Fréttablaðið - 02.06.2022, Page 2
Viðtökurnar hafa verið
framar vonum.
Tinna Jóhanns-
dóttir, staðar-
haldari í Skógar-
böðunum.
Ekki lengi að snara þann fyrsta
Það tók aðeins átta mínútur að næla í fyrsta laxinn við Urriðafoss í Þjórsá þegar veiðitímabilið á svæðinu hófst í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30
Fréttaumfjöllun fyrir alla.
í opinni dagskrá á virkum dögum
á Hringbraut og frettabladid.is
Hvert baðlónið af öðru er
opnað á Íslandi og það nýjasta
er að finna í skógarkyrrðinni
í botni Eyjafjarðar, þökk
sé jarðgöngunum á næstu
slóðum.
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Skógarböðin eru
heiti á nýjasta baðlóni landsmanna,
en þau voru opnuð um síðustu helgi
í skógarjaðrinum fyrir botni Eyja-
fjarðar, þar sem þjóðvegurinn liggur
út með Vaðlaheiði.
„Viðtökurnar hafa verið framar
vonum,“ segir Tinna Jóhannsdóttir
staðarhaldari og segir gesti baðanna
upplifa það svo sem þeir hverfi um
stund inn í náttúruna, enda lykur
skógur um böðin á þrjá vegu „með
fuglasöng og fossanið“, útskýrir
Tinna og minnist líka á útsýnið „þar
sem Súlur rísa eins og höfuðdjásn í
vestri“.
Skógarböðin eru í landi Ytri-Varð-
gjár í hlíðarfæti Vaðlaheiðar og eru
til komin vegna hitavatnsæðar sem
opnaðist við gröftinn á Vaðlaheiðar-
göngum fyrir réttum sjö árum og
gerði það að verkum um tíma að
óvinnufært var inni í þeim sakir
hita og kófs.
Það voru svo akureyrsku hjónin
Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður
María Hanner sem fengu þá f lugu
í höfuðið fyrir tveimur árum að
nota vatnið úr göngunum í baðlón
skammt þar frá sem heitavatnið
fossar úr heiðinni og hófust fram-
kvæmdir í ágúst í fyrra „og gekk
verkið hratt og smurt fyrir sig“,
segir Tinna og tekur fram að hún sé
aðflutt að sunnan.
Skógarböðin geta tekið á móti
204 gestum í senn, en þau skiptast í
tvær heitar laugar, samtals 600 fer-
metra að flatarmáli, en auk þess er
kaldur pottur og sána á staðnum.
Sjálft baðhúsið er sömuleiðis 600
fermetrar að stærð og þar er veit-
ingastaður og bar sem býður upp á
létta rétti.
„Svo er þyrlupallur norðan við
húsin,“ tekur Tinna fram og býst við
fjölda útlendinga í böðin á næstu
árum, „en líklega verða Íslending-
arnir f leiri fyrsta sumarið,“ bætir
hún við og segir heimamenn einkar
áhugasama um baðstaðinn.
Skógarböðin fyrir botni Eyja-
fjarðar eru komin í hóp að minnsta
kosti tíu jarðbaða af sama tagi,
en eftir að Bláa Lónið var opnað
á Reykjanesskaga árið 1992 hefur
fjöldi álíka baðstaða komið til
sögunnar og má nefna Krauma í
Borgarfirði, Giljaböðin í Húsafelli,
Jarðböðin við Mývatn, Sjóböðin á
Húsavík, Vök við Egilsstaði, Gömlu
laugina á Flúðum, Fontana á Laug-
arvatni, Sky Lagoon í Kópavogi – og
loks núna Skógarböðin í Eyjafirði. n
Nú er hægt að baða sig í
skógarkyrrð Norðurlands
Skógarböðin sjálf státa af tveimur baðlaugum, samtals 600 fermetrum að
stærð, köldum potti og sánu.
Í aðsendri grein í blaðinu í dag legg-
ur Jakob Frímann Magnússon, þing-
maður Flokks fólksins, til að brugð-
ist verði til varnar fyrir almennt
launafólk og viðkvæmustu hópa
samfélagsins vegna vaxtahækkana
Seðlabankans.
Jakob bendir á að mögulegt sé að
láta verðbótaþátt óverðtryggðra
vaxta ekki greiðast á gjalddaga
heldur leggist hann við höfuðstól.
Með þessu megi milda höggið af
vaxtahækkunum tímabundið og
kosturinn við þessa nálgun sé að
lánin haldi að mestu óverðtryggð-
um eiginleikum sínum. SJÁ SÍÐU 18
Milda högg vegna
vaxtahækkana
kristinnpall@frettabladid.is
EGILSSTAÐIR Öldungaráð Múlaþings
gerði athugasemd við fyrirhugaða
vinnslutillögu að nýju íþróttasvæði
á Egilsstöðum þar sem þær áætlanir
séu ekki í samræmi við fyrri skipu-
lagslýsingar sem búið var að taka
fyrir. Með því sé verið að þrengja
verulega að svæði sem hafi verið
ætlað undir frekari starfsemi heil-
brigðisstofnana.
Öldungaráðið hefur áður lýst
yfir áhyggjum vegna fyrirhugaðrar
uppbyggingar íþróttasvæðisins á
kostnað þjónustuíbúða fyrir eldri
borgara vegna vaxandi þarfar á slíku
húsnæði. Samkvæmt nýjustu til-
lögunni eru mörk íþróttasvæðisins
komin að lóð hjúkrunarheimilisins
Dyngju, sem kemur í veg fyrir frekari
uppbyggingu á svæði hjúkrunar-
heimilisins.
Öldungaráðið fór fram á þær
breytingar að gert yrði ráð fyrir íbúð-
um fyrir aldraða á svæðinu og frekari
uppbyggingu hjúkrunarrýmis og
heilbrigðisþjónustu á svæðinu. n
Öldungaráð ósátt
með nýtt skipulag
íþróttasvæðis
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Gistinætur í apríl
ríflega fimmfölduðust á milli ára og
var aukningin fyrst og fremst drifin
áfram af fleiri erlendum ferðamönn-
um, að því er fram kemur í nýjum
tölum Hagstofu Íslands.
Gistinætur á skráðum gististöðum
voru um 459.000 í apríl síðastliðnum
samanborið við 84.900 árið áður.
Gistinætur Íslendinga voru um 28
prósent gistinátta, eða um 127.000,
og erlendra ferðamanna um 332.000,
eða sem nemur 72 prósentum. n
Fimmfalt fleiri
gistinætur í apríl
Öldungaráðið hefur
farið fram á að svæðið
verði nýtt til uppbygg-
ingar íbúða og hjúkr-
unarheimila.
Nóg er að gera á hótelunum í ár.
2 Fréttir 2. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ