Fréttablaðið - 01.06.2022, Síða 18

Fréttablaðið - 01.06.2022, Síða 18
Ég finn líka mun á mér eftir æfingar. Þegar ég hef verið að lyfta þá er líkaminn sneggri að jafna sig. Hulda Rós Við getum dregið úr skorti á vinnu- afli með því að tryggja atvinnuhæfni allra sem vilja vinna. Það þarf að vera samvinnuverkefni vinnustaða og vinnuafls. Sýn fólks á vinnu og for- gangsröðun tíma er að breytast, aukin krafa er um sveigjanleika, fjölskyldu- vænan lífsstíl og velsæld. Fólki lifir lengur og er heilsuhraustara. Það er hröð tækniþróun, alþjóðavæðing og aukin pressa á umhverfis- málin. Það er margt að breytast í umhverfi okkar, sem hefur áhrif á vinnustaði og stjórnun, að því er Herdís Pála stjórnunarráðgjafi segir. „Við þurfum að hafa þessar breytingar í huga þegar kemur að því að undirbúa vinnustaði fyrir framtíðina, til dæmis í gegnum þjálfun og ráðningar, svo við séum ekki sjálf að búa til skort á vinnu­ afli og gjá á vinnumarkaði. Gjá þar sem við á sama tíma upplifum skort á vinnuafli og aukið atvinnuleysi, vegna ónógrar atvinnuhæfni eða fordóma og úreltra hugmynda,“ segir hún. Þjálfun starfsfólks „Við getum dregið úr skorti á vinnuafli með því að tryggja atvinnuhæfni allra sem vilja vinna. Það þarf að vera samvinnu­ verkefni vinnustaða og vinnuafls. Við þurfum að viðhalda og auka atvinnuhæfni með þjálfun, og draga þannig úr áhættunni á skorti á vinnuafli á sama tíma og atvinnuleysi eykst, vegna ónógrar atvinnuhæfni vinnuaflsins,“ segir hún enn fremur og bætir við: „Hluti af þjálfun og breytinga­ stjórnun vinnustaða snýr að aðlögunarhæfni, sem nauðsynleg er fyrir breytingar og undirbúning fyrir framtíðina. Ég er nýlega komin með rétt­ indi til að leggja fyrir vísindalega hannað mat á aðlögunarhæfni, fyrir einstaklinga, teymi og vinnu­ staði í heild. Matið tekur til getu, persónueinkenna og stuðnings í umhverfinu. Niðurstöðurnar geta nýst vel til að meta hvaða þætti þarf helst að styrkja og þjálfa og hvað þarf að styrkja í umhverfinu svo aðlögun og breytingar gangi sem best fyrir sig.“ Ráðningar og fjölbreytileiki Herdís Pála segir að einstaklingar sem hafa atvinnuhæfni, getu og vilja til að vinna en fá ekki vinnu sé annað sem við þurfum að skoða. „Eru fyrirtæki sjálf að ýta undir skort á fólki? Of þröngar skil­ greiningar, hugsanaskekkjur og ósveigjanleiki þegar kemur að því að skilgreina eftirsóknarvert vinnuafl koma oft í veg fyrir að fyrirtæki ráði fólk sem vill vinna og þar með verður til stærri gjá. Hægt er að taka tvö dæmi, líkam­ lega getu og aldur,“ segir hún. „Oft er horft fram hjá fólki með líkamlegar takmarkanir, jafn­ vel þótt það að öðru leyti hafi atvinnuhæfni, menntun, þekk­ ingu, getu og vilja til að vinna. Í störfum þar sem meira reynir á hugræna getu en líkamlega ætti líkamleg geta ekki að vera áhrifa­ þáttur í ráðningum. Þarna er mannauður sem nýta mætti mun betur. Annað dæmi er þegar hæfni, sveigjanleiki, sköpunarhæfni og fleira eru tengd við lífaldur fólks, sú tenging er ekki studd rann­ sóknum og einstaklingar einnig misjafnir. Skoðið fremur hvað viðkomandi hefur verið að læra og gera undanfarið, frekar en hvaða ár viðkomandi er fæddur. Hár starfsaldur yngri ein­ staklings getur dregið meira úr sköpunarhæfni en hærri lífaldur einstaklings sem hefur verið dug­ legur að endurmennta sig og sanna sig í f leiri störfum. Að mínu mati ættum við heilt yfir að hætta að horfa á fólk út frá fyrir fram gefnum ályktunum, staðalímyndum, hugsanavillum, fordómum eða öðru. Við kunnum að þurfa að endur­ skoða stjórnunaraðferðir, mats­ aðferðir, auka sveigjanleika og hugsa margt upp á nýtt, en við höfum öll gott af því. Á okkar litla vinnumarkaði sjáum við fram á skort á vinnuafli, aukum ekki þann skort með eigin fordómum og ósveigjanleika.“ n Búum ekki til óþarfa gjá á vinnumarkaðnum Herdís Pála er stjórnenda- ráðgjafi og rekur sitt eigið fyrirtæki. Hún hefur starfað við mannauðs- mál og stjórnun frá árinu 2000. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Eftir að Hulda hóf að taka inn Astaxanthin frá ICE- HERBS finnur hún mun á heilbrigði húðarinnar. Hún finnur síður fyrir bólgum og eymslum í líkamanum og bætiefnið gefur henni orku og úthald til að takast á við annasama daga. Hulda Rós Hákonardóttir hóf að taka inn Astaxanthin fyrir átta mánuðum síðan eftir að systir hennar, Hrafnhildur, mælti með því. „Hún sagði mér hvað það hefði gert sér gott og það vakti forvitni mína,“ segir Hulda, sem er einn eigandi Ger verslana sem reka Hús­ gagnahöllina, Betra Bak og Dorma. Góð áhrif á systurina „Systir mín lýsti fyrir mér hvað Astaxanthin hafði gert fyrir sig. Hún sagðist finna fyrir minni bólgum og það gæfi henni einnig aukna orku og styrk í æfingum. Sjálf hef ég alltaf æft frekar mikið svo það talaði til mín. Einnig minntist hún á áhrif Astaxanthins á húðina, en þegar maður nálgast fimmtugsaldurinn er alltaf stór plús ef eitthvað getur hægt á öldrun húðarinnar,“ segir Hulda kankvís. Líður almennt betur Hulda segist ekki hafa prófað neitt áður sem eigi að hafa svipaða virkni og Astaxanthin. „Ég hef þó alltaf verið dugleg að taka inn vítamín, og sér í lagi við hækkandi aldur. Eftir að ég byrjaði að taka inn Astaxanthin finn ég mun á bólgum í líkamanum. Áður vaknaði ég oft þrútin, á höndum sérstak­ lega, og var aum í liðunum. Þetta hefur nán­ ast alveg horfið eftir að ég bætti Astaxanthini við daglega rútínu. Mér finnst húðin líka mun betri og þar sem það hefur nú verið ágætis veður undanfarið, finn ég að ég er mun síður viðkvæm fyrir sólinni. Ég finn líka mun á mér eftir æfingar. Þegar ég hef verið að lyfta þá er líkaminn sneggri að jafna sig. Svo á ég stóra fjölskyldu, er með fjóra unglinga og rek líka eigið fyrirtæki. Það er því alltaf nóg að gera hjá mér. Eftir að ég byrjaði að taka inn Astaxanthinið finn ég fyrir aukinni orku til að takast á við öll mín daglegu störf, og meira til. Það tók nokkrar vikur fyrir mig að finna mun á mér, en í dag líður mér ein­ staklega vel. Ég er með meiri orku og úthald og líður bara almennt betur í líkamanum,“ segir Hulda. Magnað bætiefni ICEHERBS bætiefnin eru íslensk framleiðsla og segist Hulda vel kunna að meta það. „Mér finnst það algjörlega frábært að við á Íslandi séum að nýta þau efni sem til eru í náttúrunni okkur til heilsubótar. Það sem er svo magnað við Astaxanthin er hvað það er breiðvirkt. Það er ekki bara gríðarlega öflugt andoxunarefni heldur hefur það margþætt jákvæð áhrif á allan líkamann,“ segir Hulda. Öflugt andoxunarefni Astaxanthin er gríðarlega öflugt andoxunarefni sem hefur marg­ vísleg jákvæð áhrif á líkamann. Áhrif Astaxanthin hafa verið mikið rannsökuð og sýna klínískar rannsóknir fram á stórkostlega eiginleika efnisins. Það veitir vörn gegn geislum sólar og stuðlar að heilbrigði augna, heila og hjarta. Astaxanthin hefur frábæra eiginleika fyrir húðina. Það verndar hana, bætir rakastig hennar, mýkt og dregur úr fínum hrukkum, blettum og freknum. Það hefur styrkjandi virkni fyrir húðina og eykur náttúrulega eigin­ leika hennar til að verjast sólinni og útfjólubláum geislum hennar. Ólíkt sólkremum sem borin eru á húðina, blokkar Astaxanthin ekki UV­geislana, og kemur því ekki í veg fyrir að UVB­geislarnir breytist í D­vítamín í húðinni. Það ver húðina einfaldlega gegn skemmdum. Astaxanthin dregur almennt úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er, hvort sem það er í liðum eða annars staðar. Að auki getur það stuðlað að auknum árangri hjá íþrótta­ fólki. n ICEHERBS fæst í öllum betri matvöruverslunum, apótekum, heilsuvöruverslunum og glæsi- legri vefverslun iceherbs.is. Mögnuð áhrif á húðina, orku og úthald Hulda segist finna mikinn mun á húðinni eftir að hún byrjaði að taka inn Astaxanthin frá ICEHERBS. MYND/AÐSEND 4 kynningarblað A L LT 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.