Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Apr 2021, Page 5
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið8 9
úr höndum mér og ég kastaðist í götuna fimm metrum
neðar. Handleggsbrotinn og tognaður á löpp horfði ég á
eftir minni heittelskuðu Jane sem leit ekki einu sinni við
til að sjá Tarsan sinn liggja í skógarrjóðrinu helsærðan
fyrir fótum villidýranna. Það var Þóroddur Guðmundsson
sem kom apabróður á sjúkrahúsið í öruggar hendur Ólafs
læknis þar sem gert var að sárum hans.
Jóhannes Þórðarsson yfir lögregluþjónn var yfirvald hverf-
isins en hafði með ró lyndisframkomu öll tök á óláta-
belgjum. Eitt sinn sátum við nokkrir strákar á lóðinni milli
Hverfisgötu 28 og 32 og spjölluðum um heima og geima.
Með okkur var Gulli köttur svonefndur sem bjó á Hverfis-
götu 21. Stærri strákarnir voru búnir að ná að æsa Gulla
upp með stríðni og einelti. Fyrir ofan var verið að mæla
fyrir „nýju“ húsunum við Háveg. Áður en nokkur gat
blikkað auga var Gulli búinn að ná í rauðröndótt mælispjót
og kasta því í hópinn á kvalara sína. Einhver hrópar
aðvörunaróp og við náum að forða okkur frá spjótinu, sem
fer gegnum hópinn og hafnar í kjallaraglugga Halldóru
og herra Jóhannesar yfirlögregluþjóns. Ekki nóg með það
heldur stakkst spjótið á kaf í þvottavél sem var í gangi og sú
þvoði ei meir í þessu lífi! Þetta var alveg ótrúleg uppákoma
og allur strákaskarinn beið ekki boðanna heldur forðaði sér
á handahlaupum í ofboði.
En Ingvar frændi minn segir mér að Halldóra hafi haft
á orði ef einhver læti urðu: „Eru þetta ekki bara Ingvar
og Ómar sem standa fyrir þessu?“ En Ómar Landmark
var vinur Ingvars og bjó í svokölluðu Landmarkshúsi við
Hafnargötu.
Ritstjóri varpaði þeirri hugmynd fram fyrir nokkru að
svo kallaðir sneiðingar sem voru stígar sem síldarkerlingar
af bökkunum höfðu gert í óteljandi ferðum sínum á plönin
yrðu látnir heita í höfuðið á þessum sómakonum Pöllu-
mestu lokið þætti sínum í síldarævintýrinu mikla. En
öðluðust nýtt hlutverk þegar einhverjum guttanum hug-
kvæmd ist að binda kaðal efst og yst á tórinn þar sem
hann gnæfði út yfir sjóinn. Ný íþrótt varð til á Siglufirði.
Rauðkutórs sveiflan. Eflaust hafa kaðlar áður verið hengdir
á staura og jafnvel aðra tóra á Siglufirði og ég minnist þess
að Heiðar Ástvaldsson sagði mér frá því þegar að hann fór í
sjóinn á kaðli á tór á SR-bryggjunni íklæddur ljósum frakka
með Týrólahatt á hausnum. Í reikulu minni mínu hef ég
óbilaandi trú á að hafa séð myndir af danskennaranum
hugumprúða svamla í grútnum við Ríkisbryggjurnar og
Týrólahatturinn flýtur hjá (ef einhver á slíkar myndir er
það skylda hans við Íslandssöguna að reiða þær fram!). En
í mínum huga ber Rauðkutórskaðallinn af þeim öllum!
Af kaðlasprangi mínu er það að segja að ég man fyrst eftir
mér hangandi í kaðli í staur við Hafnargötuna fyrir neðan
hús Jörgens Hólm og Jóhanns Garibalda. Kaðallinn stóð
það neðarlega í bakkanum að sveiflan varð aldrei stór né
mikil. Þá er mér mjög eftirminnilegur kaðall sem hengdur
hafði verið á staur sem var staðsettur í bakkanum fyrir
neðan Möllershúsið svokallaða og lýsti upp Snorragötuna
milli Roaldsbraggans og pakkhúss KEA-plansins. Þarna var
ég að spranga ásamt vinum mínum tveimur, æsingalaust
og skiptumst við bróðurlega á kaðlinum. Allt í einu sjáum
við útundan okkur hvar mín sætasta skólasystir kemur
með barnavagn labbandi í góða veðrinu.
Þá er eins og við manninn mælt að allt verður vitlaust í
spranginu. Baráttan um hver ætti að vera í Tarsan-sveiflunni
þegar HÚN gengi hjá hófst. Lætin voru svo mikil að við
andskotuðumst allir eina sveiflu á mettíma en tókum þá
eftir því að hún hafði stoppað til að huga að barninu og
ruglaði það okkur í ríminu. Mér fannst það liggja í augum
uppi að ég ætti að vera í sveiflunni þegar hún gengi fram
hjá. Hún var jú skólasystir MÍN. Hinir andskotarnir höfðu
lag á því að vera óratíma í sínum sveiflum að því að mér
fannst. Í þann mund sem hún gengur hjá ríf ég kaðalinn
úr höndum þess er var að koma á kaðlinum, hleyp hann
nánast niður og kasta mér á flugið. Takið sem ég hafði
á hnútunum var ekki mikið þannig að kaðallinn skrapp
Skriðukrakkar. Aftari röð: Magnús Jónsson(´52), Hrafn-
hildur Jónsdóttir(´55), Þorsteinn Guðmundsson (´53),
Gunnar Trausti (´53) Neðri röð: Aðalbergur Snorri - Patti
(´54), Guðmundur Ragnarsson (´53), Hjálmar Jónsson (´50)
og Björgvin Sveinn Jónsson (´51)
Pétur Pálsson, Eggert Theódórsson og Alli tengda-
sonur Eggerts dytta að Versluninni og Mjólkurbúðinni.
Skriðan
19. ágúst 1933, Fífladalagil
Skriður: „Aurskriða féll niður sunnan við Búðarhólana,
ofan við Skriðuhverfið”. Að öllum líkindum hefur hlaupið
úr Fífladalagili.
Tjón/atburðarás: „Klukkan 13 í dag (19.08.) féll aur-
skriða sunnan við Búðarhólana hér í bænum og fram í
sjó. Bar hún aur og möl umhverfis allmörg hús og rann
inn í kjallara á tveimur stöðum og eitt sjóhúsanna neðan
við bakkann, en olli engum stórskemmdum”. „Rigningar
miklar gengu síðastliðna viku (17.-20. ág.) og meiri en
vanalegt er hér á þessum tíma. Kuldi var ekki mikill og
snjóaði aðeins efst í fjöll. Lækir og ár beljuðu fram, og
það sumstaðar þar sem engra lækja var von og þeir aldrei
hafa sést áður. Aurskriða allmikil hljóp niður eftir gilinu
fyrir ofan Skriðuhverfið, og alla leið niður fyrir bakka. Lá
við að hún færi inn í sum af húsunum, er næst voru leið
hennar, stóðu menn viðbúnir er hún fór fram hjá til þess
að stemma stigu fyrir skemmdum af völdum hennar”
Höfundur
í sætri sveiflu
á Rauðkutórs-
kaðlinum.
Grínistarnir og prakkararnir Eggert Theódórsson og Þór-
oddur Guðmundsson þingmaður Sósíalistaflokksins. Þegar
mest gekk á í Sovétríkjunum sálugu gerði Eggert sér að leik
að boða neyðarfund heima hjá Þóroddi og fylgdist svo með
kommunum hraða sér með öndina í hálsinum inn Laugar-
veginn.
Hér kemur Kristján Möller svífandi inn til lendingar á
Rauðkubryggju, yfir þá Magga Viðars og Jóhann Skarp,
Gunnar Trausti og nafni hans Júlíusson, Sturlaugur Krist-
jánsson, bræðurnir Björn og Jón Baldvin Hannessynir ásamt
Guðmundi Konráðssyni og Steini litli bíða átekta.
Svokallaður Sneiðingur ofan við söltunarstöð KEA. Mynd-
aðist í bakkanum þegar síldarkerlingar styttu sér leið í sölt-
un. Ofar sér í Möllershúsið og hús Valgerðar Halldórs, einnig
í hús Árna og Láru Stefáns. Teikning Braga Magnúss onar úr
bókinni Húsin í bænum. Útg. 20. maí 2018.