Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Blaðsíða 24
Eftir að formlegri dagskrá virtist lokið hljóp
skyndilega fjör í titilbaráttuna í ensku knattspyrn-
unni á ný. Orrustan um fjórða og seinasta meist-
aradeildarsætið ætlar líka að verða æsileg.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
E
nska knattspyrnan er engu lík.
Hafi menn verið búnir að
gleyma því rifjaðist það
ábyggilega upp á dögunum fyrir at-
beina ólíkindatólanna í Tottenham
Hotspur. Fyrst skruppu þeir Cont-
ungar á Etihad-leikvanginn í Man-
chester, alla jafna óvinnandi vígi, og
skelltu heimamönnum, toppliði úr-
valsdeildarinnar, á ævintýralegan
hátt með sigurmarki á elleftu stundu
í uppbótartíma. Fjórum dögum síðar
voru sömu menn í sömu fötum mætt-
ir í öllu fábrotnara mannvirki, Turf
Moor í Burnley, þar sem botnlið
deildarinnar tók á móti þeim. Og
hvað gerðist þá? Jú, jú, Tottenham
tapaði. Þið munið, við erum að tala
um ensku knattspyrnuna. Ef þið get-
ið bent mér á aðra deild, í þessum
styrkleikaflokki, þar sem þetta getur
átt sér stað skal ég persónulega
skutla Mogganum heim til ykkar um
næstu helgi!
Eins og þessar vendingar séu ekki
nógu fréttnæmar út af fyrir sig þá
gerði Tottenham annað og meira
með þessu undarlega uppátæki –
galopnaði baráttuna um meistaratit-
ilinn. Ekki svo að skilja að Lundúna-
liðið eigi beina aðild að þeirri glímu
sjálft. Stigin þrjú sem ríkjandi
meistarar, Manchester City, töpuðu
hleyptu hins vegar helstu áskorend-
um þeirra, Liverpool, aftur inn í
slaginn sem virtist vera lokið um
áramótin. Í staðinn fyrir níu til 12
stig var munurinn allt í einu ekki
nema sex stig og Rauði herinn með
leik til góða – sem hann malaði svo í
vikunni. Tók sprellikarlana í Leeds
United til bæna á Anfield, 6:0. Þá er
munurinn ekki nema þrjú stig og það
eiginlegur en bæði lið hafa lokið 26
leikjum af 38. Og Liverpool með hag-
stæðari markamun sem nemur fjór-
um mörkum og þar sem liðin eiga
eftir að kljást innbyrðis þá eru þau
bæði með sín örlög í eigin hendi.
Djöfulsins veisla sem þetta á eftir að
verða! Hver sagði svo að Tottenham
væri þess ekki umkomið að blanda
sér í baráttuna um meistaratitilinn?
Bikar í augsýn
En áður en þeir Kloppungar leggja
til atlögu við sjálfan meistarabik-
arinn ætla þeir að hrifsa deildabik-
arinn af City um helgina en þeir
heiðbláu hafa einokað hann undan-
farin ár; unnið fjögur mót í röð, líkt
og Rauði herinn gerði í byrjun ní-
unda áratugarins, og sex sinnum á
síðustu átta árum. Það gleymdi víst
einhver að segja Pep Guardiola frá
því að menn tefli fram varamönnum
og ungmennum í þeirri annars
ágætu keppni.
Ljónið á veginum á Wembley-leik-
vanginum í Lundúnum er Chelsea;
liðið í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar
og nýbakaðir heimsmeistarar félags-
liða. Framan af móti leit út fyrir að
lærisveinar Tomasar Tuchels ætluðu
að vera með stóru strákunum í topp-
slagnum en fjarað hefur undan þeim
draumum á umliðnum vikum.
Chelsea er í dag 13 stigum á eftir
City. Fyrir vikið hlýtur deildabikar-
inn að freista. Dolla er alltaf dolla og
hressandi fyrir sálarlífið og móral-
inn.
En hvers vegna í ósköpunum fór
án aðdraganda að hellirigna úr heið-
skírum himni yfir bláhvíta hluta
Norður-Lundúna? Ekki var spark-
stjórinn, Antonio Conte, með svarið
eftir fíaskóið í Burnley. Vék sér þó
fráleitt undan ábyrgð; kvaðst hrein-
lega hafa efasemdir um að hann væri
rétti maðurinn til að leiða klúbbinn
eftir fjóra ósigra í fimm leikjum.
Óvenjulegt að heyra menn tala með
þessum hætti og maður gat ekki var-
ist þeirri hugsun að Ítalinn vildi
hreinlega losna úr prísundinni. Fyrr
en síðar. Var hann með þessu að
stíga í vænginn við Manchester
United sem er þessa dagana undir
bráðbirgðastjórn Þjóðverjans Ralfs
Rangnicks? Vill hann komast þangað
í sumar? Eða er hann bara svona of-
boðslega ærlegur?
Fyrir fáeinum vikum veðjuðu
margir á að Tottenham myndi taka
fjórða sæti deildarinnar og stimpla
sig þar með inn í Meistaradeild Evr-
ópu í haust. Conte væri sigurvegari
af Guðs náð og mörkum hlyti að
byrja aftur að rigna úr ranni Harrys
markakóngs Kane. Það gerðist sann-
arlega á Etihad en mögulega vildi
hann bara minna meistarana á hvers
þeir hefðu farið á mis en hugmyndir
voru um að hann flytti sig milli borga
síðasta sumar. Kappinn hefur auð-
vitað ekkert að sanna gagnvart
Burnley, Úlfunum og Southampton.
Tottenham lónar nú handan góðs og
ills í áttunda sæti deildarinnar, sjö
stigum á eftir Manchester United í
fjórða sætinu – en á tvo leiki til góða.
Þannig að öll nótt er fráleitt úti.
United hefur hóstað og hikstað á
víxl í vetur, skipt um stjóra og Guð
má vita hvað, en virðist vera að kom-
ast aftur á sigurbraut. Þannig að
enginn skyldi afskrifa þá pilta í
rimmunni um fjórða sætið. Ronaldo
erkispyrnir hefur verið með ein-
hverja hægðatregðu undanfarið en
þeim kvilla lýkur alltaf með sama
hætti – óstöðvandi þarmahláku.
Byrjað að tefja á 25. mínútu
United ræður þó ekki örlögum sín-
um eitt og óstutt en næsta lið í töfl-
unni, Arsenal, er bara einu stigi á
eftir og á tvo leiki til góða. Skytt-
urnar hafa átt furðulegt mót, tapa
ýmist öllum leikjum eða vinna þá
alla. Eftir sigurlausan og nær
markalausan janúar skellti mann-
skapurinn sér í hópeflistúr í sólina í
Dúbai, þar sem barið var í brestina.
Eftir það er liðið með níu stig úr
þremur leikjum. Þar af eru tveir
sigrar á Úlfunum sem verið hafa
þéttari en upphandleggirnir á Annie
Mist í vetur. Þar með eru fjarlægar
meistaradeildarvonir Bruno Lage og
hans manna nánast úr sögunni,
myndi maður ætla. Kannski eins
gott, viljum við sjá lið þar sem byrjar
að tefja leiki á 25. mínútu og ruglast
alveg „óvart“ í ríminu þegar taka á
menn af velli undir lokin?
West Ham United er fimmta liðið
sem gerir tilkall til fjórða sætisins en
David Moyes hefur barið stórmerki-
legan stöðugleika inn í kvarnirnar á
Hömrunum sínum. Aðeins hafa þeir
þó verið að haltra að undanförnu en
eru samt ekki nema fjórum stigum
frá markmiðinu.
Það er heldur ekki eins og að
Chelsea sé búið að geirnegla þriðja
sætið; United er bara fjórum stigum
á eftir þeim og vinni Arsenal leikinn
sem það á inni á þá bláu munaði að-
eins tveimur stigum á liðunum. Þessi
lið myndu þó glöð gera sér fjórða
sætið að góðu – og hanga á því eins
og langsoltinn hundur á roði.
Þið verðið rétt stillt!
Mohamed Salah heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Liverpool og hefur boðið Rodri og Manchester City upp í dans.
Sá dans gæti átt eftir að verða í slam- en ekki samkvæmisstíl og hyggilegra fyrir dauðlega menn að flækjast ekki fyrir.
AFP
Hellidemba
í heiðríkju
Jorginho og félagar í Chelsea hafa setið í þriðja sætinu um skeið en þurfa að
vara sig á Bruno Fernandes og Manchester United og mögulega fleiri liðum.
AFP
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022
KNATTSPYRNA
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Melabúð,
Frú Lauga, Heimkaup, Veganbúðin