Fréttablaðið - 15.06.2022, Síða 28

Fréttablaðið - 15.06.2022, Síða 28
Víkingahátíðin í Hafnarfirði hefst í 25. skipti á Víðistaða­ túni í dag með tilheyrandi axarkasti, bogfimi, bardaga­ sýningum og handverki. arnartomas@frettabladid.is Víkingahátíðin í Hafnarfirði hefst í dag, nú þegar víkingar landsins hafa loks skriðið undan feldi sótt­ varna. Hátíðin, sem stendur yfir á Víðistaða túni fram á sunnudag, er rótgróin hluti af menningu Hafnar­ fjarðar og á sér fjölda fastagesta. Dagskrá hátíðarinnar verður að vanda fjölbreytt en þar verður meðal annars boðið upp á bar­ dagasýningar, leikjasýningu, glímu­ kennslu, bogfimi og axarkast. Þótt stóru bardagasýningarnar hafi í gegnum árin verið stærsta aðdrátt­ araflið segir Jökull Tandri Ámunda­ son, jarl hjá Rimmugýgi og einn af skipuleggjendum hátíðarinnar síðan 2018, að félagið hafi reynt að bæta við smærri viðburðum til að efla hátíðina enn frekar. „Þarna verður steinsmiður að skera út minningarstein fyrir frá­ fallinn félaga, handverksfólkið okkar að sníða og jurtalita, land­ námshænur til að klappa og knatt­ leikur til að horfa á,“ segir hann. „Svo eru auðvitað nokkrir sem sækja í mjöðinn og bjórinn sem Öldur brugghús býður upp á.“ Þéttbókaðir víkingar Víkingafélagið Rimmugýgur var stofnað 1997, tveimur árum eftir að fyrsta víkingahátíðin var haldin. Stofnfélagar voru sjö, sumir starfs­ menn Fjörukrárinnar, sem fóru strax í að undirbúa næstu hátíð. Síðan þá hefur félagið vaxið til muna og telur nú 205 meðlimi á þessu 25. starfsári félagsins. En hvað eru félagarnir að aðhaf- ast þegar ekki er hátíð? „Það eru bardagaæfingar tvisvar í viku, allt árið um kring fyrir utan smásumar­ og vetrarfrí,“ segir Jökull Tandri. „Bogfimiæfingarnar okkar eru einu sinni í viku og það stendur til að fjölga þeim. Svo æfum við leiki, söng, handverk og förum á alls kyns námskeið og sýningar.“ Rimmugýgur hefur einnig átt í samstarfi við önnur félög á borð við Reykjavik HEMA og Glímusam­ bandið. Þá hafa einnig verið fengnir kennarar að utan í alls konar vinnu­ stofur sem félagarnir sækja. Bræðralag jaðarnörda Rimmugýgur barst til tals hjá blaða­ manni á dögunum þar sem viðmæl­ andi dásamaði liðsmenn félagsins fyrir að vera miklir höfuðnördar. Jökull Tandri tekur þar stoltur undir. „Þetta er náttúrlega jaðar­ nördasamfélag sem við erum – eins konar bræðralag, eða það sem ég kýs að kalla fjölskyldu,“ segir hann. „Það er mikið af fólki sem kemur í hópinn sem á kannski ekki annan samastað og finnur sér þessa sam­ nörda sem elska allt sem tengist víkingaöld; handverki, bardagalist og menningu þess.“ Hátíðin hefst klukkan 11.00 í dag og aðgangur er ókeypis. n Víkingar vakna úr dvala Bogfimi hefur sótt í sig veðrið á heimsvísu á undanförnum árum. Bardagasýningarnar eru einn vinsælasti dagskrárliðurinn ár hvert. MYNDIR/RIMMUGÝGUR arnartomas@frettabladid.is Þótt ekki sé hægt að segja að ríki sterk Jónsmessuhefð í Sky Lagoon, aldri lónsins samkvæmt, verður þó haldið upp á sumarsólstöðurnar í böðunum. Orðfimleikamaðurinn Bragi Valdi­ mar Skúlason hefur verið fenginn til að semja texta um messuna sem spilaður verður á íslensku og ensku fyrir gufubaðsgesti í lóninu næstu tvær vikur. „Við höfum lagt áherslu á það í einu og öllu að finna leiðir til að heiðra íslenska menningu og sögu, bæði í gegnum baðmenningu og með arf leifðinni í torf bænum, klömbruhleðslunni og öðru,“ segir Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, markaðs­ og  upplifunarstjóri hjá Sky Lagoon. „Nú þegar hefur verið opið í eitt ár kom svo skýrt í ljós að ljósaskiptin spila stórt hlutverk í upplifun gesta. Við vildum þannig sameina þessi töfrandi sólsetur við þá ríku sögu sem við eigum.“ Þótt túristarnir flykkist ólmir til landsins til að sleikja miðnætur­ sólina segir Ragnheiður Harpa að Íslendingar sækist jafngrimmt í hana. „Það er gott að minna okkur heimamenn á töfrana sem fylgja þessum tíma og okkur fannst eins og sánan væri góður staður til að kynna fólk fyrir þessu,“ segir hún. „Textinn frá Braga er passlega lang­ ur svo það ætti enginn að gleyma sér í hitanum.“ n Gufudraumur á Jónsmessunótt Fer nokkuð betur með gufunni en þjóðlegur fróðleikur? MYND/AÐSEND toti@frettabladid.is Tónlistarmaður­ inn Einar Bjartur Stefánsson hefur undanfarið sent frá sér fjórar smáskífur; Dans­ andi skuggar, Upphaf, Köld birta og Bakvið tjöldin. Lögin eru nú öll saman komin á smáskífunni Kyrrð, sem kom á Spotify og aðrar streymis­ veitur á föstudaginn, ásamt fimmta laginu sem platan dregur nafn sitt af. Einar reynir með tónlist sinni að færa fólki frið í dagsins önn en lögin á Kyrrð urðu til þegar hann reyndi að finna innri ró við píanóið heima hjá sér. Hugmyndin að hverju lagi spratt upp úr sterkum tilfinningum sem leituðu á hann og hann reyndi síðan að finna farveg á píanóinu. Hann þróaði þessar hugmyndir síðan áfram, bætti við fiðlu og selló þannig að úr urðu fullunnin verk sem saman mynda hugljúfa heild ýmissa ólíkra tilfinninga. Hljóðheim plötunnar mynda, auk tónskáldsins Einars Bjarts sem leikur á píanó, þær Chrissie Guð­ mundsdóttir fiðluleikari og Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari. Einar Bjartur hóf píanónám sjö ára í Tónlistarskólanum í Reykja­ hlíð við Mývatn en eftir að hann fluttist til Reykjavíkur hélt hann áfram að læra í Tónskóla Sigur­ sveins D. Kristinssonar og síðar í Listaháskóla Íslands, undir hand­ leiðslu Peters Máté, þaðan sem hann útskrifaðist vorið 2013. Einar hefur áður gefið út tvær hljómplötur með píanóverkum eftir svissneska tónskáldið Frank Baumann en nú er komið að hans eigin tónsmíðum á Kyrrð. Innri ró við píanó Einar Bjartur Stefánsson Kónguló er nýtt verkefni tón­ listarkonunnar Herdísar Stefáns­ dóttur, sem gaf tóninn fyrir það sem koma skal með laginu Be Human sem kom út á streymis­ veitum á föstu­ daginn. Fyrsta Kóngulóarlagið gefur tóninn fyrir það sem koma skal en í því nýtur Herdís aðstoðar Sölku Vals úr Reykjavíkurdætrum, sem syngur og rappar í laginu undir nafninu „neonme“. Herdís, sem er þekktust fyrir tónsmíðar sínar fyrir kvikmyndir og sjónvarp, hefur haft í nógu að snúast undanfarið en hún hefur nýlokið við að semja tónlistina fyrir þáttaröðina The Essex Serp­ ent á Apple+ streymisveitunni þar sem hún hefur fengið góðar viðtökur. Þá hefur hún skipað rafdúettinn East of My Youth, en Kónguló, með Be Human, er fyrsta sóló­ verkefni hennar. „Ég hef verið skít­ hrædd við kóngulær frá því að ég var barn, en hefur þó alltaf fund­ ist þær heillandi verur, með átta langar lappir og sína meistaralegu vefi. Ég er búin að vera að vinna í þessari tónlist lengi og það hefur verið langt ferli að koma þessu út,“ segir Herdís og rennir stoðum undir nafnið á verkefninu. „Þess vegna er kannski vel við hæfi að kalla verkefnið Kónguló, þar sem mér finnast kóngulær svo hræði­ legar.“ n Kónguló gefur tóninn Herdís Stefánsdóttir n Fréttir af fólki Svo eru auðvitað nokkrir sem sækja í mjöðinn og bjórinn. 24 Lífið 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.