Fréttablaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Kristján Eldjárn gítarleikari lést á þrítugasta aldursári fyrir 20 árum. Unnur Sara Eldjárn, dóttir hans, var þá níu ára gömul. Þann 17. júní verða þættir um ævi Kristjáns fluttir á Rás 2, þar sem Unnur Sara og fjölmiðlakonan Bryn- hildur Björnsdóttir ræða við samstarfsfólk og vini gítar- leikarans fjölhæfa. ninarichter@frettabladid.is „Síðast voru svona tímamót árið 2012 þegar pabbi hefði orðið fer- tugur,“ segir Unnur Sara Eldjárn, tónlistarkona og frumkvöðull. „Þá voru stórir tónleikar í Þjóðleik- húsinu, sem er ekki eitthvað sem við förum að gera aftur af ýmsum ástæðum,“ segir hún. Unnur Sara segir að því hafi hugmyndin um útvarpsþátt komið til hennar, sem leið til að varðveita upplýsingar um samstarf og vináttu. „Við getum átt þetta og hlustað á þetta í framtíðinni næstu áratugi. Þetta er bæði fyrir þá sem þekktu hann, en á sama tíma líka fyrir þá sem þekktu hann ekki,“ segir hún. Fjölhæfnin stóð upp úr Unnur Sara var níu ára þegar faðir hennar lést. Aðspurð hvort hún hafi hugsanlega kynnst áður óþekktum hliðum á föður sínum í þessu ferli, svarar hún játandi. „Það er búið að vera mjög lærdómsríkt og skemmti- legt fyrir mig að kafa svona djúpt í efnið. Velta fyrir mér hver ætti að vera viðmælandi og hvað ætti að fjalla um, átta sig á því hvað væri mikilvægast,“ segir Unnur Sara. Hún segir að skemmtilegast hafi verið að sjá hversu fjölhæfur tón- listarmaður faðir hennar var. „Hann hafði svo mikinn metnað, og bar svo mikla virðingu fyrir listinni, sem mér finnst svo fallegt,“ segir hún. Brynhildur og Kristján vinir Brynhildur Björnsdóttir fjölmiðla- kona var ein af bestu vinum Krist- jáns heitins, og því lá beint við að Unnur hefði samband við hana þegar hugmyndin lá fyrir. „Hún var ein af bestu vinkonum pabba míns, þau voru saman í vina- hópi í MH. Það var engin spurning að fá hana með mér í þetta, og hún er frábær fjölmiðlakona líka,“ segir Unnur Sara. „Hún er umsjónarkona þáttarins og tekur viðtölin, en ég er höfundurinn og er á bak við alla ákvarðanatöku og klippingu,“ segir hún. „Mér finnst fínt að fá einhvern annan til að taka viðtölin, einhvern með aðeins meiri fjarlægð.“ Ótalmargir sem þekktu til Unnur Sara segir hafa komið sér á óvart hversu erfitt var að velja við- mælendur þar sem ótrúlega margir þekktu til hans. „Það eru svo margir sem hafa eitthvað áhugavert að segja og því er kúnst að klippa þetta til, velja og hafna,“ segir hún. „Um daginn voru 20 ár síðan hann lést og þá voru margir af ætt- ingjum mínum sem settu inn stöðu- færslu á Facebook. Minningarnar streymdu inn og það voru margir sem fóru að skrifa um kynni sín af honum,“ segir Unnur. „Þar var margt fólk sem ég vissi ekki að hefði þekkt pabba minn og margar sögur af ýmsu fyndnu sem hann hafði sagt.“ Meðal viðmælenda eru Guð- mundur Pétursson, eða Gummi Pé, Eva María Jónsdóttir, Páll Óskar og Ari Eldjárn. Markaðssetur tónlist Unnur Sara er með mörg járn í eld- inum en auk dagskrárgerðar fyrir útvarp sinnir hún tónlistarferli í Montpellier í Suður-Frakklandi. Þá er hún nýbúin að stofna fyrirtækið „Wrap my music,“ sem sérhæfir sig í markaðssetningu á tónlist. „Ég hef verið að fá svo mikið af alls konar fyrirspurnum. Fólk spyr hvort ég geti markaðssett tónlistina þeirra, og ég hef ekki getað tekið á móti þessu öllu,“ segir hún. „Ég hef einbeitt mér að því að veita ráðgjöf og vera með Spotify- fyrirlestra. Ég fór því að ráða inn starfsfólk, allt konur. Núna erum við að bjóða upp á markaðsher- ferðir fyrir tónlistarfólk og aðstoð við styrkumsóknaskrif.“ n Minningarnar streymdu inn Unnur Sara var níu ára þegar pabbi hennar lést. MYND/MARINA BOUSSIN Kristján Eldjárn lést langt fyrir aldur fram árið 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/INGÓLFUR Smiðjuvegi 2, Kópavogi Sími 554 0400 www.grillbudin.isGrillbúðin Nr. 12952 - Án gashellu - Svart SUMARTILBOÐ SUMARTILBOÐ 79.900 FULLT VERÐ 99.900 Frá Þýskalandi Niðurfellanleg hliðarborð • Afl 10,5 KW Nánar á www.grillbudin.is • 3 brennarar • Brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • hitajöfnunarkerfi • Niðurfellanleg hliðarborð • Rafkveikja fyrir alla brennara • Tvöfalt einangrað lok • Stór posulínshúðuð efri grind • Hitamælir • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Grillflötur 65 x 44 cm 20% afsláttur SUMAR TILBOÐUM Lýkur á laugardag FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut toti@frettabladid.is Hópur fyrrverandi alþingismanna gerði góða skemmtiferð um Suður- land í þverpólitískri sátt í vikunni enda var Félag fyrrverandi alþingis- manna stofnað formlega 1986 eftir að nokkrir fyrrverandi þingmenn hittust á Hótel Borg árið áður og komust að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að þegar pólitískt vopna- skak heyrði sögunni til gæti verið gaman að hittast stöku sinnum til þess að rifja upp gömul kynni og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Þetta tvennt var sameinað ágæt- lega í ferðinni og einkar viðeigandi að hópurinn kom við í Friðheimum þar sem málin voru rædd yfir tómat- súpu sem hermt er að sé sú besta í heimi hér. Hráefnið í súpuna, tómatarnir, eru ræktaðir í Friðheimum allan ársins hring í raflýstum gróðurhúsum þar sem sérinnfluttar býflugur sinna frjóvgun tómataplantnanna af aðdáunarverðum dugnaði. Fulltrú- ar þingheims liðinnar tíðar hlýddu nánast opinmynntir af hrifningu á fyrirlestur staðarhaldarans um magnað f lugnakynið sem þar er ræktað og hefur lagt sitt af mörkum til þess að gera súpuna að því sem hún er. Þar sem saman eru komnir þrír fyrrverandi þingmenn, þar er Guðni Ágústsson. Sérstaklega þegar fund- urinn er á Suðurlandi þar sem land- búnaðarráðherrann fyrrverandi fer um sem héraðshöfðingi væri og þrátt fyrir áherslu hans á að best sé að allt sé íslenskt gerði hann ekki athuga- semdir við uppruna flugnanna. n Býflugur heilla friðarþingheim Sólveig Péturs- dóttir, for- maður Félags fyrrverandi alþingismanna, var í farar- broddi og Guðni Ágústsson kom sér fyrir þar sem honum líður best. Í forgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI 18 Lífið 3. júní 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.