Fréttablaðið - 15.06.2022, Síða 2

Fréttablaðið - 15.06.2022, Síða 2
Ástandið hérna er orðið þannig að ég skammast mín fyrir umhverfið. Inga Ingólfsdóttir, íbúi á Óðinsgötu Svína- og alifugla- bændur fá 450 millj- ónir af tæpum 2,5 milljörðum króna. Grímuverðlaunin afhent Ríkissjónvarpið sýndi beint í gærkvöld frá afhendingu Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, í Þjóðleikhúsinu. Búningar leikara vöktu athygli fyrir hátíðina og var mikil stemning við leikhúsið. Verðlaunaflóð var að hefjast um það leyti sem Fréttablaðið fór í prentun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GRÆNLANDSSJÓÐUR Stjórnarráð Íslands Menningar - og viðskiptaráðuneytið Grænlandssjóður auglýsir eftir styrkumsóknum í sjóðinn. Nánari upplýsingar er að finna á vef stjórnarráðsins, www.mvf.is/gronlandsfonden Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2022. 25. maí 2022 Stjórn Grænlandssjóðs erlamaria@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Iðju þjálfun Grens­ ás deildar Land spítalans fékk í gær gjöf frá sam tökunum Holl vinum Grens ás deildar, en um er að ræða Armeo Spring handar æfingar tæki fyrir sjúk linga sem upp lifa ein­ hverja mátt minnkun í hand legg eða hendi eftir veikindi eða slys. Tækið er notað til að örva vöðva­ virkni og hreyfingar handa og hand leggja sjúk linga, en með tæk­ inu fram kvæma þeir þrí víddar verk­ efni í tölvu. „Þetta er í raun hjálpararmur með mismunandi stillingum, svo hægt sé að ná fram hámarksnýtingu þeirrar vöðvavirkni sem er til staðar hjá viðkomandi sjúklingi og þjálfa upp frekari hreyfifærni til dag­ legra athafna,“ segir Lillý Halldóra Sverrisdóttir, iðjuþjálfi á Grensás­ deild. Allir sem eru með minnkaða hreyfifærni í hendi geti nýtt sér þetta tæki. „Ég bind vonir við að þetta verði mikið notað,“ segir Lillý. Samtökin Holl vinir Grens ás­ deildar hafa stutt endur hæfingar­ starf Grens ás deildar til tækja kaupa í gegnum árin og segist Lillý fagna því að sam tökin hafi tekið svo vel í hugmyndina að kaupum á tækinu. „Við viljum bara koma á fram­ færi inni legu þakk læti fyrir þessa rausnar legu og gagn legu gjöf,“ segir Lillý. n Keyptu tæki til að styrkja hendurnar Tækið örvar vöðvavirkni handanna. Íbúar við Óðinsgötu segja ástandið við niðurnídd hús í götunni óviðunandi. Frá 1. júní hafa verið lagðar dag­ sektir á eigendur húsanna. birnadrofn@frettabladid.is  REYKJAVÍK Íbúar við Óðinsgötu í Reykjavík segja ástand við hús númer 14a og 14b við götuna óviðunandi. „Húsin eru í algjörri niðurníðslu og svona hefur þetta verið í mörg ár en ekkert hefur verið aðhafst,“ segir Inga Ingólfsdóttir, íbúi á Óðinsgötu. Húsin sem um ræðir hafa verið umsjónarlaus síðan árið 2018. Mikil órækt og drasl er á lóðum þeirra og þau eru ekki mannheld. Inga segir að þangað leiti fólk reglulega skjóls ásamt því að unglingar haldi þar til. Í apríl 2018 kviknaði í húsinu við Óðinsgötu 14a, þá hélt þar til hústökufólk og þáverandi eigandi hússins, Sturla Sighvatsson, lofaði úrbótum. Síðan hefur þó lítið breyst og ástandið frekar versnað, sam­ kvæmt Ingu. Húsin voru seld á nauðungarsölu í ágúst á síðasta ári, salan var þing­ lýst 1. mars síðastliðinn. Núverandi eigandi húsanna númer 14a og 14b er Erkiengill ehf., en frá því 1. júní hefur dagsektum verið beitt á eig­ endur hússins, sem samkvæmt upp­ lýsingum frá Reykjavíkurborg nema um 100 þúsund krónum á dag. „Ástandið hérna er orðið þannig að ég skammast mín fyrir umhverf­ ið,“ segir Inga. „Ég veigra mér við því að fólk komi í heimsókn eða að dóttir mín komi með vini sína heim,“ bætir hún við. „Þetta er búið að vera endalaust vesen. Óværan og viðbjóðurinn af óræktinni í garðinum er mjög mikil, svo mikil að leigjendurnir mínir þurftu að setja skordýranet í alla glugga þar sem þau voru á jarðhæð og það er allt í f lugum og köngulóm og maður rétt getur ímyndað sér hvað annað þrífst þarna,“ segir Inga. Leigjendur sem bjuggu á neðri hæð húss Ingu f luttu nýlega út og sér hún ekki fyrir sér að ástandið í götunni hjálpi til við að finna nýja leigjendur. Hún hefur alla tíð reynt að hafa leigjendur til langtíma í íbúðinni en hefur nú fengið leyfi fyrir Airbnb­leigu. „Ég geri samt ráð fyrir að ástandið hérna muni hafa mikil áhrif á þær umsagnir sem ég fæ þar.“ Inga, ásamt fleiri íbúum við göt­ una, hefur sent fjölda fyrirspurna, kvartana og ábendinga til borgar­ yfirvalda en fá svör hafa fengist. Þá hafa meðal annars verið sendar ábendingar til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem sjálfur býr við Óðinsgötu. Í svari borgarstjóra segir: „Ég hef haft það sem ófrávíkjanlega reglu að koma ekki að málum sem varða nærumhverfi mitt (heimilið).“ Inga vonar að beiting dagsekta verði til þess að ráðist verði í fram­ kvæmdir á húsunum. „Ég hef samt ekki mikla trú á því.“ Gylfi Ásvaldsson hjá umhverfis­ og skipulagssviði Reykjavíkur segist vita af ástandinu á Óðinsgötu. „Við skiljum þessa óánægju vel og lítum þetta alvarlegum augum, þess vegna höfum við sett á háar dagsektir,“ segir Gylfi. n Dagsektum er beitt vegna niðurníðslu á Óðinsgötu Inga segir að ástandið hafi aðeins versnað undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI kristinnhaukur@frettabladid.is LANDBÚNAÐARMÁL Bændur fá tæpa 2,5 milljarða króna úr ríkissjóði í sérstakri aðgerð ríkisstjórnarinnar til að koma til móts við verðhækk­ anir á aðföngum. Aðgerðin er byggð á tillögum frá spretthópi sem Svan­ dís Svavarsdóttir matvælaráðherra skipaði og Steingrímur J. Sigfússon fór fyrir. Meðal þess sem hefur hækkað mikið í verði er rúlluplast, olía, áburður, fóður og f leira. Sam­ kvæmt tilkynningu ráðuneytisins hafa þessar hækkanir nú þegar veikt rekstrargrundvöll bænda mjög mikið og dregið úr framleiðsluvilja. Samkvæmt tillögum hópsins verða greiðslurnar lagðar ofan á álag í núgildandi búvörusamningum. Alls 450 milljónum verður varið til stuðnings svína­, alifugla­ og eggja­ framleiðslu þar sem samningar eru ekki til staðar. n Bændur fá styrk vegna hækkana 2 Fréttir 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.