Fréttablaðið - 03.06.2022, Side 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Að sögn Eggerts Jónssonar,
sviðsstjóra frístunda- og menn-
ingarsviðs Grindavíkurbæjar, er
sjómannadagurinn stærsta hátíðin
í sjávarþorpi eins og Grindavík er.
„Saga sjómannadagsins í Grinda-
vík er ansi merkileg enda hefur
dagurinn verið haldinn hátíð-
legur allt frá árinu 1948. Upphaf
sjómannadagsins í Grindavík
má rekja til þess að Slysavarna-
deildin Þorbjörn og Íþróttafélag
Grindavíkur ákváðu að halda
daginn hátíðlegan í samstarfi við
sjómenn,“ segir Eggert og bætir
við: „Þó svo atvinnulífið í bænum
hafi tekið miklum breytingum á
síðustu áratugum er fólkið hér og
menningin enn nátengd hafinu og
öllu sem því tilheyrir. Sjómanna-
daginn ber í ár upp á sunnudaginn
12. júní, það er annan sunnudag í
júní líkt og er iðulega þegar hvíta-
sunnudagur er fyrsta sunnudag í
júnímánuði.“
Metnaðarfull dagskrá
Að sögn Eggerts hefur hátíðin
Sjóarinn síkáti farið fram árlega
allt frá árinu 1996. „Fyrir utan
heimsfaraldursárin tvö. Það er
því gríðarlega mikil tilhlökkun í
bæjarbúum að geta loks farið af
stað með hátíðarhöldin í ár.“
Metnaðarfull dagskrá er alla
helgina á hátíðarsviðinu niðri
við höfn. „Dagskráin hefst með
pomp og prakt á föstudeginum,
með bryggjusöng á hátíðarsviðinu
undir stjórn Pálmars Arnar Guð-
mundssonar. Emmsjé Gauti tekur
svo við og flytur öll sín vinsælustu
lög. Í kjölfarið stígur hljómsveitin
Stuðlabandið á svið og slær upp
alvöru bryggjuballi fyrir alla fjöl-
skylduna.
Á laugardeginum verður ýmis-
legt skemmtilegt í boði fyrir
börnin. Um miðjan daginn verður
boðið upp á andlitsmálun. Einnig
er tívolí á hafnarsvæðinu þar sem
frítt verður í f lestöll tækin. Að auki
þeysist sjópylsa um Grindavíkur-
höfn með börn og aðra ofurhuga.
Þar verður einnig fyrrverandi
varðskipið Óðinn til sýnis fyrir
gesti og gangandi. Sett verður upp
froðurennibraut í brekkunni ofan
við slökkvistöðina fyrir unglinga á
öllum aldri og margt fleira.
Klukkan 13.30 hefst skemmti-
dagskrá á hátíðarsviðinu. Ronja
Ræningjadóttir stígur á svið sem
og Jón Arnór og Baldur. Einnig
fáum við Latabæjarbúa í heim-
sókn. Danskompaní sýnir listir
sínar og BMX brós slá svo botninn í
barnadagskrána,“ segir Eggert.
Sjómannadagurinn
Sunnudagurinn, sem er hinn eigin-
legi sjómannadagur, er svo öllu
hátíðlegri en dagarnir á undan,
heldur Eggert áfram. „Þá eru
haldnar hátíðarræður og sjómenn
heiðraðir. Gengið er frá kirkjunni
niður að minnisvarðanum um
sjómenn sem hafa drukknað við
störf og kvennakórinn syngur að
vanda. Þetta er afar hátíðleg stund
sem gaman er fyrir bæjarbúa sem
og gesti að upplifa.“
Sjómannaþrautirnar eru svo
önnur hefð sem hefur myndast
í kringum hátíðina, en um er að
ræða ýmsar þrautir sem tengjast
hafinu. „Þar er koddaslagurinn
líklega sú alvinsælasta. Þar ganga
menn og konur plankann, berjast
hetjulega í koddabardaga þar
til annar áskorandinn dettur í
sjóinn. Það er hápunkturinn fyrir
mörgum að fylgjast með kodda-
slagnum. Svo það er um að gera
fyrir þau sem hafa áhuga á að
sýna færni sína í plankagöngu og
kodda slagsmálum, að drífa sig til
Grindavíkur á sunnudeginum og
taka þátt. Ískaldur sjórinn er líka
besta leiðin til þess að jafna sig
eftir alvöru sjómannaball sem fer
fram í íþróttahúsinu með Audda og
Sveppa, Jóni Jónssyni, ClubDub og
BB Brothers á laugardagskvöldinu,“
segir Eggert.
Hátíðin seytlar um allan bæ
Fyrir utan opinberu hátíðardag-
skrána á hátíðarsviðinu er að sögn
Eggerts ýmislegt um að vera á
viðburða- og veitingastöðum sem
og öldurhúsum bæjarins. „Það má
segja að það verði ein allsherjar
tónlistarhátíð í bænum um sjó-
mannadagshelgina. Þar má meðal
annars nefna að Guðrún Árný
Karlsdóttir og trommarinn Egill
Örn Rafnsson taka öll vinsælu
lögin á Sjómannastofunni Vör að
loknu bryggjuballinu á föstudeg-
inum.
Sama kvöld halda Paparnir ball á
veitingahúsinu Bryggjunni og Nýju
fötin keisarans halda uppi stuðinu
í nýja salnum á Fish House.“ Alla
hátíðardagskrána, sem og aðra dag-
skrá á viðburðastöðum bæjarins,
má nálgast á vefsíðu hátíðarinnar:
sjoarinnsikati.is.
Sjóarinn síkáti er ein allsherjar
bæjarhátíð og taka íbúar sig til á
ári hverju og skreyta allt hátt og
lágt með lit þess hverfis sem þeir
búa í. „Það má með sanni segja að
íbúar fari alla leið í skreytingum og
síðustu ár hefur mikill metnaður
verið lagður í þær. Menn hafa jafn-
vel gefið út myndbönd og samið lög
í tilefni hátíðarhaldanna, svo það
verður sannkölluð sjómannadags-
stemning alla þessa helgi.“
Einstakt einkasafn opið
„Þess má geta að opið verður í
einkasafni Hermanns Ólasonar,
útgerðarmanns í Stakkavík. Her-
mann hefur safnað dráttarvélum
og fornbílum síðan um aldamótin
2000 og á orðið dágott safn af
merkilegum og einstökum gripum,
Hátt í fimmtíu traktora auk fjölda
fornbíla. Meðal annars á hann eina
eintakið í heiminum af Chevrolet
Buick, árgerð 1929. Einnig á hann
Austin Big Seven bifreið með stýrið
vinstra megin, en aðeins þrír þann-
ig bílar eru til í heiminum. Audrey
Hepburn var meðal annars kvik-
mynduð í slíkum bíl.“
Komdu í heimsókn
„Sjóarinn síkáti hefur verið fjöl-
menn hátíð síðustu skipti og við
búumst við að hér komi stór og
góður hópur gesta eins og hefur
verið alltaf þegar vel viðrar, enda
stendur Grindavík á fallegu bæjar-
stæði. Dagskráin er metnaðarfull
og dregur það enn fleiri góða gesti
alls staðar að af landinu. Íbúar
Grindavíkur hafa verið að mælast í
könnunum sem hamingjusömustu
íbúar Íslands og því er um að gera
að sækja okkur heim og skemmta
sér með hamingjusamasta fólki
landsins,“ segir Eggert.
Með hverju ári til viðbótar sem
Sjóarinn síkáti fer fram í Grinda-
vík slípast áherslur hátíðarinnar.
„Við leggjum nú mikla áherslu á
að það eigi allir að geta skemmt
sér á Sjóaranum síkáta í Grindavík
og því reynum við til dæmis að
hafa frítt í sem flest leiktæki. Það
er eitt af því sem kom skýrt fram í
viðhorfskönnun sem lögð var fyrir
bæjarbúa árið 2019 eftir síðustu
hátíð. Það á enginn að þurfa að
leggja út óyfirstíganlegan kostnað
til að geta skemmt sér og börn-
unum sínum á Sjóaranum. Við
vinnum að því að uppfylla kröfur
bæjarbúa um hátíðina í ár og eins á
komandi árum.
Tjaldstæðið í Grindavík er mjög
gott og hefur jafnan verið vel nýtt
yfir hátíðina sem og aðrar helgar.
Einnig er hér fjöldi gististaða. Svo
er líka stutt að skreppa hingað af
höfuðborgarsvæðinu fyrir þau sem
búa þar,“ segir Eggert að lokum. n
Alla hátíðardagskrána sem og
aðra dagskrá á viðburðastöðum
bæjarins má nálgast á vefsíðu há-
tíðarinnar, sjoarinnsikati.is.
Eggert Jónsson er sviðsstjóri frí-
stunda- og menningarsviðs Grinda-
víkurbæjar.
Á sunnudeg-
inum er svo sjó-
mannadagurinn
og þá er hátíðleg
dagskrá þar sem
sjómenn eru
heiðraðir. FRÉTTA
BLAÐIÐ/ÞRÁINN
KOLBEINSSON
Sjóarinn síkáti
er hátíð fyrir alla
fjölskylduna og
verður margt
skemmtilegt
um að vera alla
helgina fyrir
börn og full-
orðna á öllum
aldri.
Á laugardeginum stígur Latabæjarhópurinn á hátíðar-
sviðið og skemmtir gestum Sjóarans síkáta.
Það er eitthvað skemmtilegt um að vera alla dagana frá
morgni og langt fram á kvöld.
Sjómannaþrautirnar eru nokkrar og hér þreytir ungur
ofurhugi eina þeirra.
Ískaldur sjórinn er að sögn Eggerts besta leiðin til þess
að jafna sig eftir alvöru sjómannaball.
2 kynningarblað A L LT 3. júní 2022 FÖSTUDAGUR