Fréttablaðið - 03.06.2022, Side 6

Fréttablaðið - 03.06.2022, Side 6
Allar vígbúnar rúss- neskar herfylkingar taka nú þátt í árásinni Volodímír Selenskíj Hundrað dagar eru frá því Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar. Fáir bjuggust við að stríðið myndi standa yfir svo lengi og enn er enginn endir í augsýn. tsh@frettabladid.is Stríðið í Úkraínu hefur staðið yfir í hundrað daga og eru enn engin teikn um að deilan muni leysast í bráð. Hinn 24. febrúar réðust Rússar inn í Úkraínu á fjölmörgum vígstöðvum eftir mánaðarlanga hernaðarupp- byggingu á landamærunum og ítrekaða afneitun þess að þeir væru að undirbúa stríð. Rússar hafa í raun enn ekki viður- kennt að um stríð sé að ræða og Vla- dímír Pútín Rússlandsforseti þráast enn við að kalla innrásina „sérstaka hernaðaraðgerð“ sem hann hafi ráðist í undir þeim formerkjum að frelsa rússneska landa sína í Austur- Úkraínu og „afnasistavæða“ landið. Margir vestrænir stríðsgrein- endur bjuggust við að Pútín myndi beita leiftursókn til að lama Úkraínu og beygja það undir vald sitt. Þá er talið að Pútín hafi vonast til að geta auðveldlega knésett forseta lands- ins, Volodímír Selenskíj, og komið á leppstjórn en Selenskíj hefur kom- ist klakklaust undan fjölmörgum morðtilræðum undanfarna mánuði. Þvert á vonir Rússlandsforseta og verstu spár hefur Úkraínumönnum tekist að halda velli og verjast inn- rásinni og hafa ítrekað hrundið tilraunum Rússa til að hertaka höfuðborgina Kænugarð. Þá hefur alþjóðasamfélagið, með undantekn- ingum, snúist á sveif með Úkraínu- mönnum sem hafa fengið hernaðar- legan stuðning frá Vesturlöndum. Í gær samþykkti Joe Biden Banda- ríkjaforseti að senda nýjan 700 millj- óna dollara vopnapakka til Úkraínu, þar á meðal eldflaugakerfi sem getur sent flugskeyti á nákvæm skotmörk í allt að 80 kílómetra fjarlægð. Bandaríkin, Evrópusambandið, Kanada og ýmis önnur ríki hafa sett strangar efnahagsþvinganir á rússnesk fyrirtæki og valdamikla Stríðið muni líklega enda við samningaborðið tsh@frettabladid.is Í gær fullyrti Volodímír Selenskíj, forseti Úkraínu, að Rússar hafi hertekið 20 prósent af landsvæði Úkraínu. Í myndbandsávarpi sínu til þings- ins í Lúxemborg sagði forsetinn að framlína átakasvæðisins væri rúm- lega 1.000 kílómetra löng. Þá fullyrti hann að hundrað Úkraínumenn væru drepnir á degi hverjum og á bilinu 450–500 til viðbótar særðust í átökum. „Við verðum að verja okkur gegn næstum gjörvöllum rússneska hernum. Allar vígbúnar rússneskar herfylkingar taka nú þátt í árás- inni,“ sagði Selenskíj. Rússar hafa beint hernaði sínum að Donbass-svæðinu í austur- hluta landsins undanfarnar vikur. Þeir sækja nú hart að lykilborg- unum Kramatorsk og Slovíansk. Þá er borgin Severodonetsk nánast fallin og í gær fullyrti héraðsstjóri Lúhansk, Seríj Haídaí, að 70 pró- sent borgarinnar væru undir stjórn Rússa, 10–15 prósent væru á gráu svæði og restin undir stjórn Úkra- ínumanna. Í gær fullyrti fréttastofan Reuters að Úkraínumenn væru að íhuga að slökkva á kjarnorkuverinu í Saporísjía. Kjarnorkuverið, sem er það stærsta í Evrópu, er í suður- hluta Úkraínu á svæði sem er undir stjórn Rússa. Úkraínumenn hafa haldið völdum yfir verinu en haft er eftir aðstoðarmanni forsætis- ráðherra Úkraínu að ef ske kynni að það myndi falla undir stjórn Rússa gæti þurft að slökkva á kjarnorku- verinu. ■ Rússar ráða núna yfir fimmtungi landsvæðis í Úkraínu einstaklinga innan Rússlands. Þessar þvinganir hafa orsakað að það hriktir undir stoðum efnahags Rússa en hafa þó ekki skilað til- ætluðum árangri að fullu. Að sögn Larry Elliott, pistlahöfundar The Guardian, er því meðal annars um að kenna að Rússar hafa brugðist við þvingununum með því að hækka útflutningsverð á olíu og gasi og Evr- ópusambandið hefur enn ekki að fullu bannað innflutning rússnesks jarðefnaeldsneytis. Efnahagsþvinganirnar hafa þó haft töluverð áhrif og áætlar Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn að efnahagur Rússa muni dragast saman um 8,5 prósent á þessu ári. Eins og við mátti búast hefur stríðið haft áhrif á allt stjórnmála- samstarf innan Evrópu en átökin eru stærstu hernaðarátök innan álfunn- ar frá síðari heimsstyrjöld. Finnland og Svíþjóð hafa til að mynda bæði sótt um aðild að Atlantshafsbanda- laginu sem Rússar hafa fordæmt og hótað hörðum viðbrögðum. Fáir bjuggust við því að stríðið myndi enn standa yfir rúmum þremur mánuðum síðar. Þrátt fyrir að hvorki Rússar né Úkraínumenn hafi sýnt mikinn vilja til samninga þá fullyrtu Jens Stoltenberg, fram- kvæmdastjóri NATO, og Antony Blinken, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, að stríðið gæti einungis endað við samningaborðið. Á blaða- mannafundi í vikunni sögðu þeir að Úkraínumenn þyrftu að styrkja stöðu sína á vígvellinum til að ganga styrkum fótum til friðarviðræðna. „Það sem við vitum er að nánast öll stríð enda á einhverjum tíma- punkti við samningaborðið,“ sagði Stoltenberg. Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari sem búsettur er í Úkraínu, segir aðspurður að því hvað hafi áunnist og hvað hafi tapast í stríðinu, að úkraínska þjóðin hafi sameinast. „Það hefur sýnt sig að hér býr endalaus kraftur og þjóðin mun berj- ast til síðasta manns,“ segir Óskar. „Það sem hefur tapast er ekki hægt að telja upp, hörmungar, sorgin og sár sem aldrei munu gróa.“ ■ BERUM ARMBANDIÐ OG SÝNUM KRAFT Í VERKI lifidernuna.is © GRAPHIC NEWSHeimildir: ISW, OHCHR, Reuters, Bloomberg. Myndir: Getty, Neyðarþjónusta Úkraínu, Mike Right/Twitter Stríð í Úkraínu í hundrað daga 24. feb : Rússar hea allsherjar innrás í Úkraínu og setja af stað stærsta stríð í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni. Vladímír Pútín Rússlands- forseti kallar innrásina „sérstaka hernaðaraðgerð“ til að hreinsa Úkraínu af nasistum. Volodímír Selenskíj Úkraínuforseti segir Rússa hafa „lagt upp í vegferð illsku“. 28. apríl: Rússar skjóta tveimur …ugskeytum á Kænugarð á meðan opinberri heimsókn Antonio Guterres, aðalritara SÞ, stendur. 7. maí: Allt að sextíu taldir látnir eŒir sprengjuárás á skóla í Bílohorívka. 9. maí: Pútín heldur ræðu á Sigurdeginum þar sem hann segir rússneska herinn vera að berjast fyrir framtíð móðurlandsins. 10. maí: Úkraínuher hrekur Rússa í átt að landamærunum í gagnsókn norður af Karkív. 18. maí: Finnland og Svíþjóð sækja um NATO aðild. 11. maí: Rúmlega 400 rússneskir hermenn drepnir er Úkraínumenn eyða fylkingu skriðdreka á leið y’r …jót í Donbass. 20. maí: Síðustu úkraínsku hermennirnir í Asovstal gefast upp. Maríupol gjöreyðilögð eŒir 79 daga umsátur. 27. maí: Átök í Donbass magnast er Rússar senda ítrekaðar loŒárásir á borgina Severodonetsk. 29.-30. maí: Selenskíj heim- sækir framlínuna í Karkív í fyrstu opinberu heimsókn sinni utan höfuðborgarsvæðisins frá uppha’ innrásar. Hersveitir Rússa þrengja að Severodonetsk. 3. júní: Hundrað dagar af stríðsátökum. 25. feb: Rússneskur hera…i sækir að frá þremur hliðum á meðan stórskotalið ræðst á Kænugarð. 1. mars: Gríðarlöng rússnesk herlest á leiðinni til Kænugarðs festist vegna skipulagsvandræða og mótspyrnu Úkraínumanna. Rússar auka loŒárásir sínar á Karkív er sókn þeirra á Kænugarð staðnar. 2. mars: Umsátrið um Maríupol hefst. Rússar ná Kherson, fyrstu stóru borginni, á sitt vald. 4. mars: Rússneski herinn nær stærsta kjarnorkuveri Evrópu á sitt vald við Saporísjía. 8. mars: Óbreyttir borgarar …ýja Súmí er fyrsta mannúðar- útgönguleið stríðsins opnast. 29. mars: Fjöldi fólks deyr í árás á Míjkolaív er Rússar sækja vestur með fram strönd Svartahafs. 8. apríl: Úkraínumenn kenna Rússum um loŒárás á lestarstöðina í Kramatorsk þar sem nærri sextíu manns létust. 25.-26. apríl: Opinberir aðilir í Transnístríu kenna „…ugumönnum“ um sprengingar. Kænugarður sakar Moskvu um að sviðsetja árásir. 21. apríl: Pútín lýsir Maríupol „frelsaða“ þrátt fyrir að úkraínskir hermenn haldi enn til í Asovstal stálverinu. 18. apríl: Rússar he langþráða sókn sína á Donbass-svæðinu í austri. 14. apríl: Moskva, …aggskip rússneska …otans í Svartaha—, sekkur eŒir loŒárás Úkraínumanna. 3. apríl: Úkraínumenn saka Rússa um stríðsglæpi eŒir að öldagra’r ’nnast í bænum Bútsja. 25. mars: Rússar draga áætlanir sínar í land til að einblína á að „frelsa“ austrið. Úkraínskt herlið nær bæjum í kringum Kænugarð aŒur á sitt vald er Rússar hörfa. 13. mars: Rússnesk …ugskeyti hæfa Javorív þjálfunarbúðirnar nálægt pólsku landamærunum. 9. mars: Úkraínumenn saka Rússa um að sprengja fæðingarspítala í Maríupol. Herteknar borgir Undir stjórn Rússa Ásókn Rússa Svæði þar sem Úkraína hefur náð völdum aŒur Flóttamenn e›ir löndum (24. febrúar- 30. maí) Í kringum 15 milljónir manns eru taldar hafa …úið frá uppha’ i nnrásar, þar á meðal 8 milljónir innan Úkraínu. Hvíta-Rússland 30,000 Pólland 3.6m Úkraína: 8 milljónir manna vegalausar innan eigin lands. Rúmenía 989,000 Rússland 971,000 Ungverjaland 682,000 Moldóva 479,000 Slóvakía 461,000 Manntjón óbreyttra borgara Tölur SÞ frá og með 27. maí. Talið er að raunverulegur öldi sé hærri. Fjöldi látinna eða særðra hermanna óþekktur. Alls 8,766 Látnir 4,031Særðir 4,735 Uppsafnaður öldi óttamanna frá Úkraínu (24. febrúar-29. maí, UNHCR) Rúmlega 6,8 milljón manns hafa …úið Úkraínu frá 24. febrúar. 0 1m 2m 3m 4m 5m 6m 7m 24. feb mars apríl 29. maí 2,1 milljón hafði snúið aftur til Úkraínu 24. maí. LÚHANSK OBLAST DONETSK OBLAST KRÍMSKAGI Ú K R A Í N A R Ú S S L A N D PÓLLAND UNGVERJALAND SLÓVAKÍA RÚMENÍA M OLDÓVA HVÍTA-RÚSSLAND GEORGÍA S V A R T A H A F Dníeper- …jót Asov-haf Kharkiv Belgorod Míjkolaív Kríjvíji Ríh Ísíum Saporísjía Dnípro Severodonetsk Bílohorívka Donetsk Lúhansk Odesa Kherson Sevastopol Melítopol Kramatorsk Ívano- Frankívsk Lvív Lútsk Chernihiv SúmíjBútsja Maríupol Kænugarður Javorív Transnístría 60 mílur 100km DONBASS: Lúhansk og Donetsk Oblasts EŒir að Rússum mistókst að hertaka höfuðborgina Kænugarð hefur Vladímír Pútín beint sjónum sínum að hernaðarsigrum í austri og suðri. Á hundrað dögum hafa átökin þróast út í langvarandi tilraun til að þreyta andstæðinginn án þess að nokkur lausn sé með í augsýn. 16. mars: KraŒmikil sprengja hæ’r leikhúsið í Maríupol þar sem hundruð óbreyttra borgara héldu til. 6 Fréttir 3. júní 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐINNRÁS Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 3. júní 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.