Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 15
Við höfum verið í mjög góðu sam- starfi við Píeta samtökin sem senda til okkar ungmenni sem eru undir 18 ára og við komum oft okkar krökkum inn í meðferð hjá Píeta sem við teljum að þurfi þess. Bergið er stuðnings- og ráð- gjafarsetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri þar sem fagfólk sinnir þeim sem þangað leita. Um helmingur unga fólksins sem leitar þangað gerir það því að það finnur fyrir vanlíðan svo sem vegna þess að fjölskyldumeð- limir eru í neyslu eða með geðsjúkdóm eða þá bæði. Nítján prósent þeirra sem leituðu til Bergsins í fyrra voru með ein- hverjar hugsanir eða hugmyndir um sjálfsvíg eða sjálfsskaða og þess vegna er nauðsynlegt að grípa strax í taumana. „Það sem gerir Bergið sérstakt og einstakt í úrræð- um í tengslum við geðheilbrigði ungs fólks er að það er það sem við köllum lágþröskulda úrræði; það þýðir að við leggjum áherslu á að sinna öllum sem til okkar leita,“ segir Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins. „Það eru engin skilyrði fyrir því hvort viðkomandi megi koma nema að viðkomandi sé á til- teknum aldri: 25 ára eða yngri. Við lækkum þröskuldinn með því að hafa þetta ókeypis, það eru ekki biðlistar og húsnæðið er huggulegt og það er gott að koma þangað. Ef fólk á þessum aldri vill tala um eitthvað sem því liggur á hjarta og sem því líður illa yfir og vill tala við einhvern þá getur það skráð sig í gegnum heimasíðu okkar, bergid. is, og komist í sam- band við fagaðila til að hitta og tala við. Þetta gerir úrræði okkar frábrugðin öðrum vegna þess að yfirleitt þarf fólk að uppfylla ein- hvers konar skilyrði fyrir því að fá að vera í ráðgjöf hjá öðrum. Það eru til f leiri svona úrræði víða um heim. Þetta er gert vegna þess að við teljum að það þurfi að lækka þröskuldinn á því að þau mæti og leiti hjálpar og fá fólk inn sem fyrst vegna þess að þá er oft hægt að takast á við ýmiss konar hluti áður en þeir verða að meira vandamáli. Það er kannski grunnhugsunin í Berginu og það er svo mikilvægt að við fáum að halda þessu. Það eru engin skilyrði fyrir því hversu mörg viðtöl viðkomandi fær eða hvað er talað um; það er talað um það sem viðkomandi vill tala um. Við erum ekki með takmark á fjölda viðtala en skjól- stæðingar okkar koma að meðal- tali þrisvar til fimm sinnum. Þeir mega líka koma einu sinni og prófa og ef þeir fíla þetta ekki þá koma þeir bara ekkert aftur.“ Ráðgjafar í Berginu eru allir fagfólk og segir Sigurþóra að flestir séu félagsráðgjafar auk þess sem sálfræðingur og náms- og starfs- ráðgjafi eru á meðal ráðgjafa. „Þetta er fagfólk sem hefur mikla reynslu og þekkingu við að vinna með ungu fólki og í geðheilbrigðis- málum. Þjónustan er mjög góð.“ Stelpur/ungar konur 75 prósent Bergið var opnað árið 2019 og segir Sigurþóra að síðan þá hafi tæplega 1.000 ungmenni sótt um að koma. „Þau eru að nálgast 200 á þessu ári og í fyrra voru þau tæplega 500, við gerum ráð fyrir að þau verði 6-700 á þessu ári. Við tökum viðtöl við 50-60 ungmenni á viku eins og staðan er núna.“ Sigurþóra segir að í fyrra hafi stelpur/ungar konur verið 75 pró- sent þeirra sem leituðu til Bergsins sem þýðir að strákar/ungir menn voru 25 prósent. „Okkur langar til að jafna hlutfallið; við viljum fá strákana til okkar í meira mæli.“ Hvað er það helsta sem unga fólkinu liggur á hjarta? „Það kemur af ýmsum ástæðum. Bergið er áfallamiðuð þjónusta þannig að við tölum meira um hvað kom fyrir þau heldur en hvað að þeim er. Helmingur af krökkunum sem koma til okkar er krakkar sem eiga foreldra eða systkini sem eru í neyslu eða eru með geðsjúkdóm eða bæði. Það er áhugavert við þennan hóp að 95 prósent af þessu unga fólki eru í skóla eða vinnu. Það er að standa sig. Það er að gera sitt besta en því líður illa. Það upplifir kvíða, finnur fyrir þunglyndi og fjórðungur upplifir einmanaleika. Þetta fólk þarf stuðning en það er seigt og flott og því nær að líða betur með því að fá einhvern til þess að ræða við. Þannig að von okkar er að með starfsemi Bergsins getum við komið í veg fyrir að þetta unga fólk brenni út, detti út úr virkni sinni. Við viljum helst fá það til okkar á meðan svo er svo það geti haldið áfram að vera virkt í lífi sínu.“ Sigurþóra segir að 19 prósent þeirra sem leituðu til Bergsins í fyrra hafi verið með einhverjar hugsanir eða hugmyndir um sjálfs- víg eða sjálfsskaða. „Fagfólk Bergs- ins metur það í viðtölum hversu mikil hættan er og reynir að vinna ákveðið hættumat í viðtalsramma Bergsins. Við höfum verið í mjög góðu samstarfi við Píeta samtökin sem senda til okkar ungmenni sem eru undir 18 ára og við komum oft okkar krökkum inn í meðferð hjá Píeta sem við teljum að þurfi þess. Við erum einnig í góðu samstarfi við BUGL, geðdeild Landspítalans, og heilsugæsluna og flesta þá sem koma að þessum ungmennum.“ n Styðja fólk með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsun Sigurþóra Bergsdóttir er framkvæmdastjóri Bergsins Á Íslandi falla þrír til fimm einstaklingar í mánuði fyrir eigin hendi eða að meðal- tali 40 einstaklingar á ári. Að missa í sjálfsvígi er mikið áfall, og margir eiga um sárt að binda í langan tíma, bæði andlega og líkamlega. Þá eru ótaldir allir sem sitja eftir í sárum án þess beinlínis að missa heilsuna. Árið 2016 fór hópur fólks sem hafði fundið þennan sársauka á eigin skinni að leita leiða til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og berjast gegn þessu meini. Úr varð að Píeta samtökin voru stofnuð. Píeta eru frjáls félagasamtök sem vinna að forvörnum gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Fólk sem á sjálft við þennan vanda að stríða, aðstand- endur þess og þeir sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi geta fengið gjaldfrjáls viðtöl hjá fagaðilum samtakanna. Kjarninn í hugmyndafræði Píeta er að það er alltaf von, þrátt fyrir óbærilegan tilfinningalegan sársauka og löngun til að deyja. Með viðeigandi stuðningi og með- ferð er hægt að vekja nýja von og tilgang með lífinu. Samtökin voru stofnuð að írskri fyrirmynd „Pieta house“ sam- takanna. Þjónustan hérlendis, líkt og á Írlandi, er veitt af þverfag- legu teymi heilbrigðismenntaðs starfsfólks þar sem lagt er upp með að veita aðgengilega þjónustu í hlý- legu og vinalegu umhverfi. Öllum er mætt af virðingu og biðin aldrei lengri en nokkrir dagar. Píeta er nú með starfsstöðvar bæði í Reykjavík og á Akureyri en þjónustar allt landið með fjarvið- tölum. Auk þessa halda sam- tökin úti síma sem er opinn allan sólarhringinn allt árið um kring. Þetta eru burðarstoðir í þjónustu samtakanna en þau vinna líka að markmiðum sínum með því að starfrækja stuðningshópa, fara með ýmiss konar fræðslu í skóla og fyrirtæki, halda erindi á ráð- stefnum og styðja við ýmsa þátta- og kvikmyndagerð. Það hefur sýnt sig að þörfin eftir þessari þjónustu er gríðarleg og ásóknin hefur verið stöðug og sívaxandi. Þannig leituðu rúm- lega þrjú hundruð einstaklingar til samtakanna á fyrsta starfsárinu en rúmlega sjö hundruð í fyrra. Það er alltaf von Hér afhenda Kiwanismenn stóran styrk til samtakanna. MYNDIR/AÐSENDAR Alls hafa tæplega 2.000 manns fengið viðtal hjá samtökunum frá því dyrnar voru opnaðar 2018 sem verður að teljast talsverður fjöldi í jafn fámennu landi eins og Ísland er. Samtökin eru alfarið rekin af styrkjum og hafa Kiwanis sam- tökin stutt dyggilega við starf samtakanna. Án þeirra ríkulega stuðnings, og annarra góðgerðar- samtaka, hefði róður samtakanna verið mun þyngri og standa Píeta samtökin í mikilli þakkarskuld við Kiwanis á Íslandi. Það er von samtakanna að þeim mæti áfram sá mikli stuðningur sem þau hafa notið undanfarin ár svo að hægt verði að halda mikil- vægu starfi samtakanna gangandi áfram. nKiwanismenn hafa styrkt Píeta samtökin og kynnt sér starf þeirra. Píeta er nú með starfsstöðvar bæði í Reykjavík og á Akureyri en þjónustar allt landið með fjarviðtölum. Auk þessa halda samtökin úti síma sem er opinn allan sólarhringinn allt árið um kring. Bergið er stuðnings- og ráðgjafarsetur fyrir fólk sem er 25 ára og yngra. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY 3ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 2022 LYKILL AÐ LÍFI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.