Fréttablaðið - 01.06.2022, Side 10

Fréttablaðið - 01.06.2022, Side 10
Þetta kann að hafa áhrif hér og við erum þegar farin að sjá innflutt matvæli hækka í verði. Jón Bjarki Bentsson, aðal- hagfræðingur Íslandsbanka Fyrirtækin sækja í borgirnar Heimsferðir sérhæfa sig í ferðum fyrir hópa en Margrét segir að borgarferðir séu gífurlega vinsælar meðal fyrirtækja. „Við fáum mikið af bókunum frá fyrirtækjum í tengslum við árshátíðir en fyrirtækin hafa ekkert komist út undanfarin þrjú ár. Þannig að það er allt að fara af stað aftur. Vinsælustu borgirnar í slíkum ferðum eru Verona, Róm, Ljubljana, Prag, Búdapest, Zagreb, Porto og Lissabon.“ Stjórnendur ferðaskrifstofa eru bjartsýnir á að bókanir færist fljótlega í sama horf og þær voru fyrir faraldur. Þeir segja að sólarferðir njóti mik- illa vinsælda meðal Íslendinga en þó séu borgarferðir að sækja í sig veðrið. magdalena@frettabladid.is Þórunn Reynisdóttir, framkvæmda- stjóri Úrvals Útsýnar, segir að árið í ár sé fremur sérstakt hvað varðar bókanir Íslendinga á ferðum til útlanda. „Það er mikill dagamunur á bók- unum þannig að ekki er hægt að segja að um sé að ræða venjulegt ár. Við sjáum mismunandi aukningu í bókunum inn á tímabilin sem er ekki eins og á hefðbundnu ári,“ segir Þórunn og bætir við að hún búist við því að árið 2023 verði bókanir á svip- uðum stað og fyrir faraldur. „Þetta er að færast hægt og rólega í sama horf en fer að sjálfsögðu eftir því hver staðan er á áfangastöðun- um. Það er þess vegna mjög erfitt að segja til um hvenær nákvæmlega við verðum komin á sama stað og fyrir faraldur þar sem það er margt sem spilar inn í en ég spái að það verði á næsta ári.“ Margrét Helgadóttir, aðstoðar- framkvæmdastjóri Heimsferða, kveðst vera bjartsýn á að bókanir Íslendinga til útlanda fari að verða jafnmargar og fyrir faraldur. „Það er í raun allt komið af stað aftur. Uppsöfnuð þörf er mikil og margar fjölskyldur á leið í sólina. Það stefnir í að bókanir fari í sama horf og þær voru fyrir faraldur. Það gæti gerst í sumar eða í haust,“ segir Margrét og bætir við að sólar- staðirnir njóti mikilla vinsælda um þessar mundir. „Ég get nefnt Tener- ife, Alicante, Krít, Malaga, Costa del Sol og Almería. Þessir staðir eru gríðarlega vinsælir og síðan má líka nefna Ítalíu en við fljúgum vikulega til Verona. Ítalía er að verða mjög vinsæll áfangastaður enda margir áhugaverðir staðir að skoða og mat- armenningin mikil.“ Þórunn segir jafnframt að sólar- staðirnir séu tvímælalaust vin- sælustu áfangastaðirnir. Ítalía hafi verið mjög vinsæl og að þau bjóði nú upp á vikulegar ferðir til Verona. Þau hafi líka hafið að bjóða upp á nýjan áfangastað sem er Punta Cana í Dóminíska lýðveldinu, næsta ferð þeirra þangað er þann 25. nóvember næstkomandi. „Sá staður hefur vakið mikla lukku. Við erum að reyna að fara í nýjar áttir þar sem landslagið er rólegt. Við viljum hafa fjölbreytt úrval þar sem fólk virðist vera opið fyrir því að prófa eitthvað nýtt.“ Margrét segir auk þess að vetur- inn hafi verið rólegri en í hefð- bundnu ári en bókanir hafi þó aukist þegar líða tók á veturinn. „Veturinn var rólegri en týpískur vetur fyrir faraldur en fólk var samt að bóka. Síbreytilegar reglur um ferðatakmarkanir reyndust flóknar fyrir suma farþega. En í heildina litið var veturinn góður miðað við aðstæður.“ Margrét bætir við að Heimsferðir hafi bætt við nýjum áfangastöðum á undanförnum misserum. „Þar er hægt að nefna Ítalíu og Zagreb. Síðan er líka nýjung hjá okkur að við höfum verið að fljúga frá landsbyggðinni til áfangastaða, bæði frá Egilsstöðum og Akureyri.“ Þórunn segir að veturinn hafi sýnt að fólk sé að byrja að ferðast aftur en þó sé hægur stígandi. „Við erum búin að opna á skíða- ferðir næsta vetur og er fyrsta f lug okkar til Ítalíu 14. janúar. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á þeim ferðum. Borgarferðir eru mjög vinsælar ásamt ýmsum sér- ferðum sem við erum að bjóða upp á. Viðskiptaferðir eru að aukast þar sem fyrirtæki eru að heimsækja við- skiptavini sína eða samstarfsfélaga. Golfferðir hafa líka verið vinsælar auk ýmissa sérferða í golf á fram- andi slóðir.“ ■ Bjartsýnir á að bókanir færist í sama horf Borgin Verona á Ítalíu er virkilega vinsæl meðal íslenskra ferðamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY magdalena@frettabladid.is  Matvælaskortur í heiminum er áhyggjuefni að mati aðalhagfræð- ings Íslandsbanka. Innrás Rússa í Úkraínu hafi haft slæm áhrif á framboð matvæla en þó var farið að bera á skorti áður en stríðið braust út. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð- ingur Íslandsbanka, segir að farið sé að bera á skorti á matvörum víðs vegar í heiminum, einkum á korn- vörum. Stríðið í Úkraínu hafi hellt olíu á eldinn en farið var að bera á skorti áður en sú staða kom upp. „Horfurnar eru vægast sagt tví- sýnar. Vissulega hafa þær versnað eftir innrás Rússa í Úkraínu þar sem bæði löndin eru stórir útflytjendur á hveiti, matarolíu og aðföngum til matvælaframleiðslu,“ segir Jón Bjarki en bætir við að fyrir stríðið hafi verið uppi áhyggjur af matvæla- framleiðslu og framboði á heims- vísu, sér í lagi á hveiti. „Það hefur ekki farið mikið fyrir þeirri umræðu en staðan var fremur slæm áður en stríðið braust út. Við höfum séð uppskeru með rýrara móti í löndum heims vegna veður- fars. Þannig að það má með sanni segja að stríðið hafi bætt gráu ofan á svart.“ Jón Bjarki segir að það séu fyrst og fremst fátækari þjóðir sem munu koma til með að finna hvað mest fyrir stöðunni sem uppi er. „Ýmiss konar korntegundir eru undirstöðufæða fyrir margar fátæk- ar þjóðir í Norður-Afríku, Mið- Austurlöndum og víðar. Margar þjóðir hafa brugðist við þessu með því að setja hömlur á útf lutning, til dæmis Indland. Það getur orðið til þess að auka enn á vandann hjá þeim löndum sem eru ekki sjálfum sér næg með hveiti.“ Jón Bjarki bætir við að það sé ekki aðeins skortur á matvælum heldur einnig á stoðvörum sem notaðar eru til framleiðslu matvæla. „Það er hætta á skorti á ýmiss konar áburði og skordýraeitri þann- ig að það mun líklega koma til með að hafa neikvæð áhrif á komandi uppskeru. Síðan má einnig nefna að það er skortur á matarolíu en hún er víða mikið notuð til eldunar, sér- staklega í Asíu og Afríku.“ Jón Bjarki segir það vera áhyggju- efni að staðan kunni að vinda upp á sig og gæti orðið verri á seinni helmingi þessa árs. „Við erum ekki enn farin að sjá merki um beinan fæðuskort eða hungursneyð vegna þessara áhrifa en ef verð á hveiti og kornvörum helst jafnhátt og hefur verið munu fátækari lönd á endanum lenda í erfiðleikum með að af la þessara matvæla fyrir þjóðir sínar. Það getur haft ýmislegt í för með sér, í fyrsta lagi er hungursneyð alvarlegur atburður fyrir þær þjóðir sem fyrir því verða en í öðru lagi getur hættan á pólitískum óróa aukist.“ Jón Bjarki segir að ekki sé hægt að útiloka að áhrifa af matarskorti í heiminum muni gæta hér á landi. „Þetta kann að hafa áhrif hér og við erum þegar farin að sjá innflutt matvæli hækka í verði en á móti kemur að við búum að því að vera hrávöruútflytjandi og sér í lagi mat- arútf lytjandi. Verð á útf lutnings- vörum eins og fiski hefur hækkað verulega og að því leyti erum við betur stödd en aðrar þjóðir,“ segir Jón Bjarki og bætir við að margar aðrar þjóðir búi ekki við sama fjár- hagslega svigrúm og við höfum. ■ Segir að skortur á matvælum í heiminum sé áhyggjuefni Margrét Helgadóttir, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Heimsferða Þórunn Reynis- dóttir, fram- kvæmdastjóri Úrvals Útsýnar 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is ÓSKASKRÍN GEFUR SVO MARGT 8 Fréttir 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.