Fréttablaðið - 02.06.2022, Qupperneq 1
Sláturfiskur til mann-
eldis fer allur ferskur,
slægður, ísaður og
pakkaður beint á
markað.
Bréf sérgreinalæknis dýralækna
1 0 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 2 . J Ú N Í 2 0 2 2
Býr til eigin
vörumerki
Drottningin
fagnar 70 árum
Menning ➤ 30 Lífið ➤ 32
MUNA
dagar!
20%
1
2
3
4
5
6
78
9
10
11
12
13
14 15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
2526
27
28
29
30
VIÐSKIPTI Kári Stefánsson segir
óumdeilt að Íslensk erfðagreining
sé leiðandi í erfðafræði á heimsvísu.
Ekki lengur þurfi hann að sannfæra
neinn um ágæti fyrirtækisins.
Kári hefur gengið í gegnum hæðir
og lægðir á 25 árum sem liðin eru frá
stofnun fyrirtækisins. Um tíma var
það á leið í þrot en var bjargað af
hópi fjárfesta á síðustu stundu.
Í dag vilja öll stærstu lyfjafyrir-
tæki heims stofna líftæknifyrirtæki
sem stunda rannsóknir á borð við
þær sem stundaðar eru í Vatnsmýri.
SJÁ SÍÐU 12
Þarf ekki lengur
að berjast fyrir
fyrirtækinu Sýktur eldislax hér við land fer
á neytendamarkað, en dýra-
læknar Matvælastofnunar gefa
grænt ljós á það, enda berist
veiran úr fiskinum ekki í fólk.
ser@frettabladid.is
NEYTENDUR Allt aðrar reglur virðast
gilda hér á landi um kjöt af riðu-
veiku sauðfé, sem öllu er fargað, en
eldislaxi, sem sýkst hefur í kvíum
af veirusjúkdómum, er slátrað til
manneldis.
Nýverið kom upp veirusýking í
einu eldissvæði í Reyðarfirði, sem í
fyrstu var talið að væri einangruð við
þann fjörð, en svo kom í ljós að sam-
bærileg sýking var líka komin upp í
kvíum í Berufirði.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur þessum sýkta
eldisfiski verið ekið í svokölluðum
meltutönkum til frekari meðferðar
á Djúpavogi og er afurðin seld að
hluta til manneldis, að mestu leyti
til útlanda en líka innanlands.
Fréttablaðið hefur undir höndum
bréf þessa efnis frá sérgreinalækni
dýralækna hjá Matvælastofnun. Þar
segir: „Sláturfiskur til manneldis
fer allur ferskur, slægður, ísaður og
pakkaður beint á markað. Nánast
allur lax úr Reyðarfirði fer á erlend-
an markað, aðallega Bandaríkin en
einnig á Evrópumarkað (s.s. Frakk-
land, Pólland, Holland og Portúgal)
og síðan verður eitthvert lítilræði
eftir á heimamarkaði.“
Fisksjúkdómurinn sem komið
hefur upp á Austfjörðum er svo-
kölluð laxaflensa sem nefnd er blóð-
þorri. Segir í bréfi stofnunarinnar
að til að gæta alls öryggis vegna sýk-
ingarinnar á svæðinu „og koma í veg
fyrir frekari smitdreifingu á svæð-
inu var ákveðið að slátra upp öllum
öðrum laxi á sjókvíaeldissvæðinu“.
Sérgreinalæknir dýralækna hjá
Matvælastofnun segir jafnframt
í bréfi sínu að veiran sé skaðlaus
mönnum og dreifist ekki með
slægðum fiskafurðum og það gildi
um aðrar fiskaveirur. ■
Sýktur eldisfiskur á borð neytenda
Mikill fornleifauppgröftur stendur nú yfir í manngerðum helli á hjáleigunni Langekru við Odda á Rangárvöllum. Samkvæmt Kristborgu Þórsdóttur fornleifafræðingi er hellirinn frá árabilinu 950 til
1100. Hellarnir mynduðu kerfi en eru flestir hrundir. Í þessum helli hafa lífræn efni varðveist ótrúlega vel og sjást heillegar gróðurleifar við og við, sem er talið sjaldgæft. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI