velli undir lokin? West Ham United er fimmta liðið sem gerir tilkall til fjórða sætisins en David Moyes hefur barið stórmerki- legan stöðugleika inn í kvarnirnar á Hömrunum sínum. Aðeins hafa þeir þó verið að haltra að undanförnu en eru samt ekki nema fjórum stigum frá markmiðinu. Það er heldur ekki eins og að Chelsea sé búið að geirnegla þriðja sætið; United er bara fjórum stigum á eftir þeim og vinni Arsenal leikinn sem það á inni á þá bláu munaði að- eins tveimur stigum á liðunum. Þessi lið myndu þó glöð gera sér fjórða sætið að góðu – og hanga á því eins og langsoltinn hundur á roði. Þið verðið rétt stillt! Mohamed Salah heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Liverpool og hefur boðið Rodri og Manchester City upp í dans. Sá dans gæti átt eftir að verða í slam- en ekki samkvæmisstíl og hyggilegra fyrir dauðlega menn að flækjast ekki fyrir. AFP Hellidemba í heiðríkju Jorginho og félagar í Chelsea hafa setið í þriðja sætinu um skeið en þurfa að vara sig á Bruno Fernandes og Manchester United og mögulega fleiri liðum. AFP 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022 KNATTSPYRNA Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Melabúð, Frú Lauga, Heimkaup, Veganbúðin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.