Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Side 13
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið24 25
Svipmynd:
Sólrún Jónsdóttir
Ég heiti Sólrún Helga Jónsdóttir fædd í apríl 1965. Á tvo
syni, Davíð fæddur 1988 og Jón Ragnar fæddur 1998
pabbi þeirra Sigurður Oddur er systursonur Hjalta og
Svenna Björns, sonur Rósu Björnsdóttur.
Fædd á sjúkrahúsinu á Siglufirði og kom eins og sprengja
í heiminn sagði mamma. Enda er ég oft kölluð skellibjalla
hahaha.
Dóttir Elingunnar Birgisdóttur (Ellý) og Jóns Þorsteins-
sonar.
Ég ólst upp á Siglufirði ásamt 5 öðrum systkinum stórum
og smáum. Kláraði þar grunnskóla og vann með skóla í
Ísafold og fengum við stelpurnar í árganginum að taka þátt
í útskipun eitt árið þar sem alltaf var verið að kalla strákana
í árganginum í vinnu og fengu þeir oft að fara úr skóla
til að vinna og þótti okkur það frekar ósanngjarnt svo við
frekjuðumst til að fá að vera með og gáfum strákunum
ekkert eftir hahaha og í bíóinu hjá Oddi Thor við að
þrífa salinn eftir sýningar
ísklessur um alla rauðu
bekkina og upp um allt svið
sælla minninga og pússa
silfur fyrir Guðrúnu í
fínu penthouse íbúðinni
þeirra Odds í bankahús-
inu. Það var sko spennandi
og mikil upphefð ☺
Við vinkonur nar höfðum
ald rei séð svona mikið af
silfurborð búnaði.
Fór svo að vinna ýmis störf þar s.s. fiskvinnslu í Ísafold
og Ramma, Sigló Síld og í eldhúsinu á Sjúkrahúinu hjá
frú Jóhönnu Venna, Biddu, Gunnu Friðriks, og Mörtu
Það var skemmtilegur tími og margt sem ég lærði þar eins
og að búa til hinn alræmda hræring sem mér fannst þær
vera að pína ofaní gamla fólkið en þær fullyrtu að þeim
þætti það lostæti sem ég var ekki að skilja. (Hrollur) Þeyta
rjóma „rétt“ Jóhanna alltaf svo flott og vel til höfð með
neglurnar óaðfinnanlegar. Bidda svo skemmtileg alltaf,
með sígarettuna og og nikotíntyggjóið í einu hahaha.
Gunna Friðriks eins og amma mín átti í mér hvert bein og
Marta alltaf svo kvikk og yndisleg. Billanum hjá Gumma
og Lilju svo eitthvað sé nefnt. Flutti suður til Reykjavíkur
17 ára og fór að vinna á Veitingastaðnum Horninu.
Flutti svo 19 ára til Vestmannaeyja að vinna á Skútanum
veitingastað, frábær tími.
Stoppaði þar í 2 ár og þá var flökkueðlið komið í mig aftur,
fór aftur í borgina og vann í Skíðaskálanum í Hveradölum
smá tíma og fór svo aftur á Sigló og á þeim tíma kynnist
ég mínum fyrrverandi, föður drengjanna minna, eignast
Davíð og flyt suður þegar hann er nokkra mánaða. Vann
um tíma í Innheimtunni hjá Pósti og síma eins og það hét
þá og fór síðan að vinna á leikskóla og loddi það að mestu
við mig þar til ég fór í HR og tók þar frumgreinanám
og fór að vinna hjá dk hugbúnaði sem móttökuritari og
múltítaskari með meiru. Ég er búin að vera þar síðastliðin
7 ár og líkar mjög vel.
Við fjölskyldan skruppum til Danmerkur í 5 ár í milli-
tíðinni þar sem bóndinn fór í háskólanám og ég að vinna
á skóladagheimili, drengirnir í skóla og leikskóla og allir
að tala dönsku með hreim og alles. Bjuggum í Sönderborg
sem er alveg yndislegur háskólabær og þar var virkilega
gott að búa og eignaðist ég mjög góða vini þar fyrir lífstíð.
Hefði ekki viljað missa af þeirri reynslu.
Í höfuðið á hverjum heitir þú?
Það er svolítið skemmtileg saga. Þegar
mamma var lítil stelpa að leika sér
við Kornsá í Vatnsdal hjá foreldrum
Bigga Run afa þá lék hún sér oft við
„Álfastelpu“ sem hét Sólrún og lét
mömmu lofa sér að ef hún eignaðist
einhverntíman stúlku að skíra hana í
höfuðið á sér ☺
Maki?
Ófundinn! en veit hann er fjallmyndar-
legur (víkingur) mikill húmoristi,
mold ríkur og súper rómantískur er
barngóður og langar í fallhlífastökk
með mér og ferðast um Ítalíu.
Bifreið?
Honda Jazz, rauður sjálfskiptur og
yndislega þýður.
Fyrsti bíllinn?
Mazda 323 rauður.
Fallegasta land sem þú hefur
ferðast til?
Hmmm... erfitt að svara þessu
Ísland er auðvitað alltaf fallegast en
Þýskaland finnst mér mjög fallegt
land, hef ferðast mikið þar en á eftir
að fara til fallegasta landsins Ítalíu
sem ég er búin að vera á leiðinni til
lengi en um leið og Covid er búið er
ég farin. Arrivederci.
Mesta gleði í lífinu?
Drengirnir mínir alltaf.
Mestu vonbrigði í lífinu?
Æiii þau eru nú orðin ansi mörg á
lífsleiðinni en svona nærtækast væri
sennilega þegar ég fótbrotnaði mjög
illa 2018 hægra hnéð alveg í tætlur
og verður aldrei eins. Liðskiptaaðgerð
framundan og stuð, þurfti að hætta í
ræktinni sem ég var komin í svo góða
rútínu með og að ganga á fjöll sem ég
var búin að vera gera í nokkur ár og
naut mjög mikið og til að kóróna það
bý ég á 4 hæð í lyftulausu húsi og að
þurfa hverfa svo lengi frá vinnu sem
ég elska var mjög erfitt. Þetta var ekki
óskastaðan hjá mér en shit happens!
Besta bók?
Þessi er erfið, hef lesið svo margar
góðar bækur en þessi situr alltaf í mér,
Óreiða á striga eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur.
Besta plata?
Ohh það var sko fyrsta platan sem
ég keypti mér og spilaði endalaust,
Rumours með Fleetwood Mac. Ætlaði
sko að verða Stevie Nicks þegar ég
yrði stór en varð svo aldrei stór!
Hvað myndir þú gera ef þú yrðir
ósýnileg einn dag?
Hahahaha góð spurning? Ég mundi
líklegast vera súperhetja og bjarga
öllum vansælum börnum úr vondum
skaðandi aðstæðum svona eins og
Kengúrumamma hoppandi á milli
með stóran kærleikspoka framan á
mér.
Áhugamál?
Gera upp gamla hluti, húsgögn, mála,
skapa ehv nýtt úr gömlu, vera úti í
náttúrunni, ferðast lesa góðar bækur
og glápa á tv ef það telst til áhuga-
mála.
Helsti veikleiki?
Úúú þeir eru nokkrir en sennilega er
það meðvirkni sem hefur haft mikil
og neikvæð áhrif á líf mitt lengi og
er erfitt að losna frá. En hef nú samt
lagast helling.
Helsti kostur?
Þrautseigja/glaðlyndi, hefur fleytt mér
yfir nokkrar hæðirnir í gegnum lífið.
Svo er ég nokkuð góð í að multi-
taska, sem kemur sér mjög vel í mínu
starfi.
Uppáhaldsmatur?
Elska mat og sérstaklega gamla góða
frá mömmu ☺ En einn fiskréttur sem
ég elda stundum og hef með steikta
banana, rosa gott. Elska fisk enda vel
upp alin þar.
Uppáhaldsdrykkur
Kaffi með mjólk (Fjólublár Nespresso)
og vatn
Uppáhaldsfréttamiðill?
Mbl.is
Uppáhaldshljómsveit?
Held ég verði að segja Queen að
öllum öðrum ólöstuðum.
Versti matur?
Hákarl og allur súrsaður matur 🙁
Uppáhaldstónlist?
Er nánast alæta á tónlist enda mikið
músíkfólk í minni ætt. Og við Jóna
Bára æskuvinkona vorum svo heppnar
að fá að laga til í herberginu hans
Finna Hauks stóra bróður hennar
þegar hann fór út á sjó og þar sátum
við margar stundir og hlustuðum á
fullorðins tónlist eins og Dr. Hook,
10CC og allar þessar frábæru hljóm-
sveitir þess tíma. Svo allt sem sonur
minn Jón (Möller) hefur samið og
sungið, hann er ansi lunkinn og hefur
kennt mér að meta rapp og svoleiðis
tónlist sem ég hélt ég mundi aldrei
kunna að meta.
Uppáhaldsíþróttamaður?
Hmmm.. enginn sérstakur í dag en
hélt mikið uppá fimleikadrottninguna
Nadiu Comaneci þegar ég var ung-
lingur.