Fréttablaðið - 02.06.2022, Side 31
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
„Ísland er á eftir mörgum þeim
löndum sem við viljum bera okkur
saman við í aðgerðum í loftslags-
málum.“
Þetta er ekki tilvitnun í ólundar-
fugl í stjórnarandstöðu. Orðin
lét Guðlaugur Þór Þórðarson,
umhverfis-, orku- og loftslagsráð-
herra falla á loftslagsdeginum í
Hörpu í byrjun maí.
Þannig er staða loftslagsmála
eftir að ríkisstjórn Katrínar Jakobs-
dóttur hefur setið í hartnær fimm
ár.
Vera má að ráðherrann sé að losa
sjálfan sig undan ábyrgð á athafna-
dofa ríkisstjórnarinnar fram til
þessa. En það breytir ekki hinu að
það er virðingarvert að ráðherra
segi satt um stöðu svo mikilvægra
mála.
Falleinkunn
Fyrir síðustu kosningar gáfu Ungir
umhverfissinnar umsagnir um
stefnu stjórnmálaflokka í loftslags-
málum. VG fékk nánast fullt hús
stiga.
Á dögunum greindi Vísir frá nýju
raunveruleikamati samtakanna.
Það segir að samdráttur í heildar-
losun gróðurhúsalofttegunda frá
árinu 2005 til 2030 verði aðeins
4,3% en ekki 55% eins og stefnt er
að. Í vitnisburði um ríkisstjórnina
nota þau orðið: Falleinkunn.
Unga fólkið segir að stjórnvöld
haldi landnotkun og stóriðju fyrir
utan sínar tölur. Í því liggi helsti
munurinn.
Ugglaust má deila um aðferða-
fræði Ungra umhverfissinna. En
hlutfallið milli álits á stefnunni og
mats á raunveruleikanum sýnir að
VG hefur litlu áorkað á þessu sviði,
þrátt fyrir fimm ár í stjórnarforystu
og endurnýjaðan stjórnarsáttmála.
Von
Stefnan í loftslagsmálum hefur
verið metnaðarfull. En flestar
veigamiklar ákvarðanir um fram-
kvæmdina hafa verið í biðflokki
eins og önnur helstu mál.
Þannig segja Samtök atvinnulífs-
ins að skuldavandi ríkissjóðs hafi
verið settur í biðflokk fyrir næstu
ríkisstjórn að leysa. Ákvarðanir um
ný skref í varnar- og öryggismálum
og evrópskri efnahagssamvinnu
eru líka í biðflokki fyrir næstu
ríkisstjórn. Og sjávarútvegsmálin
eru einnig í þessum biðflokki.
Í mars birti umhverfis-, orku- og
loftslagsráðherra græna skýrslu
um stöðu og áskoranir í orku-
málum með vísan til markmiða
og áherslna stjórnvalda í loftslags-
málum.
Skýrslan staðfestir að eftir fimm
ára setu á ríkisstjórnin eftir að taka
allar helstu pólitísku ákvarðan-
irnar, sem máli skipta á þessu sviði.
En röggsemin við gerð skýrslunnar
á tveimur mánuðum gefur vonir
um að Guðlaugur Þór Þórðarson
hafi ákveðið að leggja allt að veði til
að verða fyrsti ráðherrann á öllum
þessum tíma, sem rífur mál úr bið-
flokki.
Fyrir þinglok
Þyngsti áfellisdómur skýrslunnar
er sú niðurstaða að fjárfestingar
í orkumálum hafi ekki fylgt eftir
markmiðum í loftslagsmálum.
Skýrslan segir svo að velja þurfi
milli þessara tveggja leiða:
Pólitík í biðflokki
Annars vegar er græn iðnbylting
með áframhaldandi hagvexti og
bættum lífskjörum. Hins vegar er
sá kostur að slá af, horfa inn á við,
draga saman orkusækna atvinnu-
starfsemi og líta til annarra verð-
mæta.
Þetta val er kvöl ríkisstjórnar-
innar.
Ef fyrri leiðin er farin, á sama
tíma og markmiðum í loftslags-
málum er náð, þarf samkvæmt
skýrslunni að auka raforkufram-
leiðslu sem nemur 100 MW á ári
næstu 20 til 30 ár.
Ætli umhverfis-, orku- og lofts-
lagsráðherra að nema þetta risa
álitaefni úr biðflokki verður hann
að gera tvennt nú fyrir þinglok:
Annars vegar að afgreiða ramma-
áætlun. Hins vegar að kynna hvora
leiðina ríkisstjórnin ætlar að velja
eftir fimm ára íhugun.
Fyrir kjarasamninga
Velji ríkisstjórnin hagvöxt og virkj-
anir þarf að fylgja tímasett áætlun
um 100 MW á ári til viðbótar. Eigi
aftur á móti að virkja minna en ná
jafnframt markmiðum í lofts-
lagsmálum þarf að ákveða hversu
miklu minna og birta greinargerð
um áhrif þess á lífskjör í landinu.
Til þess að ná fram breytingum
þarf ráðherra að gera samkomu-
lag við VG um nýtt jafnvægi milli
loftslagsverndar og náttúru-
verndar. Verði það uppgjör áfram
í biðflokki fram á næsta þing fellur
hann einfaldlega á tíma. Þunga-
miðjan í efnahagsstefnu stjórnar-
sáttmálans er mikill hagvöxtur.
Kjósi ríkisstjórnin að fara þá leið
í grænu skýrslunni, sem víkur í
einhverju frá þeim markmiðum,
þarf sú ákvörðun augljóslega að
liggja fyrir áður en kjarasamningar
verða endurnýjaðir á allt öðrum
forsendum.
Ráðherra hefur sannarlega
knappan tíma til mikilla ákvarð-
ana. n
86.500
Flug & hótel frá
Frábært verð!
á mann
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
TenerifeDraumaean
595 1000 www.heimsferdir.is Fáðu meira út úr fríinu
FRÁBÆRT VERÐ Í JÚNÍ & JÚLÍ
Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis
Frá kr. 94.500 á mann
verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 111.000 m.v. 2 fullorðna
5. júlí í 7 nætur
Tamaimo Tropical
aaaaa
Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis
Frá kr. 102.250 á mann
verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 123.650 m.v. 2 fullorðna
5. júlí í 7 nætur
HG Tenerife Sur
aaaaa
Innifalið: Flug, Gisting, Morgunverður
Frá kr. 131.975 á mann
verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 149.700 m.v. 2 fullorðna
5. júlí í 7 nætur
Iberostar Grand Mencey
aaaaa
Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis
Frá kr. 86.500 á mann
verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 110.000 m.v. 2 fullorðna
27. júní í 8 nætur
HG Cristian Sur
aaaaa
Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis
Frá kr. 99.950 á mann
verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 113.950 m.v. 2 fullorðna
27. júní í 8 nætur
Los Olivos Beach Resort
aaaaa
Innifalið: Flug, Gisting, Án fæðis
Frá kr. 104.050 á mann
verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 118.850 m.v. 2 fullorðna
27. júní í 8 nætur
Alegría Barranco
aaaaa
Tenerife, sem er stærst Kanaríeyjanna, býður frábærar aðstæður. Fallegar strendur,
glæsilega gististaði, fjölbreytta afþreyingu og stórbrotna náttúru. Í boði er fjölbreytt
úrval vinsælla gististaða á vinsælustu svæðunum á einstökum kjörum.
Hingað sækja einstaklingar, pör og barnafjölskyldur til að njóta notalegs loftslags,
strandlífsins, fjölbreyttrar afþreyingar og verslana að ógleymdum góða matnum
sem í boði er.
110.000
Flug & hótel frá
Fyrir 2
á mann
FIMMTUDAGUR 2. júní 2022 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ