Fréttablaðið - 03.06.2022, Síða 16

Fréttablaðið - 03.06.2022, Síða 16
Elvis fjallar um, ja, vitanlega engan annan en Elvis Presley. En nálgunin er ný og kafað er ofan í líf hans og tónlist á annan hátt en áður. Útgangspunktur myndarinnar er margslungið samband Elvis við hinn dularfulla Tom Parker ofursta, sem var umboðsmaður hans í meira en 20 ár. Tom Hanks leikur Parker og er vart þekkjan- legur í myndinni. Parker var þéttur á velli og því þurfti að „fita“ Hanks upp í hlutverkið. Förðunar- deildinni virðist hafa tekist vel upp. Undarlegt samband Elvis og Parkers hefur verið ráðgáta fram á þennan dag. Raunar er Tom Parker mikil ráðgáta. Hann sagðist vera fæddur í Huntingdon í Vestur-Virginíu en síðar kom í ljós að það var ekki rétt. Hann var fæddur í Hollandi en ekki Banda- ríkjunum og fortíð hans var dular- full, jafnvel skuggaleg. Parker varð umboðsmaður þekktra tónlistarmanna, aðal- lega sveitasöngvara, áður en hann uppgötvaði Elvis Presley 1955. Priscilla Presley, leikin af Oliviu DeJonge, kemur mikið við sögu í myndinni. Foreldrar Elvis, Gladys og Vernon Presley, koma fyrir en samband Elvis við móður sína var náið og mjög sérstakt. Má meðal annars geta þess að fyrsta lagið sem Elvis tók upp, „My Happiness“, var sérstaklega tekið upp fyrir hana. Elvis gekk inn í hljóðver Sun Records í Memp- his 18. júlí 1953 og borgaði fjóra dollara fyrir upptöku á tveimur lögum. Hitt lagið var „That‘s When Your Heartaches Begin“ og út gekk pilturinn með tveggja laga 78 snúninga plötu. Parker ofursti er sögumaður myndarinnar og atburðarásin er séð með hans augum. Í bakgrunninn er bandarísk menning sem gengur í gegnum stökkbreytingu upp úr miðri síðustu öld, ákveðið sakleysi er að glatast. Við sjáum Elvis og Priscillu takast á við þessar breytingar saman og í sundur. Myndinni hefur verið gríðar- lega vel tekið og engum ætti að leiðast, hvernig væri það hægt þegar kóngurinn sjálfur sér um tónlistina? n Sambíóin, Laugarásbíó, Smárabíó og Háskólabíó Kóngurinn frá sjónarhóli ofurstans Fróðleikur n Tom Hanks lék Elvis-eftirhermu í Elvis Has Left the Building (2004). n Samkvæmt Billboard vildi Priscilla Presley að Lana Del Rey léki hana í myndinni. Þrátt fyrir það var ástralska leikkonan Olivia DeJonge fengin í hlutverkið. n Baz Luhrmann, leikstjóri myndarinnar, leikstýrði líka Moulin Rouge (2001). n Meðan á tökum myndarinnar í Ástralíu stóð í mars 2020 greindust bæði Tom Hanks og Rita Wilson, eiginkona hans, með Covid. Frumsýnd 22. júní 2022 Aðalhlutverk: Tom Hanks, Austin Butler, Olivia DeJonge, Steve Binder, David Wenham, Luke Bracey, Richard Roxburgh og Helen Thomson Handrit: Baz Luhrmann, Sam Bromell og Craig Pearce Leikstjórn: Baz Luhrmann Ljósár er saga Bósa ljósárs, hetjunnar sem varð fyrirmynd leikfangabrúðunnar vinsælu. Myndin Ljósár fylgir hinni goðsagnakenndu geimlöggu eftir að hann lendir bjargarlaus á fjandsamlegri plánetu 4,2 milljón ljósárum frá jörðu, ásamt Izzy Hawthorne, næstráðanda sínum, og áhöfn þeirra sem telur meira en þúsund vísinda- og tækni- manneskjur. Þau eru á heimleið úr miklum leiðangri. Áhugasamir nýliðar slást í hópinn er Bósi og félagar reyna að finna leið heim í gegnum tíma og rúm. Vélkötturinn töfrandi, Sox, lætur sig ekki vanta. Málin fara að flækjast þegar hinn undarlegi og miskunnarlausi Zug birtist ásamt harðsvíruðum her vélmenna. Zug hefur eitthvað dularfullt í hyggju. Tilraun þeirra til að forða sér hratt mistekst hræðilega og endar með því að þau hrapa og orkugjafi þeirra eyðileggst. Nú eru góð ráð dýr. Bósi ljósár hefur notið mikillar velgengni um langt skeið en nú mætir hann mótlæti sem hann hefur ekki kynnst fyrr. Áhöfnin sér fram á langa dvöl á fjand- samlegri plánetu. Enginn er að fara neitt fyrr en vísindamenn- irnir geta skapað nýja ofurhraða- kristalla sem standast reynsluflug. Fram undan er margra ára ferli tilrauna og mistaka. Bósi kennir sjálfum sér um. Hann getur ekki á sér heilum tekið yfir að hafa gert afdrifarík mistök og verður gagntekinn af því að bæta fyrir þau. Sagan gerist í ævintýraheimi Bósi ljósár lendir í kröppum dansi Fróðleikur n Þessi saga er ekki um aksjónkallinn Bósa ljósár úr Toy Story heldur „kvikmyndina“ sem gerist í þeirri veröld sem skóp leikfangið. n Þokuatriðið úr skóginum er vísun í Star Wars myndirnar. n Chris Evans, sem ljáir Bósa rödd sína í ensku útgáfunni, á afmæli sama dag og Tim Allen sem var rödd Bósa ljósárs í upphaflegu Toy Story myndinni. Báðir eru fæddri 13. júní; Evans 1981 og Allen 1953. Frumsýnd 17. júní 2022 Aðalhlutverk: Hjörtur Jóhann Jónsson, Aldís Amah Hamilton, Ahd Tamimi, Guðjón Davíð Karlsson, Lísa Pálsdóttir, Harald G. Haralds, Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Þórunn Lárusdóttir Handrit: Jason Headley og Angus MacLane, byggt á persónum eftir John Lasseter Íslensk leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir úti í geimnum en er í raun um eitthvað sem allir lenda í ein- hvern tímann. Við tökum slæmar ákvarðanir en ef við eyðum ævinni í að sjá eftir þeim í stað þess að horfa fram á við, erum við þá að lifa lífinu? Lífið tekur oft óvænta stefnu. Mikilvægt er að festast ekki í for- tíðinni og óska þess að hlutirnir séu öðruvísi – slíkt er tímaeyðsla. Bósi verður heltekinn af því að bæta fyrir mistök sín á meðan Izzy ákveður að gera gott úr því sem er. Hún vill nota tímann vel, jafnvel þótt hún sé á vondri plánetu. n Sambíóin, Laugarásbíó, Smárabíó og Háskólabíó 4 kynningarblað 3. júní 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.