Fréttablaðið - 03.06.2022, Page 18
Frumsýnd
29. júní 2022
Aðalhlutverk:
Eyþór Ingi Gunnlaugsson,
Bragi Þór Hinriksson, Erla Ruth
Harðardóttir, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir og Karl Örvarsson
Handrit:
Brian Lynch, Matthew Fogel
og Cinco Paul
Leikstjórn:
Kyle Balda, Brad
Ableson og Jonathan
del Val
Nú, þegar Gru er á
flótta, reyna Skó-
sveinarnir að tileinka sér
kúng fú til að bjarga
honum og Gru kemst að
því að jafnvel óþokkar
þurfa smá hjálp frá
vinum sínum.
Nat iur antem
faccus si verum eos
re pere, omnis derror
Fróðleikur
n Scott Derrickson tók að sér leikstjórn þessarar myndar eftir að
hann hætti á Doctor Strange in the Multiverse of Madness (2022)
vegna listræns ágreinings.
n Í myndinni er The Grabber með mismunandi hrollvekjandi grímur
sem afhjúpa ólíka andlitshluta persónunnar sem Ethan Hawke
leikur.
n Black Phone er með 100 prósent hjá Rotten Tomatoes.
Finney er feiminn en klár 13 ára
strákur. Hann er numinn á brott af
morðingja, sem haldinn er kvala-
losta, og lokaður í hljóðeinangr-
uðum kjallara þar sem öskur gera
ekkert gagn.
Skyndilega byrjar sími á
veggnum að hringja. Síminn er
hins vegar ekki í sambandi!
Finney kemst að því að hann
getur heyrt raddir fyrri fórnar-
lamba morðingjans. Og þau eru
staðráðin í að forða Finney undan
örlögunum sem þau mættu.
Black Phone er hrollvekja af betri
gerðinni.
Árið 2012 gerðu leikstjórinn
Scott Derrickson og handritshöf-
undurinn C. Robert Cargill, ásamt
framleiðandanum Jason Blum og
Ethan Hawke myndina Sinister,
sem margir telja hryllilegustu
hrollvekju 21. aldarinnar fram til
þessa.
Fjórmenningarnir vildu ólmir
vinna aftur saman og þegar Der-
rickson fór að leita að heppilegu
verkefni mundi hann eftir smásögu
eftir Joe Hill, „The Black Phone“.
Joe Hill er raunar sonur Stephen
King, sem er konungur hryllings-
bókmenntanna, og The Black
Phone birtist í smásagnasafni hans,
20th Century Ghosts, sem kom út
2005 og seldist í bílförmum.
„Ég rakst á bókina í bókabúð
þegar hún var nýkomin út. Ég vissi
ekki hver Joe Hill var, hvað þá að
hann væri sonur Stephen King.
Þarna stóð ég í búðinni og las þessa
stuttu smásögu og hugsaði með
mér: „Vá, þetta er magnaður höf-
undur.“ Ég gleymdi henni aldrei
og fyrir svona einu og hálfu ári var
rétti tíminn til að láta til skarar
skríða.“
Eins og í smásögunni fjallar
myndin um Finney sem lendir í
klónum á raðmorðingja sem er
þekktur sem The Grabber.
Hugmyndin að símanum í
kjallaranum kviknaði í barnæsku
Hill, sem ólst upp í gömlu húsi. Í
kjallaranum var gamall sambands-
laus sími sem honum fannst hroll-
vekjandi. Martraðir barnæsku Hill
eru komnar á hvíta tjaldið. n
Laugarásbíó, Háskólabíó, Smára-
bíó, Sambíóin Álfabakka, Sam-
bíóin Akureyri, Sambíóin Keflavík
og Selfossbíó
Síminn er dauður – samt hringir hann
Frumsýnd:
22. júní 2022
Aðalhlutverk:
Ethan Hawke, Jeremy Davies,
James Ransone, Mason
Thames, Madeleina McGraw
og Banks Repeta
Handrit:
Scott Derrickson, C. Robert
Cargill – byggt á smásögu Joe
Hill
Leikstjórn:
Scott Derrickson
Löngu áður en hann verður
meistari hins illa er Gru bara 12 ára
strákur sem skipuleggur heims-
yfirráð úr kjallaranum í úthverfinu
sem hann býr í á áttunda áratug
síðustu aldar.
Ekki gengur það neitt sér-
staklega vel. Þegar Gru kynnist
Skósveinunum, þar ámeðal Kevin,
Stuart, Bob og Otto, fara hlutirnir
að gerast. Saman koma þeir sér
upp sínu fyrsta fylgsni, hanna
fyrstu vopnin og keppast við að
framkvæma sína fyrstu leiðangra.
Þegar alræmdur hópur ofur-
skálka, Vægðarlausu 6, rekur
leiðtoga sinn – hinn þjóðsagna-
kennda sjálfsvarnarmeistara, Wild
Knuckles – sækir Gru, þeirra mesti
aðdáandi, um að komast í hópinn.
Ekki hrífast Vægðarlausu 6 af
þessum smávaxna upprennandi
skálki en Gru leikur á þá alla og
þeir verða alveg brjálaðir út í hann.
Allt í einu er hann orðinn svarinn
óvinur hins illa.
Nú, þegar Gru er á flótta, reyna
Skósveinarnir að tileinka sér kúng
fú til að bjarga honum og Gru
kemst að því að jafnvel óþokkar
þurfa smá hjálp frá vinum sínum.
Dr. Nefario er brjálaður vísinda-
maður sem Bragi Þór Hinriksson
leikur. Master Chow, sem Jóhanna
Vigdís Arnardóttir leikur, er
nálastungumeistari og æðislega
góð í kúng fú og Gru er leikinn
af Eyþóri Inga Gunnlaugssyni og
mömmu hans, sem er óskaplega
upptekin af sjálfri sér, leikur Erla
Ruth Harðardóttir.
Þetta er tilvalin mynd fyrir
alla fjölskylduna. Myndin er með
íslensku tali og leikararnir sem
ljá raddir sínar eru ekki af verri
toganum. n
6 kynningarblað 3. júní 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS
Stanslaust fjör, spenna og gaman
VÆNTANLEG Í BÍÓ
Fróðleikur
n Þegar Gru kemur inn í biðstofuna er einn skálkanna að lesa Mad-
tímaritið. Forsíðan er plakat með hamingjuóskum til Richard
Nixon með sigur í forsetakosningunum. Forsíðurnar voru raunar
tvær. Önnur á forsíðunni en hin á baksíðunni með hamingju-
óskum til John F. Kennedy.
n Samkvæmt þessu gerist myndin 1961. En í myndinni kemur líka
fyrir pet rock (gælusteinn) sem kom ekki fram fyrr en 1975.
Laugarásbíó, Smárabíó, Háskóla-
bíó, Sambíóin Álfabakka, Sambíó-
in Egilshöll, Sambíóin Kringlunni
og Sambíóin Akureyri, Sambíóin
Keflavík og Selfossbíó