Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Blaðsíða 2

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Blaðsíða 2
Siglfirðingablaðið2 SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ: SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ RITSTJÓRI: Gunnar Trausti Það fordæmalausa ástand sem verið hefur frá því Covid-19 skall á þjóðinni í byrjun mars 2020 hefur haft mikil áhrif á félagið okkar og landsmenn alla. Við héldum myndakvöld í lok feb. 2020 og stuttu síðar skall veirufaraldurinn á. Síðan þá höfum við þurft að fresta öllum atburðum á vegum félagsins s.s. Kaffideginum í maí 2020, aðalfundi sem vera átti í okt. sl. og jólaballinu 2020. Hins vegar héldum við útgáfu blaðsins okkar óbreyttu og vor- og haustblað kom út á réttum tíma á árinu 2020 og vorblaðið 2021 sem þú ert nú með í höndunum. Þegar þetta er skrifað er enn óvissa með bólusetningu landsmanna og hvenær henni lýkur. Til að tryggja að allir geti sótt viðburði á vegum félagsins og tryggja fullkomnar sóttvarnir þá hefur stjórn Siglfirðingafélagsins ákveðið að fresta Kaffideginum 2021 fram á haust. Í haust, nánar tilekið 14.okt. 2021 verða liðin 60 ár frá því félagið var stofnað. Því höfum við ákveðið að halda veglega upp á afmælið og sameina afmælishátíð og Kaffidaginn 2021. Fyrirhugað er að halda hátíðina í Grafarvogskirkju sunnudaginn 17.okt. nk. Unnið er að undirbúningi og stefnt að messu og skemmtiatriðum. Árgangur ´61 mun spila stóran þátt í þessum viðburði. Nánar verður tilkynnt um dagskrána í blaði okkar í haust. Við viljum fara að öllu með ýtrustu gát og hvetjum alla félagsmenn að fara að fyrirmælum sóttvarnaryfirvalda. Þetta ástand mun vonandi klárast á allra næstu misserum og við hittumst glöð og kát í haust í Grafarvogskirkju. Stjórn Siglfirðingafélagsins óskar félagsmönnum gleðilegs sumars. Hittumst heil í haust. F.h. stjórnar, Jónas Skúlason, formaður Forsíða: Ljósmynd Jóhannesar Þórðarsonar af Sigurði Ásgrímssyni, Jóni Finni Jóhannessyni og Rafni Erlendssyni. Réttingaverkstæði Kaffidegi frestað til 17.október. Nánar í haustblaði. Aðalfundur haldinn 28.október. Nánar í haustblaði. Október 28DAGUR TIL AÐ MUNA FIMMTUDAGUR Október 17DAGUR TIL AÐ MUNA SUNNUDAGUR Immortelle blómið. Dýrmætur æskuelixír náttúrunnar Gullna andlitsolían okkar inniheldur nú hið nýja Immortelle ofurseyði sem unnið er úr lífrænum Immortelle blómum sem er náttúrulegur valkostur fyrir retínól. Olían hjálpar sýnilega við að draga úr hrukkum, endurheimtir ljóma húðarinnar og gerir hana silkimjúka. Hver þarf tilbúið innihaldsefni þegar náttúran getur gert enn betur? Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is aeilíf !

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.