Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Apr 2021, Page 4

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Apr 2021, Page 4
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið6 7 börn þeirra Hjálmar og Guðbjörg og um 1960 fluttu þangað Valtýr Jónasson og Flóra Baldvinsdóttir og börn þeirra Gunnlaugur (48-73) Jónas (51), Guðrún (58) og Baldvin (65). Þau bjuggu áður í Túngötu 1 og tilheyrðu þá Brekkunni. Neðan við Leyning við Suðurgötuna var Eggertshúsið, þar sem Eggert Theódórsson bjó með stórri fjölskyldu sinni, eiginkonunni Elsu og dætrunum sem er ekkert annað hægt en að kalla kvenskörunga: Siggu Tótu, Lóu, Kollu, Stínu, Svövu, Sjöbbu og syninum Dúdda. Fyrstu árin bjó í þessu húsi Kolla Eggerts með æskufélaga mínum Magnúsi Sævari Viðarssyni (hann lést í bílslysi 1976). Lóa var gift Guðmundi Gauta Þorláksyni og bjuggu þau á Hávegi 32. Oft á matartíma mátti heyra þær mæðgur kallast á svo að um hverfið glumdi. Elsa í glugga Eggertshússins Suðurgötu 43 og Lóa í eldhúsglugganum á Hávegi 32 og skiptust á upplýsingum hvor væri með hvað í matinn í því hádeginu! Líklega um 200 metrar sem aðskildi og ég sé enn undrunarsvipinn á fólki úr öðrum hverfum sem átti þarna leið á matartíma. Theódór gamli var með rollur á húsi ofan og sunnan við Leyning og ég man að einu sinni varð rosalegt uppistand þegar hann lógaði gömlum hrúti í miðjum barnaskara. Og þá var jesúsað sig á bökkunum! Sennilega hefur Leifi Sigurðar samnýtt túnið með Theódór Pálssyni og svo Eggerti syni hans síðar. Á þessum gatnamótum var verslun; mjólkurbúð og nýlenduvöruverslun og mér er það minnistætt að ég var sendur í búð að kaupa mjólk, sem kom frá Kúabúinu að Hóli. Það var kafaldshríð og fólk norpaði þarna fyrir utan vegna þess að færri komust inn en vildu. Þá allt í einu breytist hljóðið í mannskapnum og það er einhver hreyfing við Hafnarhæðina. Og eins og í ævintýri kemur Sigmar Magnússon út úr kófinu með hestvagn og tvo stóra mjólkubrúsa á sleða. Hann var klakabrynjaður og hesturinn líka. En þarna var mjólkin komin. Eftirminnilegt er á vorin þegar eldri strákar hverfisins, Björgvin Jóns, Ingvar frændi ofl. fóru með flugvélar, sem þeir smíðuðu í handavinnu hjá Birgi Schiöth úr krossvið og gagnsæjum plastpappír, upp á topp og létu þær svífa. Sumar svifu jafnvel yfir fjörðinn. Að alast upp á Siglufirði á sjötta og sjöunda áratug þessarar viðburðaríku síðustu aldar, fæ ég seint þakkað. Að fá að spranga um fjörur og bryggjur nánast eftirlitslaus og detta í sjóinn eða blotna ærlega að minnsta kosti einu sinni í viku eru hlutir sem ég í ellinni vildi ekki hafa misst af. Þó ekki væri til annars en að segja barnabörnunum sögurnar. Rauðkutórarnir gnæfa upp úr í minningunni þegar hugurinn reikar aftur. Þessi stóru mannvirki höfðu að Á Hverfisgötu 29 bjuggu Björn Sigurðsson, skipstjóri og kjarnorkukonan Eiríksína og sonarsonur þeirra Sigurður sprengisérfræðingur Landhelgisgæslunnar, Ásgrímsson, æskufélagi minn þó tvö ár skildu okkur að í aldri. Á neðri hæðinni bjuggu þau Hansína og Sveinn Björnsson. Í næsta húsi nr. 29, sunnan við Sigga bjuggu frændi minn Jóhannes Þórðarson, yfirlögregluþjónn og Halldóra kona hans og þeirra börn Jón Finnur (51-04) og Soffía. Á túninu neðan við hús Jóhannesar á lóðamörkum er tekin hin fræga mynd af Knattspyrnufélaginu Knettinum. Sunnar á Hverfisgötu 32 bjó útgerðarmaðurinn Ágrímur Sigurðsson bróðir Björns skipstjóra og Gerða kona hans. Þau áttu bara stelpur mun eldri. Eiríksínu, Maju, og Dóru. Sunnan við Ása í nr. 34 bjó leikfimikennarinn og skíða- maðurinn Helgi Sveins (margbrotnasti maður Siglu fjarðar en hann hafði brotnað amk. 12 sinnum í skíða stökki), kona hans Steinunn Rögg og dæturnar Geirlaug og Guðný, og á neðri hæðinni Kristján Rögnvaldsson og Lilja Jóelsdóttir með strákana sína þá Matta, Palla og Jóel (seinna komu Binna, Kristján og Guðni). Þar neðan við á krossgötum Hverfisgötu, Suðurgötu og Laugarvegs var Leyningur en þar bjó Rabbi Erlends síðar trommuleikari Gauta, með systur sinni Línu og foreldrunum Gunnu Jónatans og Ella. Jörgensenshúsið stóð á gríðarmikilli lóð norðan við Leyn- ing. Þar bjó Símstöðvarstjórinn Ottó og sonur hans Gunnar Jörgensen og kona hans Freyja Árna og börnin þau Ottó, Árni, Dóra, Guðbjörg og Gunnar. Á miðju Jónstúni seldi afi lóð undir hús (skráð Hávegur 21) þegar ljóst varð að ekkert yrði af byggingu barnaskóla á túninu árið 1947. Kaupendur voru Jóhannes Stefánsson og kona hans Kristín. Þau voru aldrei kölluð annað en Jói og Stína á Túninu. Eina dóttur áttu þau Erlu sem er fötluð og heyrði ég þá sögu að afi hefði selt þeim hjónum lóð á miðju túni til að þau gætu girt dóttur sína af frá hörðum heimi. Upp úr 1960 hófst bygging húsa við syðrihluta Hávegs en Jónstúnið slítur götuna í sundur. Fyrsta húsið Háveg 24 byggði Hólmar Frímannsson sem drukknaði árið 1962 af Elliða SI 1 og foreldrar hans þau Bogga Ben og Frímann tóku við og luku við húsið. Næstu hús sunnan við Háveg 26 byggðu Guðmundur Antonsson (frá Deplum í Fljótum) og kona hans Árný Jóhannsdóttir (úr Fljótum) en þeirra synir voru Gunnar, lögregluþjónn, margfaldur Íslandsmeistari í skíðagöngu og Skarphéðinn, kennari og liðtækur fimleikamaður. Þar sunnan við, Háveg 28, byggði Þórhallur Gauti Þorláksson (frá Gautastöðum í Fljótum), hljómlistarmaður og Erna kona hans (bjuggu áður á Hverfisgötu 19) með börnum sínum tvíburunum Köllu og Guðnýju og skólabróður mínum Hjörleifi Þórhallssyni. Næsta hús Háveg 32 byggðu þeir Guðmundur Gauti Þorláksson bróðir Þórhalls og Trausti Árnason, kennari. Næsta hús þar sunnan við nr. 34 byggði Bogi Sigurbjörnsson ættaður frá Skeiði í Fljótum. Þessi hús gengu undir nafninu nýju húsin og leikirnir í nýbyggingunum innan um grófa steypu og hættuleg steypustyrktarjárnin eru enn í fersku minni. Þarna neðan við er eldra hús þar sem bjuggu Jóel Hjálmarsson og kona hans Arnfríður Kristjánsdóttir og Knattspyrnufélagið Knötturinn. Marteinn Kristjánsson, Árni Jörgensen, Magnús Sævar Viðarsson, Rafn Erlendsson, Gunnar Trausti, Páll Kristjánsson, Jón Finnur Jóhannesson, Soffía Jóhannesdóttir og Sigurður Ásgrímsson. Lína og Rabbi. Knattspyrnufélagið Knötturinn Sem dæmi um barnaskarann í hverfinu var stofnað knattspyrnufélag sem er á frægri mynd Jóhannesar Þórðarsonar. Við öttum nokkra keppnisleiki við Knattspyrnufélagið Vörnina af Brekkunni sem við kölluðum aldrei annað en Kvenfélagið Vörn. Leikirnir voru spilaðir á Jónstúni sem þótti nokkuð óslétt og unnum við þar stórsigur, enda kunnum við á túnið og áttum meðal annars glæsileg mörk með skotum úr brekku niður í mark Brekkugutta. Þeir vildu spila næst á hlutlausum velli og hann fannst uppí Hvann- eyrarskál og endaði sá leikur sem við vorum að tapa með því að Matti Kristjáns spyrnti boltanum niður úr skálinni og alveg niður að Seljalandi! (Sem er í hverfi Reitsins). Tvíburarnir Kalla og Guðný og Hjölli bróðir þeirra að leik að vetrarlagi á Binnu-túni sem þau voru vön að kalla það. Höfundur greinarinnar veifar kátur til mömmu sinnar. Fyrir ofan sést í Hverfisgötu 19 þar sem systkinin bjuggu. Tóti Gautur og Erna. Tóti stofnaði ásamt Guðmundi bróð- ur sínum Gautlandsbræður sem urðu svo að hinum geysi- vinsælu Gautum. Systkinin Silla Sveins og Helgi Sveins oft kennd við Steinaflatir. Silla var einhver hraðasta síldarsöltunarstúlka sem um getur. Helgi var skíðamaður, fimleikamaður og leik- fimikennari.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.