Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.06.2022, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 01.06.2022, Qupperneq 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 1. júní 2022 Eyesland stígur skrefinu lengra Gleraugnaverslun Eyesland býður upp á vandaða og framúrskarandi þjónustu þegar kemur að sjónmælingum og ráðgjöf í verslun. Fjölmörg þekkt vörumerki eru í boði. 2 Sigrún Andersen, framkvæmdastjóri Provision ehf., sem rekur Eyesland gleraugnaverslanir og Provision heildsölu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI John Nettles lék Tom Barnaby frá upphafi til ársins 2011. Hann spjallar um hlutverkið í afmælisþættinum. MYND/ITV elin@frettabladid.is Breska sjónvarpsstöðin ITV heiðraði 25 ára afmæli Midsomer Murders með sérstökum þætti á sunnudag. Fyrsti þátturinn fór í loftið 23. mars 1997 og er einn ástsælasti og langlífasti sakamála- þáttur Bretlands. Þættirnir hafa verið sýndir á RÚV undir nafninu Barnaby ræður gátuna. Í þættinum var rætt við leikara og aðstand- endur þáttanna. Þar á meðal John Nettles sem lék Barnaby frá upphafi til ársins 2011 þegar Neil Dudgeon tók við. Mörgum þykir merkilegt að þættirnir hafi lifað góðu lífi þótt skipt væri um aðalleikara. Í gegnum árin hafa margir af þekkt- ustu leikurum Bretlands komið fram í Midsomer Murders og fæstir komið lifandi frá þeim enda eru morðin í þáttunum komin yfir 500. Meðal þeirra eru Óskarsverð- launaleikkonan Olivia Colman, Henry Cavill sem lék Superman og Orlando Bloom. Sýndir í 200 löndum Midsomer er ekki til í alvörunni en flestar tökur eru í fallegum smábæjum í Oxford- og Bucking- hamhéruðum. Fallegt landslag enskra smábæja setur mikinn svip á þættina. Morðin eru mörg svakaleg, fórnarlömbin deyja í mjúku súkkulaði, í tunnu sem er full af ormum eða sem fuglahræð- ur og allt þar á milli. Hugmynda- flug handritshöfunda virðist óendanlegt. Það er þó aldrei langt í húmorinn sem gerir þessa myrku þætti svo áhugaverða, en þeir eru sýndir í 200 löndum. ■ Barnaby í 25 ár

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.