Fréttablaðið - 15.06.2022, Qupperneq 16
Karítas Ármann starfaði síðasta
vetur hjá Kempinski Hotel Mall
of the Emirates hótelinu í Dúbaí.
Þar gegnir hún stöðu „Lady in
Red“, sem er nokkurs konar gest-
gjafi hótelsins. Starfið er ein af
lykilstöðum innan Kempinski
keðjunnar en hún sér um að taka
á móti gestum og sjá um að bjóða
upp á persónulega, faglega og
einlæga þjónustu. „Ég sé því um
móttöku gesta, skipulegg allar
komur VIP gesta, samskipti við
gesti, tek á móti öllum séróskum
og meðhöndla ábendingar og
kvartanir þegar þær koma upp,
ásamt ýmsum fleiri verkefnum.“
Karítas hóf störf í Dúbaí eftir
að hafa lokið námi við César Ritz
hótelskólann í Sviss en þar áður
hafði hún lokið Diploma in Hospit-
ality management frá HR.
Komið víða við
Segja má að Karítas hafið verið
viðloðandi einhvers konar ferða-
þjónustu frá því hún var stelpa. „Ég
er fædd og uppalin á Friðheimum
í Bláskógabyggð og er því sveita-
stelpa í húð og hár. Frá yngri árum
hef ég verið starfandi í fjölskyldu-
fyrirtækinu okkar og hef því í raun
alist upp í ferðaþjónustugeiranum.
Þar spratt upp mikill áhugi fyrir
ferðaþjónustu og þjónustustörf-
um, ásamt mikilli ævintýraþrá til
að sjá, skoða og upplifa heiminn
og kynnast ólíkum menningar-
heimum. Síðustu ár hef ég farið
í spænskuskóla á Spáni, dvalið
nokkrar vikur í Svíþjóð að vinna á
hestaleigu, verið í háskóla í Sviss,
og núna síðastliðið haust flutti ég
út til Dúbaí.“
Langaði að prófa eitthvað nýtt
Stefnan var ekkert endilega sett á
Dúbaí að námi loknu í Sviss, segir
Karítas. „Á síðustu önninni minni
í Sviss var ég farin að hugsa hvað
ég ætti að gera eftir útskrift. Mig
langaði að prófa eitthvað nýtt
og að fara eitthvert út í heim og
heimsækja ný lönd. Fyrirtækið
sem ég vinn hjá hafði samband við
mig og bauð mér í atvinnuviðtal.
Síðan hófust margir Zoom-fundir
með ólíkum stjórnendum hjá
fyrirtækinu og eftir nokkrar vikur
ákvað ég að taka af skarið og sam-
þykkja atvinnutilboðið hjá þeim.
Þetta var í raun mjög óvænt þar
sem ég hafði aldrei íhugað að flytja
til Dúbaí, en á sama tíma mjög vel-
komið tilboð þar sem ég var í leit
að einhverju nýju og öðruvísi.“
Lærði að standa á eigin fótum
Hún segir dvölina í Sviss hafa verið
æðislega og hún hugsi oft hvað
hún væri til í að upplifa það ævin-
týri aftur. „Þetta var að sjálfsögðu
mikill rússíbani og hafði sína kosti
og galla, eins og allt annað, en
yfir það heila þá var þetta besta
ákvörðun sem ég hef tekið. Ég
lærði alveg helling, kynntist svo
mörgu fólki alls staðar að úr heim-
inum og öðlaðist tækifæri sem ég
hefði aldrei getað ímyndað mér,
ásamt því að stækka tengslanetið
til muna.“
Skólinn var mjög alþjóðlegur að
hennar sögn, sem skapaði mjög
skemmtilegt umhverfi. „Við
bjuggum og lærðum á tveimur
stöðum í Sviss, fyrst í Lucerne, sem
er fallegasta borg sem ég hef búið í,
og síðan í bæ sem heitir Brig og er
rétt við landamæri Ítalíu. Að vera
frá fjölskyldu og vinum á Íslandi
kenndi mér líka að standa á eigin
fótum og það er reynsla sem hefur
styrkt mig mikið, og væri ég ekki
á þeim stað sem ég er á í dag án
hennar.“
Að vera á heimavist með fólki
frá ólíkum löndum gaf henni
einnig færi á að kynnast ólíkum
menningarheimum og kenndi
henni margt um samskipti og
mannlega hegðun milli fólks með
mismunandi uppruna. „Námið
styrkti mann því ekki aðeins fag-
lega heldur einnig sem persónu
og ýtti undir mikinn vöxt hjá mér
persónulega.“
Spennt fyrir framtíðinni
Næstu ár eru nokkuð óráðin að
sögn Karítasar. „Ég er bara smá
að spila af fingrum fram en að
sjálfsögðu er draumurinn að vaxa
innan hótel- og ferðaþjónustugeir-
ans og öðlast frekari þekkingu og
reynslu. Ég hef mikla ástríðu fyrir
að vinna með fólki og finnst mjög
skemmtilegt að læra nýja hluti
og kynnast nýjum menningar-
heimum, svo hver veit hvar ég enda
á næstu árum. Einnig er ég mjög
opin fyrir nýjum tækifærum og er
alltaf að leitast við að læra eitthvað
nýtt, svo ég er mjög spennt að sjá
hvað framtíðin ber í skauti sér. Í
sumar ætla ég þó að einbeita mér
að starfi mínu hjá Friðheimum, þar
sem ég er meðal annars að vinna
að nýjum og spennandi verkefnum
með fjölskyldunni. En næsti vetur
er alveg óráðinn.“ n
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Foreldrar Karítasar heimsóttu hana til Dúbaí og ferðuðust aðeins um landið.
Karítas Ármann útskrifaðist frá César Ritz í Sviss eftir að hafa stundað nám í Háskólanum í Reykjavík. MYNDIR/AÐSENDAR
Sólsetrið í Dúbaí er fallegt.
Skýjakljúfarnir í
Dúbaí setja svip
sinn á borgina.
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Ég hef mikla
ástríðu fyrir að
vinna með fólki og finnst
mjög skemmtilegt að
læra nýja hluti.
Karítas Ármann
2 kynningarblað A L LT 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR