Fréttablaðið - 02.06.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 02.06.2022, Síða 20
reynt að vera dugleg að taka inn vítamín en fann ekki blöndu sem hentaði mér. Skáparnir voru fullir af vítamínum og ég var hætt að muna hvers vegna ég keypti þau. Frá því í febrúar hef ég tekið inn bætiefnin frá númer eitt og finn að ég fæ nauðsynlegan bætiefna- skammt daglega,“ segir Díana. Jóhann Berg hefur verið atvinnumaður í fótbolta síðast- liðin tólf ár og alltaf hugsað vel um heilsuna og mataræðið. „Bætiefni eru stór partur af því að hafa heils- una í lagi. En þrátt fyrir að vera með fullan skáp af þeim átti ég það til að gleyma því að taka þau inn, ýmist öll eða sum. Bætiefnaboxin hafa því komið sér einstaklega vel fyrir mig þar sem öll bætiefni sem ég þarf er að finna í einu bréfi. Því er auðvelt að muna eftir að taka þau daglega. Ég ferðast einnig mikið og það er virkilega hentugt að geta tekið með sér þann fjölda bréfa sem þarf fyrir hverja og eina ferð,“ segir Jóhann. Einfaldar bætiefnavalið Einn stærsti kosturinn við bæti- efnapakkana frá númer eitt er einfaldleikinn; allt í einum pakka og ekkert flækjustig. „Öll erum við ólík og þess vegna settum við saman sex mismunandi box fyrir fólk með ólíkar þarfir fyrir bætiefni. Bætiefnin frá númer eitt koma í sex handhægum og heild- stæðum bætiefnaboxum sem eru sérsniðin fyrir ákveðna heilsufars- þætti. Hvert bætiefnabox inniheld- ur 30 dagsskammta í handhægum umbúðum. Hver dagsskammtur inniheldur sérvaldar jurtir, víta- mín, steinefni, fitusýrur, Q10 eða góðgerla. Enn fremur eru þau valin með samvirkni í huga. Þau hafa ekki neikvæð áhrif á virkni hvert annars í líkamanum heldur stuðla að hámarksupptöku og nýtingu. Þú velur einfaldlega pakkann sem hentar þér hverju sinni og tekur svo daglegan skammt. Fimm hylki og töflur sem koma saman í einu bréfi. Hentugra verður það ekki. Það er bæði auðveldara að muna eftir bætiefnunum og svo þarf heldur ekki að opna mörg mismunandi pilluglös til að plokka eitt og eitt úr, jafnvel oft á dag. Þar sem þau eru sérsniðin fyrir hvern og einn notanda þá er líka mun líklegra að bætiefnin hafi tilskilin áhrif. Auk þess er ólíklegra að inn- takan gleymist. Þú þarft aldrei að horfa á eftir stútfullu og útrunnu pilluglasi í ruslið.“ Gæði ofar öllu „Við lögðum strax ríka áherslu á að gæðin yrðu ofar öllu. Því leit- uðum við til virtra framleiðenda í Danmörku sem vinna bætiefni beint úr fæðu. Þeir uppfylla alla nauðsynlega gæðastaðla og vott- anir sem og allar okkar kröfur um gæði, framleiðsluhætti, umhverf- isvernd og sjálf bærni.“ Innihaldið í númer eitt bæti- efnunum er þróað af dönskum jurtalæknum og samsetning bætiefnanna í boxunum er úthugsuð út frá rannsóknum og aldagamalli þekkingu á jurtum og virkni þeirra og samvirkni. Bætiefnin eru af hæsta gæðaflokki hvað varðar hreinleika og virkni, innihalda staðlað jurtaextrakt og mjög virka skammta. Skammta- stærð hvers efnis í bætiefnabox- unum er hárnákvæmt ákvörðuð og samsvarar þeim meðferðar- skömmtum sem jurtalæknar mæla með. Vítamín og steinefni á náttúrulegu formi „Bætiefni eru misjöfn að gæðum og búin til á mismunandi hátt. Nær- ingarefnin eins og þau koma fyrir í náttúrunni, í mat, nýtast okkur best. Þess vegna völdum við fram- leiðanda sem notar vítamín og steinefni sem eru unnin beint úr grænmeti, ávöxtum og jurtum til að tryggja gæði og hámarksvirkni. Það er hornsteinninn í því sem við köllum vítamín og steinefni á nátt- úrulegu formi (e. Food State). Ímyndum okkur tvo möguleika: Í öðru dæminu er búið að einangra tiltekið vítamín, búa til gerviútgáfu af því á tilraunastofu, blanda því ef til vill við önnur sambærileg vítamín og steypa öllu saman í töflu. Taflan inniheldur ýmis aukaefni og er húðuð með enn öðru aukefninu. Oftar en ekki skilar líkaminn töflunni nánast heilli út hinum megin vegna þess að hann nær ekki að brjóta hana almennilega niður. Í hinu dæminu tökum við ávexti, grænmeti og jurtir, vinnum úr því bætiefnablöndu við ströngustu gæðakröfur og notum tæknina til að stilla skammtastærðirnar rétt af. Afurðin er þurrkuð og sett í hylki án flestra þeirra aukaefna sem oftast má finna í bætiefnum. Líkaminn veit hvað hann á að gera við svona næringarefni vegna þess að þau eru alveg eins og þau fyrir- finnast í náttúrunni. Hvort ætli nýtist nú betur? „Að okkar mati er síðarnefndi kosturinn augljós. Því völdum við að fara í samstarf með fram- leiðanda sem er sama sinnis, til að bjóða upp á vörur sem innihalda það sem þær eiga að innihalda og nýtast og virka eins og best verður á kosið. Við sættum okkur ekki við neinar málamiðlanir í gæðum. Bætiefni geta verið frábær baktrygging fyrir heilsuna, þess vegna er mikilvægt að velja gæði og muna svo eftir að taka þau inn,“ segir Íris. Bætiefnaboxin eru sex Kona 45+ er fjölvítamín- og stein- efnablanda með auka magnesíum, omega 3 úr laxi og sérvalinni jurtablöndu sem stuðlar að jafn- vægi og góðri orku. Boxið hentar mjög vel fyrir konur yfir fertugu sem ef til vill finna fyrir hormóna- breytingum. Karl 45+ er fjölvítamín- og stein- efnablanda með auka D-vítamíni, sínki, burnirót og jurtablöndu. Bætiefnaboxið hentar mjög vel fyrir karla frá 45 ára aldri sem vilja viðhalda orku og huga að heilbrigði hjarta, ónæmiskerfis og blöðruhálskirtils. Kjarni er fjölvítamín- og stein- efnablanda með auka magnesíum, omega 3 úr laxi og vinveittum meltingargerlum. Kjarni hentar mjög vel fyrir þau sem vilja við- halda orkunni og baktryggja sig með fjölvítamíni til að líkaminn fái öll helstu næringarefnin dag- lega. Kyrrð er B-vítamínblanda með C-vítamíni, inósitóli og kólíni, magnesíum, D-vítamíni og jurta- blöndu með schisandra og sítrón- umelissu. Kyrrð er hönnuð fyrir fólk sem glímir við svefnvandamál eða streitu. Boxið hentar vel þeim sem eru undir miklu álagi, hvort sem það er andlegt eða líkamlegt. Orka inniheldur B12-víta- mín, kóensím Q10, D-vítamín og jurtablöndu með burnirót og síberíu ginsengi. Orka hentar mjög vel fyrir fólk sem vill viðhalda orkunni yfir daginn og efla hana til að takast á við verkefni dagsins. Vörn inniheldur D-vítamín, C-vítamín, B-vítamínblöndu, sínk og sólhatt og hentar mjög vel fyrir fólk sem vill efla varnir líkamans, þeim sem eru undir álagi og þeim sem vilja styrkja ofnæmiskerfið fyrir árstíðartengd veikindatíma- bil. ■ Öll bætiefnin eru glúten- og mjólkurlaus. Línan inniheldur engin erfðabreytt innihaldsefni. ■ KARL, VÖRN OG KYRRÐ eru vegan. ■ Öll vítamínin eru á sama formi og þau koma fyrir í náttúrunni; bundin öðrum næringarefnum sem efla upptöku og nýtingu hvert annars. ■ Jurtirnar eru unnar í staðlað ext- rakt sem þýðir meiri styrkleiki og gæði. ■ Steinefnin í blöndunum eru á lífrænu formi og bundin öðrum næringarefnum sem sér til þess að þau nýtist sem best. Engin ónauðsynleg aukaefni „Flest bætiefnin frá númer eitt eru í hylkjum, sem þýðir að við getum komist hjá því að nota mikið af fylliefnum. Sumar vörurnar eru þó í töfluformi (B-vítamínblanda, D-vítamín, B-12, magnesíum og selen) og innihalda eitthvað af fylliefnum. Fylliefnin eru öll unnin úr plöntum og algerlega náttúruleg, svo við gerum engar málamiðlanir þar hvað framleiðslugildin okkar varðar. Þess vegna eru töflurnar ekki húðaðar og eru þar af leiðandi með svolitla grófa yfirborðsáferð. Okkur finnst það samt mun betri kostur en að hjúpa töflurnar okkar með óþarfa aukaefnum.“ Gæði og sjálfbærni í fyrirrúmi „Við erum stolt af því að vinna með framleiðanda sem gerir ríkar kröfur til birgja sinni um hráefni og fullunnar vörur og ver miklu fjármagni í að tryggja það. Allt hráefni í bætiefnaboxunum frá númer eitt er framleitt á sjálf- bæran hátt, bæði hvað varðar siðferði og umhverfi. Framleið- endur setja strangar reglur um ábyrga öflun hráefna, hvort sem er um söfnun villtra jurta að ræða eða ræktun þeirra. Þá vinna þeir með sérhæfðum búfræðingum og hráefnabirgjum til að tryggja sjálf- bærni. Hluta af ágóðanum af sölu bætiefnanna er svo varið í að bæta kjör fólks á þeim svæðum þaðan sem hráefnin eru fengin. Umbúðirnar eru að auki endur- vinnanlegar, „Cradle to Cradle“, sem merkir að efnisnotkun, endurvinnsla og endurnýting er í algjörum forgrunni. Bætiefnabox- in eru endurvinnanleg og henta einnig í endurvinnslutunnu heim- ilisins með lífrænum úrgangi,“ segir Íris að lokum.. ■ Upplýsingar og hentugt bæti- efnapróf er að finna á vefsíðunni numereitt.is. Sölustaðir eru Lyf og heilsa, Apótekarinn, Lyfja, Fræið Fjarðarkaup, Hagkaup og Heilsu- húsið. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Fjölskyldan rekur saman fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn og framleiðir heilsuvörur. Nú nýlega komu þau með númer eitt bætiefnalínuna á markað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það er einstaklega þægilegt að ferðast með bætiefnin frá númer eitt. Þú tekur bara þann fjölda bréfa með þér sem samsvarar fjölda daga sem þú ert í fríinu. Fimm hylki og töflur eru í hverju bréfi. Sérvalin og sam- verkandi bætiefni fyrir þig á hverjum degi. Fjölskyldumeð- limir númer eitt bætiefnafjöl- skyldunnar eru sex talsins. 2 kynningarblað A L LT 2. júní 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.