Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Síða 10

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Síða 10
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið18 19 Mörg eru nöfnin sem minningin geymir; mæra þau hjarta og sál. Hérna í dag fram í hugana streymir hlýjust þökkin, við ljóðsins mál. Bryggjurnar stórar og brakkarnir risu, birtust svo möstur og tröf. Þar var hann Bakkevig, þar var hann Gunnar og þar var hann Skafti á Nöf. (Sig. Ægisson) Heiðar Ástvaldsson fyrrum formaður Siglfirðinga- félagsins er látinn, 84 ára að aldri. Heiðar ólst upp á Siglufirði í Síldarævintýrinu mikla um miðja síðustu öld. Eftir nám í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar fór hann í Verslunarskóla Íslands og hóf síðar nám í lögfræði við HÍ. Dans og danskennsla varð síðar hans ævistarf og starfrækti hann Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar í 40 ár. Heiðar var eins og farfuglarnir á haustin á Sigló – far fuglarnir fóru en Heiðar kom til að kenna dans og þá voru allir árgangar drifnir í danskennslu í 2-3 vikur - ekkert annað kom til greina þó dansmenntin hafi ekki hentað öllum! Þarna var Heiðar í essinu sínu – krakkarnir drifnir í dans á daginn og stundum foreldrarnir og „fullorðnir krakkar“ á kvöldin. Hann sagði oft að danskennsla ætti að vera skyldufag í grunnskóla – dans væri íþrótt og öllum íþróttum betri; dans væri samstarf og samskipti kynja og dans kenndi fólki að bera virðingu fyrir hverju öðru. Öll kynntumst við honum í dansnámi á Siglufirði og síðar vorum við sum hver með honum í stjórn Siglfirðingafélagsins. Heiðar var formaður Siglfirðinga- félagsins í 10 ár, 1981 – 1991. Hann lét sig mikið varða starfsemi félagsins og hann mætti á allflesta viðburði félagins alveg til hins síðasta. Hann var hvetjandi um starfsemi félagsins – „krakkar mínir – það vantar að halda fleiri böll hjá félaginu“ sagði hann oft hin síðari ár á aðalfundum félagsins og hló við og fannst dansmennt félagsmanna hafa hrakað! Hann vildi ekkert partístand en að menn kæmu saman, dönsuðu og glöddu hvern annan og ekki væri verra að segja gamlar góðar sögur úr Síldarbænum. Þannig var Heiðar, mikill húmoristi, alltaf ungur í anda og alveg einstaklega skemmtilegur vinur og vildi ætíð gleðja aðra. Með Heiðari er genginn ákaflega öflugur og ráðagóður vinur og sannur Siglfirðingur. Að leiðarlokum þökkum við Heiðari fórnfúst starf og ómetanlegt framlag hans til Siglfirðingafélagsins og fyrir framlag hans til Siglufjarðar. Hans verður sárt saknað. Fyrir hönd Siglfirðingafélagsins sendum við fjölskyldu Heiðars innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Heiðars R Ástvaldssonar. Guðmundur Stefán Jónsson Gunnar Trausti Guðbjörnsson Jónas Skúlason Rakel F Björnsdóttir HEIÐAR ÁSTVALDSSON, KVEÐJA Vetrarmein Ragnars Jónassonar er á toppnum í Ástralíu og Kanada á Amazon Kindle! Listasafn Fjallabyggðar opnar heimasíðu. Bergþór Morthens nýkjörinn bæjarlistamaður Fjalla- byggðar opnaði formlega heimasíðu Listasafns Fjalla- byggðar þann 15. apríl sl. Slóðin á heimasíðuna er; listasafn.fjallabyggd.is Ákall - Björgum Siglunesi. Lagt fram erindi Átakshóps til varnar áframhaldandi land- broti á Siglunesi við Siglufjörð, dags. 5. október. Nefndin tekur undir áhyggjur átakshópsins af landbroti á Siglunesi og þeim breytingum sem það gæti haft í för mér sér á sjólag og öldugang í Siglufirði. Einnig er tekið undir áhyggjur af þeim menningarverðmætum sem þar eru í hættu vegna landbrots. Nefndin leggur til að sveitarfélagið, í samvinnu við land- eigendur, sæki um framlag til sjóvarna vegna landbrots til Vegagerðarinnar. Þar sem Fjallabyggð er ekki landeigandi á Siglunesi er það álit nefndarinnar að ekki eigi að falla kostnaður á sveitarfélagið vegna framkvæmdarinnar. (Ályktun Skipulags og umhverfisnefndar Útkoma þessa var 39 síðna skýrsla frá samgönguráðuneytinu sem ber nafnið: Siglufjörður - Mat á öldufari við niðurbroti á Siglunesi. Heildarniðurstaðan er sú, að mati höfundanna, að niður- brot Sigluness hefur mun minni áhrif en búast hefði mátt við. Grundvöllur þessarar niðurstöðu er að áfram verði neðansjávarhryggur með grynningum þar sem Siglunesið er nú. Því þarf að fylgjast með niðurbrotinu, ekki bara ofansjávar heldur ekki síður neðansjávar. Í skýrslunni hafa niðurstöður öldufarsreikninga verið túlkaðar með tilliti til hreyfinga skipa við hafnarkanta. Ekki hefur verið lagt mat á aukna flóðahættu vegna hærri öldu inn á eyrina. Það þarf að gera í sérstakri skoðun. Flóð á Siglufirði. séð út Lækjargötu, Blöndalshúsið áber- andi -1934 – Aðfaranótt fyrsta vetrardags, 27. október, gekk mikið sjávarflóð og brim meðfram öllu Norðurlandi og olli miklu tjóni. Einna mest tjón varð á Siglufirði. Sjávarflóðið var svo mikið að flæddi yfir nærri því alla eyrina. Gekk sjórinn inn í fjölda húsa svo fólk varð að flýja heimili sín í dauðans ofboði,\” segir í Morgunblaðinu 28. október. Svo hátt var flóðið að á Lækjargötunni var vatnið mittisdjúpt. Í sumum húsum varð vatnið svo hátt að rúmstæði flutu upp, segir í Einherja 2. nóvember.” Á Siglunesi tók sjórinn alla báta, sem þar voru, braut nokkur hús og eyðilagði vergögn.” Aðrar heimildir herma að sjór hafi fallið yfir Siglunes og ekki munað miklu að bryti að fullu burt eiðið þar sem nesið er lægst. Þá brotnaði einnig norðan af strönd nessins og vestan af því. Siglunes við Siglufjörð. Lækjargatan 1934. Þá var Siglunesið um 30 m breiðara en nú til dags. SIGLFIRSK FRÉTTASKOT

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.