Fréttablaðið - 01.06.2022, Síða 4
Í þessari viku, þann 3. júní,
eru 100 dagar frá því að stríð
braust út í Úkraínu. Stór hluti
barna landsins er á flótta og
í það minnsta 262 börn hafa
verið myrt. UNICEF kallar
eftir tafarlausu vopnahléi.
lovisa@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Hundrað dagar eru frá
því að stríðið braust út í Úkraínu. Á
þeim tíma hafa næstum tvö af hverj-
um þremur börnum landsins neyðst
til að f lýja heimili sín, að minnsta
kosti 262 börn hafa verið drepin og
yfir 400 særst alvarlega. Hundruð
skóla og meira en 250 heilsugæslu-
stöðvar hafa eyðilagst í árásunum.
„Þetta eru ömurleg tímamót.
Hundrað dagar af stríði þar sem lífi
milljóna barna hefur verið splundr-
að og heimili og skólar lagðir í rúst.
Börn þurfa vopnahlé, frið og brýna
aðstoð til að vinna úr áföllum
sínum,“ segir Steinunn Jakobsdóttir,
kynningarstjóri UNICEF á Íslandi,
en stofnunin áætlar að fimm millj-
ónir barna þurfi nú á mannúðarað-
stoð að halda, þar af þrjár milljónir
barna innan Úkraínu.
UNICEF hefur frá upphafi stríðs
verið á vettvangi í Úkraínu og hefur
dreift lyfjum og sjúkragögnum til
rúmlega tveggja milljóna einstakl-
inga, tryggt milljónum aðgang að
hreinu vatni og tryggt 610 þúsund
börnum og fjölskyldumeðlimum
þeirra geðheilbrigðisþjónustu og
sálrænan stuðning.
UNICEF hefur einnig sett upp
25 barnvæn svæði (e. Blue dots) á
f lóttaleiðinni frá Úkraínu og til
nágrannaríkjanna, meðal annars í
Rúmeníu, Póllandi, Ítalíu, Búlgaríu,
Moldóvu og Slóvakíu. Þar styður
UNICEF ríkisstjórnir og sveitar-
stjórnir í að bregðast við þeim mikla
fjölda fólks á flótta sem þarf nauð-
synlega þjónustu og vernd. Þetta
felur meðal annars í sér að þjálfa
landamæraverði til að bera kennsl
á fylgdarlaus börn og bregðast við
gruni um mansal, að veita börnum
á f lótta víðtækan stuðning og að
útvega bæði bóluefni og sjúkragögn.
UNICEF krefst þess að virtar séu
alþjóðlegar skuldbindingar um að
vernda börn og það tryggt að hjálp-
arsamtök geti umsvifalaust fengið
fullan aðgang að þeim svæðum þar
sem börn eru í neyð og þurfa hjálp.
Hægt er að styðja við neyðarsöfnun
UNICEF á vefnum, unicef.is.
„Við erum full þakklætis yfir
öllum þeim stuðningi sem almenn-
ingur og fyrirtæki á Íslandi hafa
sýnt í verki. Það hafa verið fjölmarg-
ar skólasafnanir, styrktarsýningar
og tónleikar, börn hafa haldið tom-
bólu og selt listaverk fyrir jafnaldra
sína í Úkraínu, svo dæmi séu tekin.
Þessi mikli stuðningur frá Íslandi
hefur meðal annars nýst til að koma
upp barnvænum svæðum þar sem
börn og fjölskyldur þeirra á f lótta
fá aðstoð, nauðsynlega þjónustu og
ráðgjöf,“ segir Steinunn. n
Þetta eru ömurleg
tímamót. Hundrað
dagar af stríði þar sem
lífi milljóna barna
hefur verið splundrað
og heimili og skólar
lagðir í rúst.
Steinunn
Jakobsdóttir,
kynningarstjóri
UNICEF á Íslandi
Ærslafullur snákur
Hundrað dagar frá upphafi
innrásar Rússa í Úkraínu
Hér má sjá Maxim leika sér í tjaldi á barnvænu svæði fyrir mæður og börn
þeirra í Isaccea á meðan þau bíða eftir rútu á næsta áfangastað. MYND/UNICEF
bth@frettabladid.is
HVALVEIÐAR Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra útilokar ekki
breytingar á hvalveiðum eða að
veiðunum verði hætt.
Gildistími reglugerðar sem er
forsenda þess að hægt sé að stunda
hvalveiðar í ábataskyni innanlands
rennur út á næsta ári.
„Ég mun láta fara fram úttekt á
hversu þjóðhagslega hagkvæmt
þetta er,“ segir Svandís.
Ráðherrann segir að leggja þurfi
mat á hve skynsamlegt sé að halda
hvalveiðum áfram.
„Ég sé rökin ekki blasa við,“ segir
Svandís. n
Ráðherra segir rök
með hvalveiðum
ekki blasa við
Svandís Svavars
dóttir, matvæla
ráðherra
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30
Fréttaumfjöllun fyrir alla.
í opinni dagskrá á virkum dögum
á Hringbraut og frettabladid.is
ser@frettabladid.is
KJARAMÁL „Ráðningarferli hafa
gengið mjög vel og kláruðust mán-
uði fyrr en við gerðum ráð fyrir,“
segir Sólveig Anna Jónsdóttir, for-
maður Eflingar, sem auglýsti eftir
tuttugu starfsmönnum á skrifstofu
félagsins í apríl eftir umtalaðar upp-
sagnir á fyrra starfsfólki.
Í tilkynningu frá Eflingu segir að
nýráðnir starfsmenn gangi í fjöl-
breytt störf við þjónustu, í vinnurétt-
indum, í fræðslu- og félagsmálum,
en af þeim hafi meira en helmingur
reynslu af störfum fyrir félagið. Með
ráðningunum hafi stórt skref verið
stigið að fullri mönnum skrifstof-
unnar undir nýju skipulagi.
„Það er ánægjulegt hversu stór
hluti nýráðinna starfsmanna kemur
úr hópi eldri starfsmanna sem sóttu
um og hafa reynslu af störfum fyrir
félagið. Vinna við eftirfylgni breyt-
inga og annað uppbyggingarstarf
á skrifstofunni heldur nú áfram af
fullum krafti,“ segir Sólveig Anna
Jónsdóttir. n
Ráðningarferlið
hjá Eflingu sagt
ganga vel
MATVÆLI Jón Bjarki Bentsson, aðal-
hagfræðingur Íslandsbanka, segir
að farið sé að bera á skorti á matvör-
um víðs vegar í heiminum, einkum
á kornvörum.
Stríðið í Úkraínu hafi hellt olíu á
eldinn en farið var að bera á skorti
á matvælum áður en sú staða kom
upp.
„Horfurnar eru vægast sagt tví-
sýnar. Vissulega hafa þær versnað
eftir innrás Rússa í Úkraínu þar sem
bæði löndin eru stórir útflytjendur
á hveiti, matarolíu og aðföngum
til matvælaframleiðslu,“ segir Jón
Bjarki. Fátækari þjóðir muni finna
mest fyrir þessu.
Jón Bjarki bætir við að fyrir inn-
rás Rússa inn í Úkraínu hafi verið
uppi áhyggjur af matvælafram-
leiðslu og framboð á heimsvísu, sér
í lagi á hveiti. SJÁ MARKAÐINN SÍÐU 8
Farið að bera á
skorti á matvörum
Hælisleitendur og innflytjendur æfa fyrir Snák, samstarfsverkefni Rauða krossins og Borgarleikhússins. SJÁ SÍÐU 12 FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 Fréttir 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ