Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Síða 6

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Síða 6
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið10 11 Haugarnir-Svartiskúrinn Beint niður af Vennastíg var Svartiskúrinn þar sem ungir drengir kynntust fyrst reykingum og sumir fengu forsmekkinn að kynlífi. Þar suðuraf voru öskuhaugarnir; þar sem bál logaði í rusli Siglfirðinga öll mín æskuár. Þetta var mikið ævintýraland og við Steini Villi æskufélagi minn nánast bjuggum þarna lungann af okkar bernskuárum. Þarna var ný höfn í mótun og járnþil mikið hafði verið rekið niður. Við enda þess nærri svartaskúrnum myndaðist mikið sog sem var hættulegt. Þarna var nærri farið illa þegar Guðjón Björnsson, Bubba löggu var nærri drukknaður en snarræði Ásgeirs Björnssonar í Versló sem hljóp á sokkaleistunum og kastaði sér á eftir Gauja og bjargaði. Annar drengur var hætt kominn þarna á sama stað; Gústaf Daníelsson en Siggi Söru, Sæi Bubba og Kiddi Rögnvalds náðu að bjarga honum og blása í hann lífi Knattspyrnufélagið Knötturinn Sem dæmi um barnaskarann í hverfinu var stofnað knattspyrnufélag sem er á frægri mynd Jóhannesar Þórðar sonar. Við öttum nokkra keppnisleiki við Knattspyrnufélagið Vörnina af Brekkunni sem við kölluð- um aldrei annað en Kvenfélagið Vörn. Leikirnir voru spil- aðir á Jónstúni sem þótti nokkuð óslétt og unnum við þar stórsigur, enda kunnum við á túnið og áttum meðal annars glæsileg mörk með skotum úr brekku niður í mark Brekkugutta. Þeir vildu spila næst á hlutlausum velli og hann fannst uppí Hvanneyrarskál og endaði sá leikur sem við vorum að tapa með því að Matti Kristjáns spyrnti boltanum niður úr skálinni og alveg niður að Seljalandi! (Sem er í hverfi Reitsins). Bílstjórarnir Nágranni minn á Suðurgötunni var Árni Björns, vörubílstjóri. Mikið sport var að fá að sitja í hjá Árna þegar hann ók síldartunnum um borð í flutningaskip til útflutnings ástimpluðum Iceland Cut Herring Siglufjordur og fluttu frægð höfuðstaðar síldarinnar um allan heim. Synd var að menn skyldu ekki kveikja á því að skrásetja hinn heimsfræga Siglufjörð og Íslandssíldina sem vörumerki! Annar vörubílstjóri F-10 var í hverfinu Einar Hermannsson, sem gegndi gælunafninu Vippi sakir liðleika og snerpu. Einar bjó á neðri hæð Skarðdalshússins við Hverfisgötu 16. Vilberg pabbi Jonna skíðakappa var einnig vörubílstjóri og svo var það Palli Magg sem bjó sunnan við Prentsmiðjuna og átti vörubíl. Tveir útgerðarmenn voru í hverfinu; Jón í Hrímni og Ási Sigurðar. Ási átti alltaf flotta bíla þar á meðal rússneska stígur og Díustígur og svo nokkru norðar Sillu stígur eftir þeirri allra harðskeyttustu og hröðustu í síldarsöltuninni Sigurlaugu Sveinsdóttur. Að ógleymdum Vennastígnum sem var náttúrulega gata í höfuðið á Vernharði Karlssyni sem bjó við Laugarveg faðir Jóhönnu og Möggu ofl. en þá er ég náttúrulega komin á yfirráða svæði Jónu Möller sem sér um næstu grein um Suðrá bakkakrakka. Merkilegt hvað þessum ættum Konnanna, Venn anna- og Hafliðafólksins tókst að afmarka sér svæði. Svo tengdist þetta fólk innbyrðis og gaman að segja frá þeirri “þjóðsögu” að í einhverjum kosningum talaði einhver komminn óvarlega um eitthvað mál efni sem Konnum, Vennum og Hafliðafólkinu var kært; það skipti engum togum að öll atkvæði klansins færðust yfir á Íhaldið og Björn Jónasson, mágur minn komst inn í bæjarstjórnina! Á vetrum var kafsnjór og ófærð í bænum og krakkar á skíðum, skautum og sleð um. Að alast upp í síldarbænum Siglufirði var himneskt. Frá fjallstoppum og að fjörunni, sem var náttúrulega engin fjara; heldur bryggjur. Bryggjur sem með hækkandi sól urðu auðar fyrstar allra leiksvæða þegar að snjórinn bráðn- aði niðrum gisið timburdekkið. Plönin lágu frá Bakka í norðri að því sem í suðri var í daglegu tali kallað öskuhaugar eða stytt í Haugarnir. Á Haugunum eyddum við Steini Villi vinur minn heilu og hálfu dögunum. Við grömsuðum þarna í drasl inu fundum tómar flöskur, stilltum þeim upp í sandinn og stútuðum þeim á færi með grjóti. Vorum orðnir mjög leiknir í þessu og handsterkir, Skutum fast og vorum hittnir. Mikið var af villiköttum á Haugunum og eitt skiptið fundum við kettlinga. Við fórum með þá heim en þorðum ekki annað en að fara fjallið því að Venni, ættarhöfðinginn var nokkurskonar verndari Hauganna. Einn vetrardag vorum við Steini Villi að leik á Lindar- götunni ofan við heimili Steina. Ber þá að Jón Vídalín nágranna okkar og af honum nokkur kaup staða lykt. Hann spyr hvað við séum að brasa og við segjum honum að við séum nú bara að skjóta snjókúlum í áttina að Sunnubragganum. Þá dregur hann í efa að við getum þetta og segist hann gefa okkur 100 kall ef við náum að hitta braggann. Fjar lægðin hefur verið um 50 metrar. Við stillum okkur upp og skjótum snjóboltum í átt að bragganum. Eftir 5 sekúnd ur eru úrslitin ráðin. Það heyrist brothljóð. Við erum 100 kr. ríkari! Nema hvað Jón Vídalín verður hinn versti og hótar að berja okkur ótuktirnar og síðan að ná að ná í Braga löggu sem bjó þarna steinsnar frá. Við létum okkur hverfa með hraði út í nóttina. Suðrábakkaguttar. Gunnar Trausti, Hjalli Jóns, Doddi Gerðu, Siggi Ásgríms og Steini Kára af Hávegi. Ólafur Ragnarsson verðandi fréttamaður á sjónvarpinu tekur kvikmynd og strákar hópast að. Þám. Eiríkur Baldursson og Þorsteinn V. Pétursson. Venni og Mundi Konn. Horfinn heimur. Svarti skúrinn. Bragginn við Syðsta planið. Stórhýsið Bein fjærst! Mynd frá Steingrími Kristins. Hér má sjá Val Johansen í stökki á trampolini með fimleikaflokki Helga Sveinssonar. Standandi eru Einar Hermanns, Skarphéðinn Guðmunds, Steini Garðars og Nonni Fönsu.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.