Editiones Arnamagnæanæ. Series B - 01.06.1981, Side 33
Fúsintes kvœði
19
1. Úti í miðjum garðinum hann agslar sín skinn, hann
Fúsentes,
þá gekk hann í höllina inn fyrir konginn Kes:
Heilir og sælir kongrinn Kes!
Skafala (Safala?)1 kongrinn sendi yður orð og góðar gáfur,
hann vill yðar dóttur fá og frú skal kaupa friða.
Hafið þér sagt móðurinni til, henni Gunnhildes?
Svo skal gjört, kvað hann Fúsentes.
2. Úti í miðjum garðinum hann agslar sín skinn hann
Fúsentes,
þá gekk hann í höllina inn fyrir Gunnhildes:
Heilar og sælar Gunnhildes,
Safalakongrinn sendir yður orð og góðar gáfur,
hann vill yðar dóttur fá, og frú skal kaupa friða.
Hafið þér sagt bróðurnum til, honum Langintes?
Svo skal gjört, kvað hann Fúsentes.
3. Úti í miðjum garðinum hann agslar sín skinn, hann
Fúsentes,
þá gekk hann í höllina inn fyrir Langintes.
Heilir og sælir Langintes!
Safalakongurinn sendir yður orð og góðar gáfur,
hann vill yðar systur fá, og frú skal kaupa fríða -
Hafið þér sagt systurinni til, henni Ragnhildes?
Svo skal gjört, kvað hann Fúsentes.
4. Úti í miðjum garðinum hann agslar sín skinn, hann
Fúsentes,
þá gekk hann í höllina inn fyrir Ragnhildes.
Heilar og sælar Ragnhildes.
Safalakongurinn sendi yður orð og góðar gáfur,
hann vill yðar systur fá, og frú skal kaupa fríða -
Hafið þér sagt henni sjálfri til, henni Matthildes?
Svo skal gjört, kvað hann Fúsentes.
5. Úti í miðjum garðinum hann agslar sín skinn, hann
Fúsentes,
þá gekk hann í höllina inn fyrir Matthildes.
Heilar og sælar Matthildes!
Safalakongurinn sendir yður orð og góðar gáfur,
hann vill yður sjálfa fá, og frú skal kaupa friða -
Hafið þér sagt föðurnum til, honum konginum Kes?
Svo hef eg gjört, kvað Fúsentes -
Hafið þér sagt móðurinni til, henni Gunnhildes?
Svo hef eg gjört, kvað Fúsentes -
1 sál. hskr.