Fréttablaðið - 15.06.2022, Síða 6
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Mosfellsbær segist í skrif-
legu svari til Fréttablaðsins ekki
geta veitt frekari svör um mál Stein-
unnar Jakobsdóttur, öryrkja sem
nýlega greindi frá því að hún lifði á
sextán þúsund krónum á mánuði
eftir að hún greiði reikninga, en þau
að almennar húsaleigubætur Hús-
næðis- og mannvirkja stofnunar
(HMS) séu eingöngu veittar á grund-
velli þinglýstra húsaleigusamninga.
Þá segir að sérstakur húsnæðis-
samningur sveitarfélagsins sé ein-
göngu veittur hafi einstaklingur
samþykktar almennar húsnæðis-
bætur frá HMS.
Steinunn hefur ekki fengið hús-
næðisbætur frá því um áramót. Hún
hefur ekki þinglýstan samning en
leigir íbúð móður hennar.
Frá því að fjallað var um mál Stein-
unnar segir hún engan frá bænum
hafa sett sig í samband við hana.
Hins vegar hafi hún fundið gríðar-
lega hlýju og velvild frá samfélaginu.
„Þegar ég vaknaði í gær [fyrradag]
átti ég 2-3.000 krónur. Þegar ég kíkti
á reikninginn í dag sá ég að ókunn-
ugt fólk hafði lagt inn á mig peninga
og nú á ég fyrir mat,“ segir Steinunn.
„Ég hef skynjað það hvað fólki
finnst þetta óréttlátt og þetta minnir
mann á hvað máttur almennings er
mikill,“ segir Steinunn. n
Steinunn finnur fyrir
hlýju frá samfélaginu
Steinunn Jakobsdóttir notast við hjólastól eftir að hún fékk heilablóðfall og
hún sér afar illa. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
thorgrimur@frettabladid.is
NÍKARAGVA Ríkisstjórn Níkaragva
hefur heimilað staðsetningu rúss-
neskra hermanna á níkaragskri
grundu til þess að hjálpa til við her-
þjálfun, löggæslu og viðbragðsað-
gerðir í neyðarástandi. Daniel
Ortega, forseti Níkaragva, birti til-
skipun þess efnis fyrr í vikunni og
Rússar staðfestu hana í gær.
Samkvæmt hljóðan tilskipun-
arinnar verður rússneskum her-
sveitum heimilað að vakta strandir
Níkaragva við Karíbahafið og
Kyrrahafið. Jafnframt verður rúss-
neskum herskipum og f lugvélum
heimilað að koma inn í land- og
lofthelgi Níkaragva og tugum rúss-
neskra hernaðarráðgjafa verður
boðið til landsins til að hafa umsjón
með „mannúðarhjálp“.
Þetta yrði í fyrsta sinn sem Rússar
staðsetja stóran hóp hermanna
sinna í Mið-Ameríku. Sumir rúss-
neskir fjölmiðlar voru vígreifir
þegar þeir kynntu hernaðarsam-
starfið og Olga Skabejeva, frétta-
kona hjá ríkissjónvarpsstöðvunum
VGTRK og Rossíja-1, lét þau orð falla
að nú væri „tími fyrir Rússland að
hnykla vöðvana nálægt nokkrum
bandarískum borgum“. María Zak-
harova, talskona hjá rússneska
utanríkisráðuneytinu, gerði minna
úr málinu og sagði einfaldlega vera
um að ræða reglubundið ríkjasam-
starf Rússlands og Níkaragva.
Daniel Ortega hefur verið náinn
bandamaður Rússa frá því á áttunda
áratugnum, þegar hann naut stuðn-
ings Sovétríkjanna í byltingu gegn
einræðisstjórn Anastasio Somoza. n
Rússneskur her
fer til Níkaragva
Vladímír Pútín og Daniel Ortega
árið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
tsh@frettabladid.is
BRETLAND Ríkisstjórn Boris Johnson
hóf í gær brottflutning hælisleitenda
til Rúanda í umdeildri áætlun sem
hefur verið harðlega gagnrýnd.
Áætlunin snýst um að senda
flóttamenn með flugi til Rúanda á
meðan umsókn þeirra um hæli er
tekin fyrir. Verði umsóknin sam-
þykkt fá þeir hæli í Rúanda.
Stefanía Dórudóttir endurskoð-
andi, búsett í Bretlandi, segir bresku
ríkisstjórnina reyna að gera málefni
hælisleitenda að pólitísku þrætuepli.
„Það er þetta móralska sem situr
ansi þungt í fólki,“ segir Stefanía.
Enska kirkjan skrifaði opið bréf
þar sem erkibiskupar kalla áætlun-
ina siðlausa og skammarlega fyrir
bresku þjóðina.
Þá er Karl Bretaprins sagður hafa
Innflytjendavandinn sé ekki lengur forsíðufrétt
Stefanía Dóru-
dóttir, löggiltur
endurskoðandi.
SAMAN Í SÓL
17. – 29. JÚNÍ
SUN BEACH APART. 4*
ÍBÚÐ MEÐ SJÁVARSÝN
VERÐ FRÁ 119.500 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 188.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
20. - 30. JÚNÍ
HOTEL PALMASOL 4*
TVÍBÝLI
VERÐ FRÁ 104.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 1 BARN
VERÐ FRÁ 136.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
VINSÆ
LT
VEL STAÐSETT
MALLORCA COSTA DEL SOL
Hjá Landspítalanum er starfs-
fólk hugsi yfir miklum hagn-
aði heildsölunnar Lyru sem
seldi spítalanum lækninga-
tæki og hvarfaefni án útboðs á
meðan neyðin var sem stærst í
kórónuveirufaraldrinum.
gar@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Framkvæmdastjóri fjár-
mála hjá Landspítalanum segir að
spítalinn hyggist efna til samtals við
heildsöluna Lyru, sem hagnaðist um
nærri tvo milljarða króna í fyrra, að
miklu leyti með sölu á Covid-tengd-
um tækjum og vörum til spítalans
án útboðs.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær kemur fram í ársreikningum
Lyru fyrir árin 2020 og 2021 að eftir-
spurn eftir vörum fyrirtækisins
hafi aukist mikið vegna kórónu-
veirufaraldursins. Í fyrra seldi þetta
f jölskyldufyrirtæki vörur fyrir
4.250 milljónir króna, sem er meira
en fjórfalt hærri upphæð en árið
2021 þegar veltan var 1.021 milljón.
Gróðinn af þessari sölu, sem að lang-
mestu leyti var til ríkisins í gegnum
heilbrigðiskerfið, hafi verið 1.954
milljónir króna, eða nærri helm-
ingurinn af söluandvirðinu.
Þetta virðist endurspegla óvenju-
lega mikla álagningu Lyru á vörur
sínar. Eigendur Lyru hyggjast greiða
sér allt að 750 milljónir í arð vegna
hagnaðarins í fyrra.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins stinga óhemju góðar
af komutölur Lyru í augu innan
Landspítalans. Þar veltir starfsfólk
fyrir sér hvort verðlagning Lyru hafi
verið eðlileg, sérstaklega í ljósi þess
mikla magns sem Landspítalinn
keypti á endanum frá heildsölunni.
Ólafur Darri Andrason, fram-
kvæmdastjóri fjármála hjá Land-
spítalanum, vill aðspurður lítið tjá
sig um málið að sinni. „Þessar tölur
vekja athygli og ég geri ráð fyrir því
að við munum eiga samtal við Lyru,“
segir Ólafur Darri.
Ástæða þess að ekki var gripið til
útboðs vegna innkaupanna frá Lyru
er sagt vera það neyðarástand sem
uppi var vegna Covidfaraldursins
og það hafi þurft hraðar hendur við
innkaup á nauðsynlegum vörum.
Þetta var bæði sagt gilda um inn-
kaupin á veirugreiningartækjum
og hvarfaefni frá Lyru og alls kyns
hlífðarbúnaði, sem meðal annars
var f luttur með tveimur farþega-
þotum frá Kína og reyndist að hluta
til ónothæfur er hann var hingað
kominn. Þá hafði ekki unnist tími
til að sannreyna gæði búnaðarins.
Aðferðir Landspítalans við kaup
á tækjum og vörum hafa áður
verið gagnrýndar. Fyrir tíu árum
tók samkeppniseftirlitið innkaup
Landspítalans til skoðunar í kjölfar
kvörtunar frá Logalandi ehf., sem
selur meðal annars lækningatæki,
hjúkrunarvörur og hjúkrunartæki.
Leiddi málið til þess að spítalinn gaf
fjórum árum síðar, í júní 2016, út
einhliða yfirlýsingu þar sem hann
skuldbatt sig til að gera tilteknar
endurbætur á innkaupaháttum
sínum.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
samkeppniseftirlitsins, svarar
aðspurður að sér vitanlega hafi ekki
borist ábendingar vegna innkaupa
Landspítalans þau misseri sem
Covid-faraldurinn hefur varað. Sem
fyrr segir voru innkaupin án útboðs
á þessum Covid-tíma á grundvelli
neyðarréttar.
Willum Þór Þórsson heilbrigðis-
ráðherra svaraði ekki með beinum
hætti fyrirspurn Fréttablaðsins um
rekstrartölur Lyru og hvort hægt
væri að tryggja hagsmuni ríkissjóðs
betur, en ráðherra nefnir í skriflegu
svari að heimild hafi verið gefin til
að kaupa 80 milljóna króna tæki
fyrir sýkla- og veirufræðideild þar
sem Lyra hafi verið umboðsaðili. n
Landspítalinn vill fá samtal við Lyru
Höfuðstöðvar Lyru eru við Hádegismóa hjá Rauðavatni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ólafur Darri
Andrason,
framkvæmda-
stjóri fjármála
hjá Landpítal-
anum.
lýst henni í einkasamtali sem „skelfi-
legri.“.
Spurð um hvort umræðan sé harð-
vítug segir Stefanía: „Ég myndi frekar
segja að það séu sumir í pólitíkinni
sem gera mikið mál úr þessu en í
raun vita allir að Bretland tekur á
móti miklu færri flóttamönnum en
nokkurt annað Evrópuland. Inn-
flytjendavandinn er eiginlega ekki
lengur forsíðufrétt.“ n
6 Fréttir 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ