Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 12
DRAUMAEIGNIN BÍÐUR ÞÍN Á SPÁNI Spánn Um áratuga skeið hafa Íslendingar fjárfest í eignum á Spáni og fjölgar íslenskum fasteignaeigendum þar í landi með hverjum mánuðinum. Ástæður fólks geta verið fjölbreytilegar. Á meðan sumir kaupa til þess að nánast flytja til Spánar kaupa aðrir til að vera með annan fótinn reglulega í sól og sumaryl. Ennfremur kaupir fólk til þess að fjárfesta í framtíðareign með það að markmiði að leigja eignina til ferðalanga um nokkuð skeið til að borga niður fjárfestinguna og fullnýta síðan eignina síðar meir. Um þessar mundir er mjög gott kauptækifæri á Spáni því fasteignaverð hefur haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár og spá greinendur því að markaðsvirði fasteigna við strandlengju Spánar muni fara hækkandi á komandi árum. Þá er aðgengi að fjármögnun á hagstæðum kjörum tiltölulega auðsótt með þjónustu reynsluríkra fasteignasala á svæðinu. Torrevieja Flestir hafa heyrt um Torrevieja sem liggur við Costa Blanca stöndina og margir hafa farið þangað í sumarfrí í gegnum árin en hvers vegna sækjast Íslendingar sérstaklega í þetta svæði. „Það eru margar góðar ástæður fyrir því, fyrir utan verðlagið og veðrið þá eru skólar góðir og heilbrigðiskerfið ákaflega gott á svæðinu. Þarna er öll þjónusta til fyrirmyndar, iðandi verslunarlíf og veitingahúsamenningin er fjölbreytt. Svæðið í kringum Torrevieja er einstaklega veðursælt með að meðaltali 320 sólardaga á ári,“ segir Kristján Þórir Hauksson, einn af eigendum Lindar fasteignasölu sem hafið hefur samstarf við Novus Habitat Fasteignir á Spáni. Novus Habitat Kristján Sveinsson og Birna Guðmundsdóttir reka Novus Habitat á Spáni og hafa aðstoðað íslenska fasteignakaupendur á Costa Blanca og Costa Cálida strandlengjunni um áralangt skeið. Novus Habitat sérhæfir sig í sölu nýbygginga á svæðinu og aðstoða Íslendinga við að finna réttu eignina. „Við aðstoðum fólk í öllu ferlinu og ekki síður þegar það er búið að kaupa. Þá hefst svokallað eftirsöluferli þar sem við erum til halds og trausts við hvaðeina sem þarf. Við höfum lagt okkur fram við að velja eignir á skrá frá byggingaraðilum sem við þekkjum vel til og treystum til að vera með allt sitt í lagi. Við bjóðum upp á alla aðstoð við að innrétta og fullbúa eignina húsgögnum og öllu því sem þarf og getum boðið þjónustu frá íslenskum innanhúshönnuði ef kaupandi kýs það,“ segir Kristján hjá Novus Habitat. Mikið er lagt upp úr alhliða þjónustu við íslenska fasteigna- kaupendur með því að sjá um allt sem viðkemur kaupferlinu: allt frá frágangi kaupsamnings, fjármögnun og að koma eigninni í leigu hluta af ári óski þeir þess. Meira að segja aðstoðar Novus Habitat við stofnun og uppbyggingu viðskiptatækifæra á Spáni. Afhending „Þegar kemur að afhendingu eignar sem keypt er hjá okkur fer fagaðili frá Novus Habitat á staðinn og fer yfir eignina til að sjá til þess að allt sé með felldu og eins og um var samið. Ef eitthvað er að vanbúnaði sjáum við til þess að það sé lagfært þannig að allt sé upp á tíu þegar viðskiptavinur okkar tekur við eigninni. Við leggjum öll gögn fram þannig að  viðskiptavinurinn veit  nákvæmlega hver kostnaðurinn er við kaupin frá upphafi, enginn óvæntur kostnaður eða gjöld. Einnig er lögð fram kostnaðaráætlun um árleg útgjöld eftir að kaup eiga sér stað.“ Það að taka fyrsta skrefið í fasteignakaupum á Spáni þarf ekki að vera svo flókið og geta áhugasamir farið í skoðunarferð til Spánar til að skoða mögulegar eignir sem henta þeirra kröfum og væntingum. „Fólk byrjar á að hafa samband við okkur hjá Lind og við förum saman yfir skrefin, hvaða svæði koma helst til greina, hvers konar eign og byrjum að leggja línurnar að skoðunarferð. Novus Habitat tekur svo á móti fólki á Alicante flugvellinum og fylgir því á hótel eða í íbúð þar sem það gistir í þrjár til sjö nætur, allt eftir þörfum hvers og eins,“ segir Kristján hjá Lind. Í dæmigerðri skoðunarferð er byrjað á því að fara í höfuðstöðvar Novus Habitat sem staðsettar eru í Benijófar og farið yfir hvaða eignir eru í boði og lögð drög að því hvaða eignir verða heimsóttar áður en farið er í skoðunarferðir í mismunandi hverfi sem henta hverjum og einum. Ef fólk finnur draumaeignina er aðstoðað við allt kaupferlið, stofnun bankaviðskipta, sótt um spænska kennitölu (N.I.E. númer) og ferlinu fylgt alla leið. Fasteignkynning Novus Habitat og Lind munu vera með opið hús á skrifstofu Lind í Bæjarlind 4, laugardaginn 30. apríl frá kl 12 til 17. Þar verður samstarfið kynnt og sýnt það nýjasta á markaðnum á Spáni, veittar upplýsingar um kaupferlið og allt sem viðkemur fasteignakaupum á Spáni. Einnig verður hægt að bóka einkafundi með Kristjáni, framkvæmdastjóra Novus Habitat dagana 28. og 29. apríl í síma 510-7900 eða á netfangið spann@fastlind.is DREYMIR ÞIG UM FASTEIGN Á SPÁNI? DRAUMAEIGNIN BÍÐUR ÞÍN Á SPÁNI Spánn Um áratuga skeið hafa Íslendingar fjárfest í eignum á Spáni og fjölgar íslenskum fasteignaeigendum þar í landi með hverjum mánuðinum. Ástæður fólks geta verið fjölbreytilegar. Á meðan sumir kaupa til þess að nánast flytja til Spánar kaupa aðrir til að vera með annan fótinn reglulega í sól og sumaryl. Ennfremur kaupir fólk til þess að fjárfesta í framtíðareign með það að markmiði að leigja eignina til ferðalanga um nokkuð skeið til að borga niður fjárfestinguna og fullnýta síðan eignina síðar meir. Um þessar mundir er mjög gott kauptækifæri á Spáni því fasteignaverð hefur haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár og spá greinendur því að markaðsvirði fasteigna við strandlengju Spánar muni fara hækkandi á komandi árum. Þá er aðgengi að fjármögnun á hagstæðum kjörum tiltölulega auðsótt með þjónustu reynsluríkra fasteignasala á svæðinu. Torrevieja Flestir hafa heyrt um Torrevieja sem liggur við Costa Blanca stöndina og margir hafa farið þangað í sumarfrí í gegnum árin en hvers vegna sækjast Íslendingar sérstaklega í þetta svæði. „Það eru margar góðar ástæður fyrir því, fyrir utan verðlagið og veðrið þá eru skólar góðir og heilbrigðiskerfið ákaflega gott á svæðinu. Þarna er öll þjónusta til fyrirmyndar, iðandi verslunarlíf og veitingahúsamenningin er fjölbreytt. Svæðið í kringum Torrevieja er einstaklega veðursælt með að meðaltali 320 sólardaga á ári,“ segir Kristján Þórir Hauksson, einn af eigendum Lindar fasteignasölu sem hafið hefur samstarf við Novus Habitat Fasteignir á Spáni. Novus Habitat Kristján Sveinsson og Birna Guðmundsdóttir reka Novus Habitat á Spáni og hafa aðstoðað íslenska fasteignakaupendur á Costa Blanca og Costa Cálida strandlengjunni um áralangt skeið. Novus Habitat sérhæfir sig í sölu nýbygginga á svæðinu og aðstoða Íslendinga við að finna réttu eignina. „Við aðstoðum fólk í öllu ferlinu og ekki síður þegar það er búið að kaupa. Þá hefst svokallað eftirsöluferli þar sem við erum til halds og trausts við hvaðeina sem þarf. Við höfum lagt okkur fram við að velja eignir á skrá frá byggingaraðilum sem við þekkjum vel til og treystum til að vera með allt sitt í lagi. Við bjóðum upp á alla aðstoð við að innrétta og fullbúa eignina húsgögnum og öllu því sem þarf og getum boðið þjónustu frá íslenskum innanhúshönnuði ef kaupandi kýs það,“ segir Kristján hjá Novus Habitat. Mikið er lagt upp úr alhliða þjónustu við íslenska fasteigna- kaupendur með því að sjá um allt sem viðkemur kaupferlinu: allt frá frágangi kaupsamnings, fjármögnun og að koma eigninni í leigu hluta af ári óski þeir þess. Meira að segja aðstoðar Novus Habitat við stofnun og uppbyggingu viðskiptatækifæra á Spáni. Afhending „Þegar kemur að afhendingu eignar sem keypt er hjá okkur fer fagaðili frá Novus Habitat á staðinn og fer yfir eignina til að sjá til þess að allt sé með felldu og eins og um var samið. Ef eitthvað er að vanbúnaði sjáum við til þess að það sé lagfært þannig að allt sé upp á tíu þegar viðskiptavinur okkar tekur við eigninni. Við leggjum öll gögn fram þannig að  viðskiptavinurinn veit  nákvæmlega hver kostnaðurinn er við kaupin frá upphafi, enginn óvæntur kostnaður eða gjöld. Einnig er lögð fram kostnaðaráætlun um árleg útgjöld eftir að kaup eiga sér stað.“ Það að taka fyrsta skrefið í fasteignakaupum á Spáni þarf ekki að vera svo flókið og geta áhugasamir farið í skoðunarferð til Spánar til að skoða mögulegar eignir sem henta þeirra kröfum og væntingum. „Fólk byrjar á að hafa samband við okkur hjá Lind og við förum saman yfir skrefin, hvaða svæði koma helst til greina, hvers konar eign og byrjum að leggja línurnar að skoðunarferð. Novus Habitat tekur svo á móti fólki á Alicante flugvellinum og fylgir því á hótel eða í íbúð þar sem það gistir í þrjár til sjö nætur, allt eftir þörfum hvers og eins,“ segir Kristján hjá Lind. Í dæmigerðri skoðunarferð er byrjað á því að fara í höfuðstöðvar Novus Habitat sem staðsettar eru í Benijófar og farið yfir hvaða eignir eru í boði og lögð drög að því hvaða eignir verða heimsóttar áður en farið er í skoðunarferðir í mismunandi hverfi sem henta hverjum og einum. Ef fólk finnur draumaeignina er aðstoðað við allt kaupferlið, stofnun bankaviðskipta, sótt um spænska kennitölu (N.I.E. númer) og ferlinu fylgt alla leið. Fasteignkynning Novus Habitat og Lind munu vera með opið hús á skrifstofu Lind í Bæjarlind 4, laugardaginn 30. apríl frá kl 12 til 17. Þar verður samstarfið kynnt og sýnt það nýjasta á markaðnum á Spáni, veittar upplýsingar um kaupferlið og allt sem viðkemur fasteignakaupum á Spáni. Einnig verður hægt að bóka einkafundi með Kristjáni, framkvæmdastjóra Novus Habitat dagana 28. og 29. apríl í síma 510-7900 eða á netfangið spann@fastlind.is DREYMIR ÞIG UM FASTEIGN Á SPÁNI?FASTEIGN Á PÁNI? NOVUS HABITAT býður heildarlausnir fyrir kaupendur fasteigna á Spáni með sérhæfingu í sölu nýbygginga á Costa Blanca og Costa Cálida svæðunum. Við höfum um áralangt skeið séð um fasteignakaup Íslendinga á Spáni. Við finnum réttu eignina, sjáum um allt sem viðkemur kaupferlinu, aðstoðum við innbú eigna og hjálpum kaupendum við að koma eign sinni í leigu hluta af ári, óski þeir þess. Auk þess aðstoðum við kaupendur við stofnun og uppbyggingu viðskiptatækifæra á Spáni. OPIÐ HÚS Á LIND FASTEIGNASÖLU Á LAUGARDAG Fasteignakynning Novus Habitat á Lind fasteignasölu Bæjarlind 14 laugardaginn 30. apríl frá kl. 12 til 17 þar sem kynntar verða nýbyggingar á Costa Blanca og Costa Cálida svæðunum. Einnig er hægt að bóka einkafundi dagana 28. og 29. júní í síma 510 7900. HEILDARLAUSNIR FYRIR KAUPENDUR Við sérhæfum okkur í sölu nýbygginga á Costa Blanca og Costa Cálida svæðunum frá virtustu byggingarfélögum Spánar. Áhersla okkar er fyrst og fremst á persónulega þjónustu við kaupendur okkar í kaupferlinu og eftirfylgni eftir sölu. Við erum hér fyrir þig! Aðstoðum við að koma eignum í leiguferli hjá vönduðum leigumiðlum óski kaupendur þess að leigja eign sína hluta af ári. Við sjáum um endursölu eigna sem keyptar eru hjá okkur. Hagstæð kjör á innbúi, búnaði og heimilstækjum fyrir eignir keyptar hjá okkur. Við aðstoðum við stofnun fyrirtækja og starfssemi kaupenda. Skipulagðar skoðunarferðir þar sem fólk í kauphugleiðingum getur mátað sig í fjölbreyttri flóru eigna. EN D U R S A L A V IÐSK IP TAT Æ KIF Æ R I L EIG A Þ J Ó N U STA SKOÐ U N A R F ERÐIR E IG N IR ÁV IN N I N GUR novushabitat.es DREYMIR ÞIG UM FASTEIGN Á SPÁNI? „Ég fékk bara hugljómun einn daginn; að selja Íslendingum spænskar draumaeignir í gegnum Lind fasteignasölu. Mér þótti tímabært að færa þessi fasteigna- viðskipti heim, svo að landsmenn gætu labbað inn á hefðbundna, íslenska fasteignasölu í okkar stærðarflokki, sem fylgir bæði reynsla, traust og öryggi. Það eru nefnilega ekki allir sem treysta sér í fasteignakaup erlendis eða til að fara utan að ganga frá kaupunum, heldur vilja styrka leiðsögn fast- eignasala hér heima sem sjá um málið frá A til Ö, og í samstarfi við jafn reynda fasteignasala ytra, eins og Kristján Sveinsson á Spáni,“ segir Kristján Þórir Hauksson, einn eigenda fasteignasölunnar Lindar. Í framhaldinu hringdi Kristján Þórir í nafna sinn Kristján Sveins- son sem um árabil hefur rekið fasteignasöluna Novus Habitat á Spáni með góðum árangri. „Mér leist strax vel á nafna minn og það s ann stendur fyrir á Spáni, en Kristján hefur einmitt aðstoðað íslenska fasteignakaup- endur á C sta Blanca og C sta Cálida strandlengjunni um ára- langt skeið. Novus Habitat sérhæfir sig í sölu nýbygginga á svæðinu og aðstoðar Íslendinga við að finna rétt eignin ,“ upplýsir Kris ján Þórir á Lindum sem er ein þriggja stærstu fa teig asalna landsins. „Það gefur Lind mikla vigt að hafa nú bætt við sig sölu á fast- eignum á Spáni. Eftirspurnin er mikil og margir taka því fagnandi að geta gengið frá formsatriðum hér heima. Við héldum sölusýn- ingu í lok apríl sem margir sóttu og nú þegar hafa margir skráð sig í skoðunarferðir til Spánar, þar sem Kristján tekur á móti þeim. Við erum himinlifandi með samstarfið við Novus Habitat því við vildum auka og bæta aðgengi fólks í kaup- ferlinu hér heima,“ segir Kristján Þórir sem er nú sjálfur staddur í skoðunarferð á fasteignum með Kristjáni, nafna sínum á Spáni. „Áhugi Íslendinga á spænskum fasteignum er alltaf að aukast og hópurinn að yngjast, allt niður í fertugt og fimmtugt. Fyrsta skrefið heima mikilvægt Kristján Sveinsson hjá Novus Habitat segir samstarfið við Lind til mikilla hagsbóta fyrir íslenska neytendur sem hyggja á fasteigna- kaup á Spáni. „Því fylgja sannkölluð þægindi að geta eki fyrsta skr fið hei a á Íslandi; að geta farið í Lind eftir að hafa fundið draumaei ni á sölu- skránni, sest þar niður í rólegheit- unum og farið yfir hlutina áður en ákvörðun er tekin um að fara út í skoðunarferð. Það gefur þessu samstarfi mesta vægið,“ segir Kristján sem verið hefur búsettur á Torrivieja-svæðinu síðan 2016. „Það er einfaldlega æðislegt líf að búa hér á Spáni og enginn á leiðinni til baka. Áhugi Íslendinga á því að kaupa sér fasteign á Spáni hefur aukist gríðarlega og það er greinilega uppsöfnuð þörf eftir tvö ströng Covid-ár. Það er mikil sala og að undanförnu hafa tveggja til þriggja herbergja íbúðir í fjölbýlis- húsum með sundlaugakjarna verið vinsælastar, sem og minni sérbýli,“ greinir Kristján frá. Þegar Kristján og Birna Guð- mundsdóttir, eiginkona hans, stofnuðu Novus Habitat settu þau sér strax markmið um að eiga sam- starfsaðila í f leiri löndum. „Við eigum þegar í samstarfi við fasteignasölur í Belgíu, Frakk- landi og Hollandi og gerum nú eins á Íslandi. Við fáum styrk frá Lind sem eru fagmenn fram í fingurgóma og finnum strax fyrir miklum áhuga og þunga frá þeim. Fólk kann því vel að þessar fast- eignasölur sé í samstarfi beggja v gna hafsins og að hægt sé að leita til okkar, hvort sem það er á Íslandi og Spáni. Því fylgir öryggi og traust sem fólk hefur til íslenskrar fasteignasölu sem vandar sig í hví- vetna g fylgir málu eftir heima þar til við tökum við boltanum hér úti,“ segir Kristj sem sækir Íslendinga í fasteignaleit á flug- völlinn í Alicante, fylgir þeim á hótel og flakkar með þá á milli hverfa og eigna næstu fimm til sjö dagana ytra. „Við sjáum um allt sem þarf að gera og allan frágang. Við tökum eftir að undanfarið er fólk að minnka við sig heima og kaupa sér eign erlendis, enda gott að selja á Íslandi um þessar mundir og fasteignasverð hagstætt á Spáni. Verðið hefur haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár og spá greinendur því að markaðsvirði fasteigna við strandlengju Spánar fari hækkandi á komandi árum,“ upplýsir Kristján í Novis Habitat. Hann segir suma kaupa sér eign til að flytja til Spánar á meðan aðrir kaupi til að vera með annan fótinn í sól og sumaryl. „Enn fremur kaupir fólk til að fjárfesta í framtíðareign og leigir eignina um skeið til að borga niður fjárfestinguna og fullnýta eignina síðar meir,“ segir Kristján, og þess má geta að aðgengi að fjármögnun á hagstæðum kjörum er tiltölulega auðsótt með þjónustu reynsluríkra fasteignasala á svæðinu, eins og Novus Habitat. Mæta þörfum hvers og eins Dæmigerð skoðunarferð til Spánar hefst í höfuðstöðvum Novus Habitat í Benijóf r. Þar er farið yfir hvaða fasteignir eru í boði og lögð drög að því hvaða eignir verða heimsóttar áður en fari r í skoð- unarferðir í mismunandi hverfi sem henta hverjum og einum. „Ef fólk finnur draumaeigni a aðstoðum við við allt kaup- ferlið, stofnun ba kaviðskipta, sækjum um spænska kennitölu (N.I.E.-númer) og fylgjum ferlinu alla leið. Að tak fyrsta refið í fasteignakaupum á Spáni þarf því ekki að vera svo flókið og enn hægara verður nú um vik að taka fyrsta skrefið hjá Lind þar sem við byrjum að leggja línurnar að skoðunarferð og mætum þörfum hvers og eins.“ Fasteignasölurnar Lind og Novus Habitat leggja mikið upp úr alhliða þjónustu við íslenska fasteignakaupendur, allt frá frá- gangi kaupsamnings, fjármögnun, að koma eigninni í leigu hluta af ári, sé þess óskað, og meira að segja aðstoðar Novus Habitat við stofnun og uppbyggingu viðskipta- tækifæra á Spáni. „Við leggjum okkur fram um að velja eignir hjá byggingarað- ilum sem við þekkj m vel til og treystum til að vera með allt sitt í lagi. Við bjóðum líka upp á alla aðstoð við að innrétta og fullbúa eignina húsgögnum og getum boð ð þjónustu frá íslenskum innanhússhönnuði ef kaupandi ký þa ,“ upplýsir Kristján hjá Novus Habitat. „Þegar kemur að afhendingu eignar f Novus abitat yfir eignina til að ganga úr skugga um að allt sér með felldu og eins og samið var um. Við leggjum fram öll gögn þannig að viðskipta- vinurinn veit nákvæmlega hver kostnaðurinn er við kaupin frá upphafi, og því er enginn óvæntur kostnaður eða gjöld. Við leggjum einnig fram kostnaðaráætlun um árleg útgjöld eftir að kaup eiga sér stað.“ n Allar nánari upplýsingar má finna á fastlind.is og novushabitat.es Nafnarnir og löggiltu fast- eignasalarnir Kristján Sveins- son og Kristján Þórir Hauksson eru sælir og sáttir með sam- starfið, sem þeir segja til mikilla hagsbóta og þæginda fyrir Íslendinga í leit að fasteignum á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Torrevieja er vinsælasta búsetusvæði Íslendinga á Spáni. MYNDIR/AÐSENDAR Hér má sjá stærsta manngerða lón í Evrópu sem er í Santa Rosalia, umkringt risastórum íbúðakjarna sem er einn sá vinsælasti hjá Novus Habitat. Litlar íbúðir í fjölbýlishúsum og minni séreignir eru vinsælustu eignirnar nú. Áhugi Íslendinga fyrir fasteignum á Spáni hefur aukist gríð- arlega og það er greini- lega uppsöfnuð þörf efti tvö ströng Cov d-á . Kristján S einsson 2 kynningarblað A L LT 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.