Fréttablaðið - 02.06.2022, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 02.06.2022, Blaðsíða 31
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli „Ísland er á eftir mörgum þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við í aðgerðum í loftslags- málum.“ Þetta er ekki tilvitnun í ólundar- fugl í stjórnarandstöðu. Orðin lét Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra falla á loftslagsdeginum í Hörpu í byrjun maí. Þannig er staða loftslagsmála eftir að ríkisstjórn Katrínar Jakobs- dóttur hefur setið í hartnær fimm ár. Vera má að ráðherrann sé að losa sjálfan sig undan ábyrgð á athafna- dofa ríkisstjórnarinnar fram til þessa. En það breytir ekki hinu að það er virðingarvert að ráðherra segi satt um stöðu svo mikilvægra mála. Falleinkunn Fyrir síðustu kosningar gáfu Ungir umhverfissinnar umsagnir um stefnu stjórnmálaflokka í loftslags- málum. VG fékk nánast fullt hús stiga. Á dögunum greindi Vísir frá nýju raunveruleikamati samtakanna. Það segir að samdráttur í heildar- losun gróðurhúsalofttegunda frá árinu 2005 til 2030 verði aðeins 4,3% en ekki 55% eins og stefnt er að. Í vitnisburði um ríkisstjórnina nota þau orðið: Falleinkunn. Unga fólkið segir að stjórnvöld haldi landnotkun og stóriðju fyrir utan sínar tölur. Í því liggi helsti munurinn. Ugglaust má deila um aðferða- fræði Ungra umhverfissinna. En hlutfallið milli álits á stefnunni og mats á raunveruleikanum sýnir að VG hefur litlu áorkað á þessu sviði, þrátt fyrir fimm ár í stjórnarforystu og endurnýjaðan stjórnarsáttmála. Von Stefnan í loftslagsmálum hefur verið metnaðarfull. En flestar veigamiklar ákvarðanir um fram- kvæmdina hafa verið í biðflokki eins og önnur helstu mál. Þannig segja Samtök atvinnulífs- ins að skuldavandi ríkissjóðs hafi verið settur í biðflokk fyrir næstu ríkisstjórn að leysa. Ákvarðanir um ný skref í varnar- og öryggismálum og evrópskri efnahagssamvinnu eru líka í biðflokki fyrir næstu ríkisstjórn. Og sjávarútvegsmálin eru einnig í þessum biðflokki. Í mars birti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra græna skýrslu um stöðu og áskoranir í orku- málum með vísan til markmiða og áherslna stjórnvalda í loftslags- málum. Skýrslan staðfestir að eftir fimm ára setu á ríkisstjórnin eftir að taka allar helstu pólitísku ákvarðan- irnar, sem máli skipta á þessu sviði. En röggsemin við gerð skýrslunnar á tveimur mánuðum gefur vonir um að Guðlaugur Þór Þórðarson hafi ákveðið að leggja allt að veði til að verða fyrsti ráðherrann á öllum þessum tíma, sem rífur mál úr bið- flokki. Fyrir þinglok Þyngsti áfellisdómur skýrslunnar er sú niðurstaða að fjárfestingar í orkumálum hafi ekki fylgt eftir markmiðum í loftslagsmálum. Skýrslan segir svo að velja þurfi milli þessara tveggja leiða: Pólitík í biðflokki Annars vegar er græn iðnbylting með áframhaldandi hagvexti og bættum lífskjörum. Hins vegar er sá kostur að slá af, horfa inn á við, draga saman orkusækna atvinnu- starfsemi og líta til annarra verð- mæta. Þetta val er kvöl ríkisstjórnar- innar. Ef fyrri leiðin er farin, á sama tíma og markmiðum í loftslags- málum er náð, þarf samkvæmt skýrslunni að auka raforkufram- leiðslu sem nemur 100 MW á ári næstu 20 til 30 ár. Ætli umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra að nema þetta risa álitaefni úr biðflokki verður hann að gera tvennt nú fyrir þinglok: Annars vegar að afgreiða ramma- áætlun. Hins vegar að kynna hvora leiðina ríkisstjórnin ætlar að velja eftir fimm ára íhugun. Fyrir kjarasamninga Velji ríkisstjórnin hagvöxt og virkj- anir þarf að fylgja tímasett áætlun um 100 MW á ári til viðbótar. Eigi aftur á móti að virkja minna en ná jafnframt markmiðum í lofts- lagsmálum þarf að ákveða hversu miklu minna og birta greinargerð um áhrif þess á lífskjör í landinu. Til þess að ná fram breytingum þarf ráðherra að gera samkomu- lag við VG um nýtt jafnvægi milli loftslagsverndar og náttúru- verndar. Verði það uppgjör áfram í biðflokki fram á næsta þing fellur hann einfaldlega á tíma. Þunga- miðjan í efnahagsstefnu stjórnar- sáttmálans er mikill hagvöxtur. Kjósi ríkisstjórnin að fara þá leið í grænu skýrslunni, sem víkur í einhverju frá þeim markmiðum, þarf sú ákvörðun augljóslega að liggja fyrir áður en kjarasamningar verða endurnýjaðir á allt öðrum forsendum. Ráðherra hefur sannarlega knappan tíma til mikilla ákvarð- ana. n 86.500 Flug & hótel frá Frábært verð! á mann BÓKAÐU SÓL ALLUR PAKKINN TenerifeDraumaean 595 1000 www.heimsferdir.is Fáðu meira út úr fríinu FRÁBÆRT VERÐ Í JÚNÍ & JÚLÍ Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis Frá kr. 94.500 á mann verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 111.000 m.v. 2 fullorðna 5. júlí í 7 nætur Tamaimo Tropical aaaaa Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis Frá kr. 102.250 á mann verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 123.650 m.v. 2 fullorðna 5. júlí í 7 nætur HG Tenerife Sur aaaaa Innifalið: Flug, Gisting, Morgunverður Frá kr. 131.975 á mann verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 149.700 m.v. 2 fullorðna 5. júlí í 7 nætur Iberostar Grand Mencey aaaaa Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis Frá kr. 86.500 á mann verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 110.000 m.v. 2 fullorðna 27. júní í 8 nætur HG Cristian Sur aaaaa Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis Frá kr. 99.950 á mann verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 113.950 m.v. 2 fullorðna 27. júní í 8 nætur Los Olivos Beach Resort aaaaa Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis Frá kr. 104.050 á mann verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 118.850 m.v. 2 fullorðna 27. júní í 8 nætur Alegría Barranco aaaaa Tenerife, sem er stærst Kanaríeyjanna, býður frábærar aðstæður. Fallegar strendur, glæsilega gististaði, fjölbreytta afþreyingu og stórbrotna náttúru. Í boði er fjölbreytt úrval vinsælla gististaða á vinsælustu svæðunum á einstökum kjörum. Hingað sækja einstaklingar, pör og barnafjölskyldur til að njóta notalegs loftslags, strandlífsins, fjölbreyttrar afþreyingar og verslana að ógleymdum góða matnum sem í boði er. 110.000 Flug & hótel frá Fyrir 2 á mann FIMMTUDAGUR 2. júní 2022 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.