Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022
Ý
msir eiga erfitt með að halda þræði í
dapurlegri umræðu um andstyggileg
örlög Úkraínu. Og þrautalendingin
er oft sú að falla í skiljanlegri angist
sinni í hefðbundið skak. Það gerir
þeim svo sem ekki mikið til, en það
bætir heldur engu við umræðuna, sem væri þó okkur
öllum hjálplegt.
Alltaf fellur hann fyrst
Okkur var sagt í „fréttum“ snemma í gær að Rússar
hefðu þegar misst nærri 500 hermenn. Er það alveg
víst? Hver sér um talninguna? Rússar sjálfir, eins og
öll önnur herstjórnaryfirvöld, góð sem vond, telja
enga ástæðu til að fleyta slíkum tölum, hvort sem
þær eru trúlegar eða ótrúlegar. Yfirvöld senda út sín-
ar tölur um særða og fallna og ekki er ólíklegt að frá
þeim hafi verið gengið, fyrir hvern dag, fyrir all-
mörgum mánuðum.
En við vitum hins vegar að þetta tiltekna atriði get-
ur átt við sannleikann almennt, þegar svo er komið.
Það er frægur og mikið notaður stóridómur: Stríð er
hafið og sannleikurinn féll fyrstur allra í valinn.
Þau örlög eiga einnig við þótt stríð sé aðeins í
undirbúningi. Það getur skipt miklu og jafnvel öllu
fyrir úrslit síðar ef sannleikurinn kemur illa laskaður
til leiks, er varla hugað líf, þótt þetta sé löngu áður en
nokkur greip til vopna.
Þess verður vart, að þeir eru til sem láta það fara í
taugarnar á sér ef yfirlýsingar helstu ríkja um stór-
brotnar efnahagslegar refsiaðgerðir eru ekki teknar
nógu alvarlega og menn gefi sér ekki að þær séu sem
meitlaðar í harðan stein og megi ekki um þær efast.
Refsiaðgerðir hræddu Pútín eins og
Ketill skrækur Skuggasvein
Tugir leiðtoga ríkja Nató og ESB átu upp sama text-
ann á fjölmörgum fundum þegar sást að rússneskum
hermönnum fjölgaði við landamæri Úkraínu. Enginn
þeirra vissi þá um hvaða refsiaðgerðir yrði að tefla.
Það vitum við núna, að einhverju leyti.
Það varð þó ekki á annan veg skilið en svo, að yrðu
þær að veruleika, þá myndi Pútín forseti sitja sveitt-
ur og skjálfandi í áfalli, einn við lengsta borðið í
Kreml og biðja allar góðar vættir, sem hann hefur
samband við og eru ekki endilega margar, að fyrir-
gefa sér og hætta svo við allt sitt brall. En svo reynd-
ist efnahagslegi refsivöndurinn, þegar hann loks birt-
ist, vera harla tætingslegur og órafjarlægur því að
líkjast þeim sem hafði verið veifað ósýnilegum vikum
saman.
En eftir reglunni um að betra sé að veifa röngu tré
en öngvu hefur hálmstráinu eina verið veifað ótt og
títt og almenningur beðinn um að láta sem hann taki
þetta allt alvarlega. Þar sem undirtektir eru rýrar er
þrautalendingin sú að hafa uppi góð orð um að „síðar“
muni koma refsiábót! Og þá megi Pútín fara að passa
sig og panta enn lengra borð.
Og þó að digurbarkalega hafi verið talað í kynningu
valdhafa, segir Ambrose Evans-Pritchard um að-
gerðirnar ógurlegu, sem dynja skuli miskunnarlaust
á Rússlandi, að gagnsemi þeirra velti ekki á úthaldi
þess hýdda.
Látið sé eins og að brotpunktur verkjaþröskuld-
arins snúist um Rússa. Hversu lengi þeir muni þola
þessar „efnahagshýðingar“. Hvar sé þeirra síðasti
þröskuldur tjóns og verkja. „Mín ágiskun er sú,“ bæt-
ir Pritchard við, „að rússneski virkisveggurinn muni
halda mun betur í þessari keppni um sjálfstraust og
aga og með stóískri ró, heldur en hverflynd og stað-
festulaus evrópsk elíta er fær um.“
En hann segir einnig, að auðvitað séu slíkar refs-
ingar „afdráttarlaus og nauðsynleg pólitísk yfirlýs-
ing,“ enda án hennar eða einhvers sambærilegs liti
svo út að verið væri að samþykkja gjörninginn illa
með þögninni. En refsiefnið sem lagt var á borðið
mun hins vegar „ekki hreyfa í neinu við því sem gert
var“.
Hefði mátt benda fyrr á
hin miklu mistök
En næsta ábending höfundarins var sláandi og er
efnislega á þessa leið: Á því augnabliki sem Pútín hef-
ur náð fullri stjórn á Úkraínu verður gasleiðslan
fræga, „Nord Stream 2“, að hreinu aukaatriði. Skipt-
ir leiðslan eiginlega engu eftir það, segir Pritchard og
gerir glögga grein fyrir ástæðum þess. En segir svo:
„Mistökin stóru voru gerð í júní 2015 þegar Þýska-
land ákvað að halda áfram eins og ekkert hefði í skor-
ist með rússnesk/þýska samvinnuverkefnið um gas-
leiðsluna miklu. Þetta var ákveðið aðeins réttu ári
eftir innlimun Krímskaga í Rússland! Þar með var í
rauninni gefin (óafturkræf) yfirlýsing um að fyrsta
„Anschluss“ í Evrópu á þessari öld myndi ekki sæta
refsingu. Og þetta mál var reyndar enn verra, því að
með þessum ákvörðunum væri verið að veita geranda
glæpsins verðlaun fyrir herkænsku hans!“
Ekki hættulegra en Texas
eða Holland
Það hefur lengi verið klisja, sem hver étur eftir öðr-
um, að enginn þurfi að óttast eða taka sérstakt tillit
til Rússlands lengur. Efnahagur þess sé á borð við
fjárhagslegan styrk Texas, eða Hollands og Belgíu
saman. Því er gjarnan bætt við að ráðamenn í Rúss-
landi geti verið digurbarkalegir og montað sig af
fleiri hekturum en önnur lönd ráði fyrir, en þeir séu
dreifðir, blankir og spilltir.
En hin ágætu ríki eða hluti af ríkjasambandi sem
nefnd eru til skýringar á smælkinu Rússlandi eru
ekki með herlið á sínum snærum sem talin eru í
hundruðum þúsunda manna. Þau eru ekki kjarn-
orkuveldi og eru ekki í hópi örfárra ríkja sem hafa
neitunarvald hjá SÞ.
Fjármálaálfar í Reykjavík
gætu lært af Pútín
Það var minnt á það fyrir nokkru í ritstjórnargrein
blaðsins að Rússland hefur komið sér upp gjaldeyr-
isvarasjóði upp á 635 milljarða bandaríkjadala. Ríkið
er því sem næst skuldlaust þegar borið er við þjóðar-
framleiðslu og það enda þótt Rússland, eins og önnur
ríki, sé um það bil að komast út úr tveggja ára veiru-
fári. Mörg ríki heims afsaka skuldasöfnun sína með
því.
Rússland er með afgang á sínum fjárlögum og er
því lítt háð erlendum fjárfestum.
Pritchard nefnir einnig þessa þætti til sögunnar og
segir að þær staðreyndir geri bandarísku refsiað-
gerðirnar gegn útgáfu ríkistryggðra pappíra fremur
að stríðni eða pínulitlum pirringi en að raunverulegu
vandamáli sem bíti. Hvaða aðstoðarmaður í Hvíta
húsinu leyfði sér að senda Biden með þetta lítilræði í
pontu og láta eins og það skipti einhverju máli til eða
frá? Forsetinn gat haldið á hornsíli og kynnt það sem
hval. Þeim sem vilja fá heillega mynd af þessari stöðu
Dapurleg þróun og
fæst sem sýnist
Reykjavíkurbréf25.02.22