Fréttablaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 1
1 1 6 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 1 5 . J Ú N Í 2 0 2 2 Hinn skapandi Prins Póló Frelsinu fagnað með dansi Menning ➤ 22 Lífið ➤ 28 NÚ ER TÍMI FYRIR SUMMER SALE Bæting Framsóknarflokksins er ekki nóg til að ríkisstjórnin haldi velli, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þrír flokkar eru nú áberandi stærstir. kristinnhaukur@frettabladid.is STJÓRNMÁL Samkvæmt nýrri könn­ un Prósents hefur ríkisstjórnin bætt við sig 5 prósentum en er þó naum­ lega fallin. Munar mestu um fylgis­ aukningu Framsóknarflokksins. Þrír f lokkar eru stærstir og bæta allir við sig. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 18,5 prósent, sem er 0,6 prósentum meira en í síðustu könn­ un, frá 27. apríl. Þá koma Píratar sem mælast með 17,5 sem er bæting um 1,3 prósent og Framsókna með 17,3 sem er bæting um 4,9 prósent. Fjórir flokkar tapa fylgi. Samfylk­ ingin missir 3,3 prósent og mælist nú með 13,5 og Vinstri græn tapa 0,6 prósentum og mælast með slétt 9. Viðreisn mælist með 7,8 prósent, 1,8 prósentum minna en síðast, og Flokkur fólksins tapar 2,2 pró­ sentum og mælist með 5,6. Sósíalistar bæta við sig tæpu prós­ enti og mælast nú með 6,3. Mið­ flokkurinn stendur nokkurn veginn í stað með 4,2 prósent. Samkvæmt könnuninni mælast stjórnarf lokkarnir þrír með 30 þingsæti, en hafa 38 í dag. Þetta myndi ekki duga til meirihluta en þó bæting um 4 þingsæti frá síð­ Stökk Framsóknar myndi ekki duga ustu könnun. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn myndu fá 12 þingmenn og Vinstri græn 6. Píratar myndu fá 12, Samfylking 9, Viðreisn 5, Sósíal­ istar 4 og Flokkur fólksins 3. Helsti kynjamunurinn er hjá Vinstri grænum, sem hafa stuðning 12 prósenta kvenna en 7 prósent karla. Viðreisn höfðar aftur á móti frekar til karla, 10 prósent á móti 5. Framsóknarflokkurinn er lang­ stærsti flokkurinn á landsbyggðinni með 29 prósenta fylgi. Sjálfstæðis­ flokkur og Píratar eru stærstir á höf­ uðborgarsvæðinu með 20 prósent. Könnunin var netkönnun fram­ kvæmd 2. til 13. júní. Úrtakið var 1.780 einstaklingar og svarhlutfallið 50,1 prósent. n 18,5% 17,5% 17,3% 13,5% 9% 7,8% 6,3% 5,6% 4,2% Fylgi flokkanna á landsvísu SAMGÖNGUR Forstjóri Icelandair segir félagið stefna á að taka raf­ og vetnisdrifnar flugvélar í notkun hér á landi fyrir lok árs 2030. Vélar sem byggja á nýrri tækni munu hafa mikil áhrif á innan­ landsf lug. „Það er annar f lötur á nýtingu hreinnar orku í f lugi en augljós umhverfisþáttur. Ef við færum innanlandsflugið á hreina orku sem framleidd er innanlands þá mun það lækka kostnað. Það kemur okkar viðskiptavinum til góða, lækkar verð og eykur tíðni ferða, segir Bogi Nils Bogason, for­ stjóri Icelandair. SJÁ SÍÐU 10 Orkuskiptin munu gjörbylta innanlandsflugi Íbúar við Óðinsgötu segja tvö hús við götuna í þvílíkri niðurníðslu að þeir skammist sín fyrir að búa nálægt þeim. Húsin hafa verið umsjónarlaus í fjögur ár og ekkert er gert. SJÁ SÍÐU 2. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.