Eyjablaðið - 04.03.1939, Page 2

Eyjablaðið - 04.03.1939, Page 2
 Laugardaginn 4. marz 1939 EYJABLAÐIÐ STRÍÖSUGGUR Eftir Högna Sigurðsson. Þcið þykir hlíða, að fylgja úr lilaði með nokkrum orðum kvæði því, er hér birtist, eftir genginn, gamalkunnan Eyjaskeggja — Sigurð hreppstjóra Sigurfinnsson. Eins og kvæðið ber með sér, er það orkt á stríðsárunum svo nefndu, þegar öll vítisöfl ver- aldarinnar leystust úr læðingi og léku lausum hala á láði og legi, í lofti og undirdjúpunum og fóru eldi eyðileggingar og dauða um heimsbygðina og lim- lestu hin dýrustu verðinæti mannkynsins: — samúðina og kærleikann, — sem eru grunn- steinar hins síþráða friðar, mann- anna barna. Andi skáldsin3 leitar vítt of lönd og horfir yfir tryllingslegar, vitstola hamfarir hernaðar- ófreskjunnar og dregur upp, í kvæði sínu, skýrar myndir af óskapnaði eyðileggingarinnar á hispurslausri íslenzku. Skáldinu ‘er ljóst, að á bak við ósköpin stendur auðvald heimsins eins og æfinlega — með fiest menn- ingartækin í höndum og alt sitt yfirstéttar leiguþý. Að skáldið hneikslast á prestunum er — — því miður — ekki að ástæðu- laust. Þeir voru, í alheimsstríð- inu, eins og ot't áður, alt of margir, sem gleymdu köllun sinni, en gegndu kalli yfirstéttar og auðvalds og agiteruðu og hvöttu lýðinn af stólnum — einkum ungu mennina — til að fara á vígvellina — guði til þóknunar og frelsa löðurlandið! Þeir ákölluðu guð og báðu hann um að vernda og styrkja hina ungu menn sinnar þjóðar og koma afiur heila heim, með sigurpálmann í höndum. 0 g samskonar bænar báðu prestar andstæðingaþjóðarinnar hinn eina og sanna guð. Og hvernig mátti þeim guði vera farið, sem átti að uppfylla svo ósamræmar og andstæðar bænir beggja aðila? Og er synir fósturjarðarinnar komu aftur heim, með sigur- pálmann í höndum, lofuðu og vegsörauðu prestarnir guð og blessuðu hina ungu menn í Jesú nafni og létu hringja öllum kirkjuklukkum, guði til lofs og dýrðar, fyrir það, að hann í náð sinni tekið þá fram yfir óvin- ina og gjört þá verðuga bæn- heyrslu sinnar. Um hvað? Að þeir legðu sem mest í auðn og skildu eftir allan fjölda af ekkj- um og munaðarleysingjum hjá hinum kristnu bræðrum þeirra meðal andstöðuþjóðarinnar. Og enn er stríð, áralöng stríð um veröld víða. Bráðnauðsynleg til að viðhalda friðnum og menn- ingunni, eins og þeim dettur svo undursamlega í hug að orða það — Hitler og Mússa — beint upp í opið geðið á lýðræðisþjóðun- um, samtímis og þeir útrýma öllum bókum, sem fjalla um frið og hundelta alla friðarvini og ýmist kvelja, drepa eða fang- elsa þá. Er skamt að minnast eftirmanns Nymöllers, er þeir tóku fastan fyrir það eitt, að prestur sá bað fyrir friðnum af prédikunarstóli kirkjunnar. Já, enn er strið! Annarsvegar sjálfstæðar, frjálsar og friðel3k- andi lýðræðisþjóðir, en vanbúnar að hertækjum og þeirra hluta þjálfun. Iíinsvegar ógurleg inn- rásar hernaðar-stórveldi. En enn þá meiru eiga menn von á. Allir, sem um þessi mál rita, hvort heldur eru leikir eða lærðir — sérfræðingar — kemur saman um, að alheimsstríð hljóti að vera skamt undan. Hvernig því muni hagað, má nokkur marka, eftir framkomu fasista- ríkjanna þriggja — Ítalíu, Þýzka- lands og Japans. Ungu mönnunum f þessum löndum heíir verið innrætt fyrir- litning og hatur á öðrum þjóð- um og afleiðingin er brjálæðis- ofmetnaður og þjóðdramb. Þessar þjóðir hafa nú fengið undirbúningsæfingu undir alls- herjarstríð og haft hundruð þús- unda manna að tilraunadýrum. — Flogið á sprengjuílugum inn yfir varnarlausar borgir, lengst frá vígstöðvuuum, lækkað sig niður að götunum og skotið úr hríðskotabyssum á flýjandi fólk- ið, rétt eins og á fuglahópa. Einkennandi, framar heims- styrjöldinni, fyrir þessi árásar- og landvinningastríð hins fasist- iska, blóðgíruga kvalavalds er þrælmenskan, drápgirnin, grimd- in og siðmenningarleysið. Vestmannaeyjingar! Maður frá FATAPRESSUN REYKJAVÍKUR verður staddur í Vest- mannaeyjum dagana 4.— 9. marz og tekur á móti fötum karla og kvenna til hreinsunar, litunar og pressunar. — Sanngjarnt verð. 1. flokks vinna. Not- ið tækifærið, Býr á Hótel Berg. Halldór Sigurbjörnsson. NB. Hreinsa einnig dömu. og karlmannshatta. Sigurður Sigurfinnssón: Hildarleikur Systurnar Grimd og Heimska og heift, hafa nú völdum náð: manndáðar-verkin mestu keypt, — rneta þær sína bráð; í flónskunnar djúp er fegurð steypt, farsældin eyðing háð; s kö m m er á jarðar-skjöldinn greypt, svo skýrt, ei verður máð. Herprestar glenna ginin rauð, og glápa’ á fórnarlýð, hrópa til guðs að geyma sauð, er gengur úti’ í hríð — að hremma annars heill og brauð, og heyja blóðugt stríð, svo stórbokkar og stjórnar-gauð steypist ei fyrir tíð. Af guðsmynd drambar guðlaus öld, og guðlast drýgir mest; bölvun og neyð er grimdar-gjöld, griðrof og smánin flest, háðung málast á hroka-spjöld, hörmung á sögu klest; drápgirni stolin ver sín völd, í voluðum fórn er bezt. Drottinn uppeldis- þrýtur þrek, þessa heims börnum hjá; stórkostleg eru barna-brek; batna með aldri fá. tsraels börniti sýnast sek; saklausu Kanaan frá; barnagullanna brotin frek bitna ráðstnönnum á. Ohamingjunnar ólgar flóð yfir saklausan lýð, hervaldið sinnar heiftarglóð, hellir of löndin fríð, manndrápa-sveitin æðir óð í elds- og járna-hríð. saklausra streymir sárheitt blóð, á svívirðinga-tíð. Dunar í fjöllum dauða-vein, drambið það verkar alt, þrumar í húsum, kvala kvein kongareykelsið galt; ágirnd þjóðböðla er það mein, sem ólán lætur falt; bölvunar-alda byltist ein svo blessun ríður halt. Löndin frjósömu laugar blóð, litast af dreyra sjór, hörmung og brotin hylur flóð hafsins, þó mörg sé’ stór. Ástríkar meyjar, ektafljóð, ungbörn, og fauskur mjór, höggvin í spað og hent á glóð, hrakin frá skýli’ og kór. Meðaumkun er að mestu svæfð, múgans blóð litar geir; í glötunar-skóla grimdin æfð, grátinn virðir ei meir. Helgidóm engum hlíft af gæfð, heimskan í spilling þreir; með eldi og reyk er ástin kæfð, ættingja fjöldinn deyr. Værðartíminn um vélráð snýst, vígum þá stefnt er að; morðvélin frarn í myrkri brýst, murkar í kvalabað skepnur og menn, þar skömm er hýst, skelfingin fer um hlað. Réttvisin fær ei ránum lýst ranglætið bannar það. Snarkar í glóð þar brennur borg. Brennimerkt lönd um sinn. Með líkum hyljast leið og torg, lemstraðra fölnar kinn. Horfast í augu: heift og sorg, hlátur og skelfingin; deyjanda stunur, ilskuorg, upp fara’ í himininn. I eyðimörk breytast akurlönd, aldingarðar í flög, þorpin í rústir, bruna-bönd') borgum fá reiðarslög. Um loftið ríður ódauns hönd, eitruð, sem hefir lög; grafat- og hauga-gjörð óvönd, geymir minningadrög. Saklaus og fögur sál er hreld á sjónar- og hrottaleik, böðlar þá vaða blóð og eld, og búa mannasteik. Illverka-græðgi ofurseld óskabörn hraust, ósmeik, í gömlu morðvarga-mótin feld, mannskemda hulin reyk. Víkingsandinn í víga-dvöl, valköstum flýgur hjá, svalar hann þorsta blóð og böl, blóðlækjum syndir á, skreytir sig þýfi, skamtar kvöl, þar skola tárin brá. Mannelska flæmd á vonarvöl, völdunum rekin frá. Friðar-glamrið er ftoða ióm, fláræðið undir býr; hrokinn fellir vilhallan dóm, hrekkvísi sem að snýr. Friðarvina hin fögru blóm, frjóvgast er batnar tíð, og lífið þvær af lýðum gróm, og löstum rist er níð. Mannelska er hið mesta l;ós, í mannheim þegar kemst hylur logandi heiftar-ós, hjálpar þeim, raunum lemst; henni ber valdsins heilög rós, þá heimskati sundur kremst; sannleikans harpa syngnr hrós, sigrandi stendur fremst. Mannelska! festu friðar-gjörð, sem frelsi tryggir vörn! er blindni og hroki byrgja svörð, og brotnar hervalds-örn. Kúgara heft með kjörin hörð og kvalráið ilskugjörn. Með Ijósi’ af himni lýstu jörð, og leið úr villu börn. 1) Bönd = goð.

x

Eyjablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.