Fréttablaðið - 02.06.2022, Page 20
reynt að vera dugleg að taka inn
vítamín en fann ekki blöndu sem
hentaði mér. Skáparnir voru fullir
af vítamínum og ég var hætt að
muna hvers vegna ég keypti þau.
Frá því í febrúar hef ég tekið inn
bætiefnin frá númer eitt og finn
að ég fæ nauðsynlegan bætiefna-
skammt daglega,“ segir Díana.
Jóhann Berg hefur verið
atvinnumaður í fótbolta síðast-
liðin tólf ár og alltaf hugsað vel um
heilsuna og mataræðið. „Bætiefni
eru stór partur af því að hafa heils-
una í lagi. En þrátt fyrir að vera
með fullan skáp af þeim átti ég það
til að gleyma því að taka þau inn,
ýmist öll eða sum. Bætiefnaboxin
hafa því komið sér einstaklega vel
fyrir mig þar sem öll bætiefni sem
ég þarf er að finna í einu bréfi. Því
er auðvelt að muna eftir að taka
þau daglega. Ég ferðast einnig
mikið og það er virkilega hentugt
að geta tekið með sér þann fjölda
bréfa sem þarf fyrir hverja og eina
ferð,“ segir Jóhann.
Einfaldar bætiefnavalið
Einn stærsti kosturinn við bæti-
efnapakkana frá númer eitt er
einfaldleikinn; allt í einum pakka
og ekkert flækjustig. „Öll erum
við ólík og þess vegna settum
við saman sex mismunandi box
fyrir fólk með ólíkar þarfir fyrir
bætiefni. Bætiefnin frá númer eitt
koma í sex handhægum og heild-
stæðum bætiefnaboxum sem eru
sérsniðin fyrir ákveðna heilsufars-
þætti. Hvert bætiefnabox inniheld-
ur 30 dagsskammta í handhægum
umbúðum. Hver dagsskammtur
inniheldur sérvaldar jurtir, víta-
mín, steinefni, fitusýrur, Q10 eða
góðgerla. Enn fremur eru þau valin
með samvirkni í huga. Þau hafa
ekki neikvæð áhrif á virkni hvert
annars í líkamanum heldur stuðla
að hámarksupptöku og nýtingu.
Þú velur einfaldlega pakkann
sem hentar þér hverju sinni og
tekur svo daglegan skammt. Fimm
hylki og töflur sem koma saman
í einu bréfi. Hentugra verður það
ekki. Það er bæði auðveldara að
muna eftir bætiefnunum og svo
þarf heldur ekki að opna mörg
mismunandi pilluglös til að plokka
eitt og eitt úr, jafnvel oft á dag. Þar
sem þau eru sérsniðin fyrir hvern
og einn notanda þá er líka mun
líklegra að bætiefnin hafi tilskilin
áhrif. Auk þess er ólíklegra að inn-
takan gleymist. Þú þarft aldrei að
horfa á eftir stútfullu og útrunnu
pilluglasi í ruslið.“
Gæði ofar öllu
„Við lögðum strax ríka áherslu á
að gæðin yrðu ofar öllu. Því leit-
uðum við til virtra framleiðenda
í Danmörku sem vinna bætiefni
beint úr fæðu. Þeir uppfylla alla
nauðsynlega gæðastaðla og vott-
anir sem og allar okkar kröfur um
gæði, framleiðsluhætti, umhverf-
isvernd og sjálf bærni.“
Innihaldið í númer eitt bæti-
efnunum er þróað af dönskum
jurtalæknum og samsetning
bætiefnanna í boxunum er
úthugsuð út frá rannsóknum og
aldagamalli þekkingu á jurtum
og virkni þeirra og samvirkni.
Bætiefnin eru af hæsta gæðaflokki
hvað varðar hreinleika og virkni,
innihalda staðlað jurtaextrakt og
mjög virka skammta. Skammta-
stærð hvers efnis í bætiefnabox-
unum er hárnákvæmt ákvörðuð
og samsvarar þeim meðferðar-
skömmtum sem jurtalæknar
mæla með.
Vítamín og steinefni á
náttúrulegu formi
„Bætiefni eru misjöfn að gæðum og
búin til á mismunandi hátt. Nær-
ingarefnin eins og þau koma fyrir
í náttúrunni, í mat, nýtast okkur
best. Þess vegna völdum við fram-
leiðanda sem notar vítamín og
steinefni sem eru unnin beint úr
grænmeti, ávöxtum og jurtum til
að tryggja gæði og hámarksvirkni.
Það er hornsteinninn í því sem við
köllum vítamín og steinefni á nátt-
úrulegu formi (e. Food State).
Ímyndum okkur tvo möguleika:
Í öðru dæminu er búið að
einangra tiltekið vítamín, búa til
gerviútgáfu af því á tilraunastofu,
blanda því ef til vill við önnur
sambærileg vítamín og steypa öllu
saman í töflu. Taflan inniheldur
ýmis aukaefni og er húðuð með
enn öðru aukefninu. Oftar en ekki
skilar líkaminn töflunni nánast
heilli út hinum megin vegna þess
að hann nær ekki að brjóta hana
almennilega niður.
Í hinu dæminu tökum við ávexti,
grænmeti og jurtir, vinnum úr því
bætiefnablöndu við ströngustu
gæðakröfur og notum tæknina
til að stilla skammtastærðirnar
rétt af. Afurðin er þurrkuð og sett
í hylki án flestra þeirra aukaefna
sem oftast má finna í bætiefnum.
Líkaminn veit hvað hann á að gera
við svona næringarefni vegna þess
að þau eru alveg eins og þau fyrir-
finnast í náttúrunni.
Hvort ætli nýtist nú betur?
„Að okkar mati er síðarnefndi
kosturinn augljós. Því völdum
við að fara í samstarf með fram-
leiðanda sem er sama sinnis, til að
bjóða upp á vörur sem innihalda
það sem þær eiga að innihalda
og nýtast og virka eins og best
verður á kosið. Við sættum okkur
ekki við neinar málamiðlanir í
gæðum. Bætiefni geta verið frábær
baktrygging fyrir heilsuna, þess
vegna er mikilvægt að velja gæði
og muna svo eftir að taka þau
inn,“ segir Íris.
Bætiefnaboxin eru sex
Kona 45+ er fjölvítamín- og stein-
efnablanda með auka magnesíum,
omega 3 úr laxi og sérvalinni
jurtablöndu sem stuðlar að jafn-
vægi og góðri orku. Boxið hentar
mjög vel fyrir konur yfir fertugu
sem ef til vill finna fyrir hormóna-
breytingum.
Karl 45+ er fjölvítamín- og stein-
efnablanda með auka D-vítamíni,
sínki, burnirót og jurtablöndu.
Bætiefnaboxið hentar mjög vel
fyrir karla frá 45 ára aldri sem
vilja viðhalda orku og huga að
heilbrigði hjarta, ónæmiskerfis og
blöðruhálskirtils.
Kjarni er fjölvítamín- og stein-
efnablanda með auka magnesíum,
omega 3 úr laxi og vinveittum
meltingargerlum. Kjarni hentar
mjög vel fyrir þau sem vilja við-
halda orkunni og baktryggja sig
með fjölvítamíni til að líkaminn
fái öll helstu næringarefnin dag-
lega.
Kyrrð er B-vítamínblanda með
C-vítamíni, inósitóli og kólíni,
magnesíum, D-vítamíni og jurta-
blöndu með schisandra og sítrón-
umelissu. Kyrrð er hönnuð fyrir
fólk sem glímir við svefnvandamál
eða streitu. Boxið hentar vel þeim
sem eru undir miklu álagi, hvort
sem það er andlegt eða líkamlegt.
Orka inniheldur B12-víta-
mín, kóensím Q10, D-vítamín
og jurtablöndu með burnirót og
síberíu ginsengi. Orka hentar mjög
vel fyrir fólk sem vill viðhalda
orkunni yfir daginn og efla hana
til að takast á við verkefni dagsins.
Vörn inniheldur D-vítamín,
C-vítamín, B-vítamínblöndu, sínk
og sólhatt og hentar mjög vel fyrir
fólk sem vill efla varnir líkamans,
þeim sem eru undir álagi og þeim
sem vilja styrkja ofnæmiskerfið
fyrir árstíðartengd veikindatíma-
bil.
■ Öll bætiefnin eru glúten- og
mjólkurlaus. Línan inniheldur
engin erfðabreytt innihaldsefni.
■ KARL, VÖRN OG KYRRÐ eru
vegan.
■ Öll vítamínin eru á sama formi
og þau koma fyrir í náttúrunni;
bundin öðrum næringarefnum
sem efla upptöku og nýtingu
hvert annars.
■ Jurtirnar eru unnar í staðlað ext-
rakt sem þýðir meiri styrkleiki
og gæði.
■ Steinefnin í blöndunum eru á
lífrænu formi og bundin öðrum
næringarefnum sem sér til þess
að þau nýtist sem best.
Engin ónauðsynleg aukaefni
„Flest bætiefnin frá númer eitt eru
í hylkjum, sem þýðir að við getum
komist hjá því að nota mikið af
fylliefnum. Sumar vörurnar eru
þó í töfluformi (B-vítamínblanda,
D-vítamín, B-12, magnesíum og
selen) og innihalda eitthvað af
fylliefnum. Fylliefnin eru öll unnin
úr plöntum og algerlega náttúruleg,
svo við gerum engar málamiðlanir
þar hvað framleiðslugildin okkar
varðar. Þess vegna eru töflurnar
ekki húðaðar og eru þar af leiðandi
með svolitla grófa yfirborðsáferð.
Okkur finnst það samt mun betri
kostur en að hjúpa töflurnar okkar
með óþarfa aukaefnum.“
Gæði og sjálfbærni í fyrirrúmi
„Við erum stolt af því að vinna
með framleiðanda sem gerir ríkar
kröfur til birgja sinni um hráefni
og fullunnar vörur og ver miklu
fjármagni í að tryggja það. Allt
hráefni í bætiefnaboxunum frá
númer eitt er framleitt á sjálf-
bæran hátt, bæði hvað varðar
siðferði og umhverfi. Framleið-
endur setja strangar reglur um
ábyrga öflun hráefna, hvort sem
er um söfnun villtra jurta að ræða
eða ræktun þeirra. Þá vinna þeir
með sérhæfðum búfræðingum og
hráefnabirgjum til að tryggja sjálf-
bærni. Hluta af ágóðanum af sölu
bætiefnanna er svo varið í að bæta
kjör fólks á þeim svæðum þaðan
sem hráefnin eru fengin.
Umbúðirnar eru að auki endur-
vinnanlegar, „Cradle to Cradle“,
sem merkir að efnisnotkun,
endurvinnsla og endurnýting er í
algjörum forgrunni. Bætiefnabox-
in eru endurvinnanleg og henta
einnig í endurvinnslutunnu heim-
ilisins með lífrænum úrgangi,“
segir Íris að lokum.. ■
Upplýsingar og hentugt bæti-
efnapróf er að finna á vefsíðunni
numereitt.is. Sölustaðir eru Lyf og
heilsa, Apótekarinn, Lyfja, Fræið
Fjarðarkaup, Hagkaup og Heilsu-
húsið.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Fjölskyldan rekur saman fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn og framleiðir heilsuvörur. Nú nýlega komu þau með
númer eitt bætiefnalínuna á markað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er einstaklega þægilegt að ferðast með bætiefnin
frá númer eitt. Þú tekur bara þann fjölda bréfa með þér
sem samsvarar fjölda daga sem þú ert í fríinu.
Fimm hylki og töflur eru í hverju bréfi. Sérvalin og sam-
verkandi bætiefni fyrir þig á hverjum degi.
Fjölskyldumeð-
limir númer eitt
bætiefnafjöl-
skyldunnar eru
sex talsins.
2 kynningarblað A L LT 2. júní 2022 FIMMTUDAGUR