Fréttablaðið - 15.06.2022, Side 13

Fréttablaðið - 15.06.2022, Side 13
Sá, sem er „bláeygður“ er oft talinn einfaldur og trúgjarn. Barnalegur. Felst þessi merking orðanna í fyrir- sögninni. Það dýrmætasta sem við eigum Á Íslandi telja ýmsir að Banda- ríki Norður-Ameríku (BNA) tryggi okkur, íbúum hins vestræna heims, öryggi og frelsi, menningu okkar, lífshætti og velferð til frambúðar. Þetta, sem er það dýrmætasta, sem við eigum, standi fyrir tilstyrk BNA á bjargi. Hættulegur barnaskapur Fáfræði og skilningsleysi þessa fólks er fyrir mér á háu og hættulegu stigi. Fáfræði og heimska eru erfið viður- eignar. Þar fer eins um staðreyndir og rök, eins og vatnið, sem skvett er á gæs. Á Alþingi situr fólk, sem er sann- fært um, að BNA veiti okkur fram- tíðaröryggi á öllum sviðum. Er þetta barnaskapur. Klofin þjóð BNA er klofin þjóð. Þar takast á tvær andstæðar fylk- ingar, annars vegar mikillar íhalds- semi og heimóttarskapar, þar sem þröngsýni, þekkingarleysi og sjálfs- dýrkun ráða för, og, hins vegar, frjáls- lyndrar, mannúðlegrar og ábyrgrar alþjóðahyggju, þar sem þekking, víðsýni og tillitssemi við aðra sitja í fyrirrúmi. Þessi klofningur kemur t.a.m. fram í afstöðu til réttar einstaklinga, frá 18 ára aldri, til vopnaburðar, til réttar kvenna til fóstureyðingar, til afstöðu þeirra, sem minnst mega sín í þjóð- félaginu og réttar þeirra til réttlætis og velferðar svo og til afstöðunnar til alþjóðasamvinnu. Donald Trump „America first“ var slagorð Trumps, sem fyrri fylkingin studdi og var til- búin til að rústa sínu eigin þjóðþingi, Capitol, fyrir, og heimta í leiðinni, að varaforsetinn yrði hengdur. Það segir sína sögu um ástandið í BNA, að fávís, sjálfumglaður ribb- aldi, eins og Donald Trump, skyldi vera kosinn forseti landsins. Trump taldi, að hagsmunir BNA ættu að ganga fyrir öllu, að lofts- lagsváin og umhverfispilling væri tilbúningur, fake news, enda sagði hann BNA frá Parísarsamkomulagi þjóða heims og leyfði stórfelld ný loftslags- og náttúruspjöll í sínu eigin landi, jafnframt því sem hann velti upp þeirri hugmynd, að gott kynni að vera, að drekka klórblöndu við Covid. Til að komast yfir konu, taldi hann snjallt að grípa í klof hennar: „Grab them by the pussy.“ Góðvinir Trumps Trump taldi Pútín og Kim Jong-un góða menn og merka, enda naut hann ótæpilegs stuðnings þess fyrr- nefnda í kosningabaráttunni 2016, þar sem ekkert var til sparað af áróðri og ósannindum á netinu, til að tryggja Trump brautargengi. Varð þar til gagnkvæm vinsemd, nánast bræðralag. Hefði Trump vart staðið gegn árásarstríði Pútíns í Úkraínu, hefði hann verið endur- kosinn 2020. Vel fór líka á með Trump og Bol- sonaro í Brasilíu, sem leyfði stór- aukinn ágang á „lungu jarðar“, regn- skógana í Amazon. Uppnám í NATO Sumarið 2018 mætti Trump á NATO- Bláeygðu börnin á Íslandi fund í Brussel, þar sem hann hótaði öðrum aðildarþjóðum, að, ef þær settu ekki þá fjármuni í varnarmál, sem stefnt var á, myndi hann „do his own thing“. Aðspurður, hvað þetta þýddi, hvort BNA myndu ekki verja önnur NATO-lönd gegn mögulegri árás Rússa, ef ekki væri greitt, svaraði Trump: „That´s exactly what it means.“ Trump gaf líka til kynna, að það orkaði mjög tvímælis, hvort verja ætti smáþjóð, eins og „tiny Monte- negro“, sem þá var nýr NATO-með- limur. Öryggisráðgjafi Trumps, John Bol- ton, sem var með honum á ráðstefn- unni, segir í bók sinni „The Room Where it Happened“, að hann hafi verið með lífið í lúkunum, „I had my heart in my throat“, að Trump myndi segja BNA úr NATO á þessum fundi. Í viðtali við The Washington Post bætti hann við, að hann væri sann- færður um, að Trump hefði sagt BNA úr NATO, hefði hann verið endur- kosinn. Hvað með „tiny Iceland“? Sem stendur ræður fylkingin, sem við getum treyst, í BNA. En hversu lengi verður það? Aftur verður kosið 2024. Hverjum veita Bandaríkja- menn þá völdin? Donald Trump, eða einhverjum hans líka? Ef Rússum eða Kínverjum skyldi þóknast að hertaka eyjuna litlu, „tiny Iceland“, norður í Dumbshafi, til að tryggja tökin á Norðurslóðum, hvað skyldi þá Trump, eða annar slíkur, gera, ef BNA væri þá enn í NATO? Við getum ekki treyst á BNA með varnir, frelsi og öryggi Evrópu. Held- ur ekki á Tyrki, sem búa yfir öðrum fjölmennasta her NATO-ríkjanna. ESB-löndin 27 mynda kjarna Evr- ópuþjóða. ESB býr yfir gífurlegum efnahagsstyrk, sem nú verður að færa yfir í varnar- og hernaðarstyrk, í framtíðinni verður hvort tveggja að koma til, og verður Ísland að gerast fullur þátttakandi í þessu samstarfi evrópskra systra- og bræðraþjóða okkar. Annað væri bláeygður barna- skapur og ábyrgðarleysi. Heimska. n Ole Anton Bieltvedt stjórnmálarýnir og dýraverndar- sinni RARIK ohf | www.rarik.is Opin hús hjá RARIK í tilefni af 75 ára afmæli Í dag, miðvikudaginn 15. júní verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðsvegar um landið í tilefni af 75 ára afmæli fyrirtækisins. Þá munu starfsmenn RARIK taka á móti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækisins á hverjum stað og bjóða upp á kaffi og aðrar veitingar. Viðskiptavinir, eldri starfsmenn og aðrir velunnarar RARIK eru sérstaklega velkomnir. Opnu húsin verða frá kl. 16:00 til 18:00 á eftirtöldum stöðum: Borgarnes: Sólbakki 1 | Stykkishólmur: Hamraendar 2 | Blönduós: Ægisbraut 3 | Sauðárkrókur: Borgartún 1a Akureyri: Óseyri 9 | Þórshöfn: Langanesvegur 13 | Egilsstaðir: Þverklettar 2-4 | Fáskrúðsfjörður: Grímseyri 4 Hornafjörður: Álaugarvegur 11 | Hvolsvöllur: Dufþaksbraut 12 Verið velkomin og fagnið með okkur merkum áfanga í sögu RARIK. MIÐVIKUDAGUR 15. júní 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.