Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Málið er að við höfum bara staðið okkur ótrúlega vel á síðasta kjörtímabili og vorum bara að uppskera eins og við sáðum til. toti@frettabladid.is „Ég veit ekki hvort er meira mið­ aldra, að kjósa fyrir hádegi eða að missa ökuskírteinið niður í kjör­ kassann með kjörseðlinum. Aftur,“ skrifaði Þórarinn Stefánsson efna­ fræðingur á Twitter á kjördag. Yfirlýsingin þótti að vonum fréttnæm enda þarna efniviður í bráðskemmtilega kosningafrétt ef frásögn Þórarins af því hvernig hann glopraði ökuskírteininu ofan í kjörkassann hefði ekki verið stór­ lega ýkt. „Já, já, þetta var plat og það átti nú að vera vísbending að einhverjum hefði tekist að gera þetta tvisvar,“ segir Þórarinn í samtali við Frétta­ blaðið en lætur þess getið að vissu­ lega hafi hurð skollið nærri hælum. „Þetta var tilraun til fyndni. Ég stóð með seðilinn og ökuskírteinið í hendinni þegar ég áttaði mig á að ég yrði að passa mig á að setja þetta ekki saman niður. Það hefði ekki verið gaman fyrir mig en sagan er náttúrlega góð og ég fór að hugsa með mér hvað það yrði vandræða­ legt og ákvað að búa til brandara úr því.“ Þórarinn bætir við að slík atburðarás sé ekki endilega alveg úr lausu lofti gripin og segist hafa feng­ ið athugasemdir frá í það minnsta tveimur sem hafi verið nærri því að svipta sig ökuskírteininu með þessum hætti á kjörstað. Allir sluppu þessir kjósendur þó með skrekkinn að þessu sinni og enda þótt Þórarinn hafi ýkt óheppni sína á kjörstað hressilega á Twitter má ætla að um ágætishugvekju hafi verið að ræða enda líklegt að fara þyrfti í gegnum flókið ferli til þess að endurheimta persónuskilríki úr kjörkassa. Ekki síst ef slíkt óhapp yrði í Norðvesturkjördæmi og allt eins líklegt að skírteinið myndi hverfa fyrir fullt og allt. n Hélt ökuskírteininu á kjörstað Þórarinn ýkti óheppni sína á kjörstað tals- vert á Twitter. www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 STOCKHOLM Útiarmstóll, dökkgrár eða natur. 86 x 88 x 80 cm. 65.990 kr. STOCKHOLM 3ja sæta útisófi. 212 x 88 x 80 cm. 174.990 kr. STOCKHOLM Sólbekkur. Dökkgrár eða natur. 195 x 60 x 44 cm. 89.990 kr. ASHFIELD Stillanlegur útihægindastóll. 74 x 74 x 102 cm. 96.990 kr. MEDUSA BLUE DANCERS Krús. 990 kr. Diskur Ø20 cm. 1.290 kr. Ø25 cm. 1.490 kr. Kanna með haldi. 990 kr. Skál 14,5 cm. 1.490 kr. Salatakál. Ø25 cm. 3.490 kr. SUMAR Í HÚSGAGNAHÖLLINNI 18 Lífið 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ Hallfríður Hólmgrímsdóttir segist vera sultuslök þótt hún sé orðin síðasti Miðflokks­ móhíkaninn eftir að hafa bjargað því sem bjargað varð hjá flokknum með glæstum sigri í Grindavík. Hún útilokar heldur ekki að á kjörtíma­ bilinu eigi flokknum eftir að berast ferskir vindar í seglin frá síðasta sveitarstjórnar­ víginu. toti@frettabladid.is „Þetta er rosalega sérstakt. Það er óhætt að segja það,“ segir Hallfríður Hólmgrímsdóttir, oddviti Mið­ flokksins í Grindavík, sem orðin er síðasta vígi flokksins í sveitarstjórn eftir að hann fékk 32,45% atkvæða þannig að meirihluti Sjálfstæðis­ flokks og Framsóknarflokks féll. „Ætli það séu ekki þessir sterku leiðtogahæfileikar,“ heldur hún áfram og hlær þegar hún er innt eftir skýringum á þessum árangri hennar hjá f lokknum sem var við það að þurrkast út á landsvísu í kosningum á laugardaginn. Hallfríður, sem alltaf er kölluð Didda, segist sultuslök og hún upp­ lifi sig ekkert sérstaka þegar hún er spurð hvernig tilfinning það sé að vera orðin síðasti Miðf lokks­ móhíkaninn. Sigmundur ánægður „Nei, nei. Málið er að við höfum bara staðið okkur ótrúlega vel á síðasta kjörtímabili og vorum bara að upp­ skera eins og við sáðum til. Ég var náttúrlega eini bæjarfulltrúinn og kannski hef ég bara náð að stimpla mig svona vel inn,“ segir Didda sem er ekki ein lengur þar sem kosninga­ sigurinn skilaði henni og tveimur fulltrúum til í bæjarstjórn. Diddu hafa að sjálfsögðu borist hamingjuóskir frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Mið­ flokksins. „Já, já, já, heldur betur. Hann er ægilega ánægður með mig. Væntanlega,“ segir Didda og hlær dátt. Aðspurð bætir hún svo við að vel geti verið að Grindavík og hið eldheita lið hans þar geti orðið flokknum leiðarljós í nánustu fram­ tíð. „Það er ótrúleg ástríða í liðinu hérna í Grindavík, skal ég segja þér, og kannski næ ég að kenna þeim eitthvað. Það er aldrei að vita,“ segir Didda hlæjandi. Síðasti móhíkaninn „Við fórum bara af stað 2018. Náðum manni inn og svo höfum við bara unnið vel á þessu kjörtímabili. Ég er ekki ein. Við erum fjórtán manna hópur sem er sko gríðarsterkur,“ segir Didda og bætir aðspurð við að ekkert slái á kraftinn í henni þótt segja megi að hún sé síðasti Mið­ flokksmóhíkaninn. „Nei, nei. Nema síður sé. Við erum auðvitað bara að starfa fyrir sam­ félagið okkar og höfum áhuga á mál­ efnunum hér,“ segir hún og nefnir sérstaklega málefni eldri borgara sem eru og hafa verið henni hug­ leikin. „Þau voru til dæmis ástæðan fyrir því að ég ákvað að slá til. Það var mikið búið að vera að reyna að ná mér inn í pólitík undanfarin kjör­ tímabil en ég var ekki til í að stökkva á vagninn fyrr en þarna 2018. Þetta er bara það sem ég brenn fyrir og ég fór í pólitík til þess að laga ákveðin málefni varðandi eldri borgarana. Svo sagði ég alltaf að ég ætlaði bara að vera eitt kjörtímabil en svo varð ég að náttúrlega að taka annað vegna þess að ég var ekki alveg búin að klára þetta. Það er spurning hvort ég verði þarna enn þá eftir sex kjörtímabil að reyna að klára,“ segir Didda og hlær. Ævintýralegt kjörtímabil „Sveitarfélagið er sterkt þannig að nú þarf bara aðeins að bæta í og við vilj­ um sjá þetta aðeins vaxa og dafna. Við erum með ákveðnar áherslur og fólki bara leist vel á þetta og trúir því og treystir að ég sé manneskjan til að leiða þessa vinnu.“ Didda segir að sér hafi orðið vel ágengt hingað til og kjörtímabilið og síðasta ár hafi verið ævintýri líkast. „Það var fínasta samstarf á síðasta ári og við náðum bara ótrú­ lega mörgum stefnumálum okkar í gegn. Þótt ég væri ein í minnihluta. Það segir bara allt sem segja þarf að maður nær sínu fram. Ekkert með einhverjum látum. Það voru alls engin læti sko en ég næ kannski svolítið að lokka þau í lið með mér. Þetta fólk í kringum mig.“ n Slakur Miðflokksmóhíkani Didda tók slag- inn með stæl og engum látum og stendur uppi sem síðasti móhíkani Miðflokksins í sveitarstjórn- um. MYND/AÐSEND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.