Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.06.2022, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 15.06.2022, Qupperneq 8
Við höfum kvartað yfir þessu lengi og þetta er búið að vera í umræð- unni í nærri 20 ár. Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar. n Skoðun Guðmundur Gunnarsson 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is ÓSKASKRÍN GEFUR SVO MARGT Sala Símans á Mílu felur í sér stórtíðindi fyrir samkeppn- isumhverfið á íslenskum fjarskiptamarkaði að mati forstjóra Sýnar. Hann á ekki von á öðru en að Samkeppnis- eftirlitið samþykki viðskiptin í næsta mánuði. ggunnars@frettabladid.is Síminn gekk frá sölunni á Mílu til franska sjóðstýringarfyrirtækisins Ardian í lok október á síðasta ári. Samkeppniseftirlitið hefur haft málið til meðferðar undanfarna mánuði en viðskiptin eru háð hefð- bundnum fyrirvörum um samþykki eftirlitsins. Með sölunni verða eignatengsl á milli Mílu og Símans rofin. Míla mun þannig verða sjálfstætt heild- sölufyrirtæki á fjarskiptamarkaði og munu því öll fjarskiptafyrirtæki, bæði Síminn og önnur fyrirtæki, sitja við sama borð og geta nýtt sér þjónustu Mílu á sömu forsendum. Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, segir söluna gríðarlega mikilvæg tíðindi fyrir neytendur og uppbyggingu fjarskiptainnviða á Íslandi. Hún muni greiða fyrir aukinni samkeppni á bæði heild- sölu- og smásölumarkaði fjarskipta. „Við sjáum blessunarlega fyrir endann á áratuga deiluefni á fjar- skiptamarkaði á Íslandi. Allt á þetta rætur sínar í því að  grunnnetið skuli hafa  fylgt með í kaupunum þegar gamli Landsíminn var einka- væddur. Síðan þá hafa langflestar kvartanir í þessum geira átt rót sína í því að ekki hafi verið skilið þarna á milli í upphafi. Þetta er því stórt skref í átt að aukinni og heilbrigðari samkeppni á þessum markaði.“ Að mati Heiðars er aldrei gott þegar fyrirtæki í beinni sam- keppni  er tengt grunnnetinu og innviðunum með þessum hætti. „Eins og þetta er í dag getur Sím- inn einfaldlega boðið fríðindi og tilboð sem önnur fyrirtæki geta ekki keppt við. Við höfum kvartað yfir þessu lengi og þetta er búið að vera í umræðunni í nærri 20 ár. Nú lítur út fyrir að þarna verði skorið á milli. Neytendum til hagsbóta. Það er bara mjög gleðilegt,“ segir Heiðar. Ardian France SA er eitt stærsta sjóðstýringafyrirtæki Evrópu með um 130 milljarða Bandaríkjadala í eignastýringu. Meðal fjárfesta í Ardian eru ríkisstofnanir, lífeyris- sjóðir, tryggingafélög og aðrir stofn- anafjárfestar. „ Að mínu mati er mjög mikilvægt að fá faglegan innviðasjóð inn á þennan markað. Ég er þeirrar skoð- unar og tel að þessi viðskipti eigi eftir að efla Mílu til mikilla muna og fjarskiptainnviðina á Íslandi í heild sinni. Hingað til hafa fjarskipta- fyrirtæki byggt upp sín kerfi hvert í sínu horni. Það er vont fyrirkomu- lag. Með þessum viðskiptum getum við samnýtt grunnnetið til fulls, sem mun leiða til þess að við byggj- um upp eitt sterkt og öruggt kerfi frekar en mörg samliggjandi.“ Heiðar segir þessa þróun mjög sambærilega því sem gerðist á breska fjarskiptamarkaðnum árið 2016, þegar grunnnetið var skilið frá gamla ríkisfyrirtækinu. „Ég get ekki annað en vonað að þetta fari í gegn. Raunar höfum við mælst til þess í okkar umsögnum til eftirlitsins og hvatt til þess.“ Gert er ráð fyrir að Samkeppnis- eftirlitið afgreiði málið í lok næsta mánaðar. „Ég get ekki séð hvernig eftirlitið ætti að geta komist að ann- arri niðurstöðu en að samþykkja þessi viðskipti. Það er að minnsta kosti ljóst að kvörtunum til eftirlits- ins mun fækka stórkostlega ef þetta fer í gegn. Það verður einfaldlega minna um samkeppnislagabrot. Út frá sögunni, bæði hér og erlendis, þá er það eina rökrétta niðurstaðan,“ segir Heiðar. n Segir söluna á Mílu stórtíðindi fyrir neytendur Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, segist ekki eiga von á öðru en að kaup Ardian á Mílu verði samþykkt í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Með sölunni á Mílu verða eignatengslin á milli Símans og Mílu rofin. MYND/LÝÐUR GEIR Fréttir af ógnargróða heild- sölunnar Lyru vekja óneitan- lega spurningar um það hvort viðskiptasiðferði lúti ekki ein- hverjum örlítið strangari lög- málum á tímum heimsfarald- urs og neyðar. Lögmálum sem ganga ekki fram af venjulegu fólki og heil- brigðiskerfi heillar þjóðar. Lögmálum sem misbjóða ekki þeim sem stóðu sólarhrings- vaktir í framlínunni eða misstu allt sitt í efnahagsþrenging- unum. Á meðan þjóðir heims hírð- ust í tveggja ára samfelldri smitgát g ræddu eigendur heildsölu, sem selur vörur til efnagreiningar, sem sagt á tá og fingri. Mestmegnis með sölu til ríkisins án útboðs. Á grundvelli neyðarréttar í ljósi ástandsins. Vegna sölu á far- sóttarvörum. Hagnaður fyrirtækisins fjór- faldaðist í faraldrinum. Hvorki meira né minna. Það verða að teljast dágóðar heimtur hjá krúttlegu fjölskyldufyrirtæki. Svo mikil voru umsvif fyrir- tækisins á tímum neyðarstigs að eigendur f y rirtæk isins neyddust til að greiða sér 750 milljónir króna í arð. Eitthvað segir manni að fleiri viðlíka fréttir verði sagðar á næstu vikum og mánuðum. Þegar pattaralegir ársreikning- ar kórónuveirukónganna taka að streyma inn til Skattsins. Þau eru nefnilega til. Fyrir- tækin og einstaklingarnir sem sjá tækifæri í neyðinni og geta ekki stillt sig um að maka krókinn á kostnað ríkis og skattgreiðenda. Undir inn- blásnum ræðum stjórnmála- manna um mikilvægi þess að allir leggi sitt af mörkum á erfiðum tímum. Í nafni sam- stöðunnar. Kannski er ekkert við það að athuga. Rétt fyrirtæki á réttum stað með réttu vörurnar. Svona eins á öllum tímum þrenginga í gegnum tíðina. Þetta er sem sagt Höskuldar- viðvörun. Ef þessar fréttir koma illa við ykkur þá mæli ég einfaldlega með vænum sk a m mt i a f æðr u ley si s- bæninni. Það er lítið sem við, venjulega fólkið, getum við þessu gert. Nema bundið veika von við að þessi mál verði að minnsta kosti tekin til skoðunar. Þó ekki væri nema til að læra af þeim. n Eins dauði ... MARKAÐURINN 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.