Fréttablaðið - 12.07.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 12.07.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is 3 ára Við fögnum 3 ára afmæli núna í júlí! Á síðustu 3 árum höfum við tekið á móti 360 .000 gestum, sem er næstum því allt Ísland! Ensku leikar- arnir Dominic Cooper og Gemma Chan fylgdust áhugasöm með mótinu. Parið tók saman árið 2018 og býr saman í London. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTy Melinda Gates mætti á mótið í sínu fínasta pússi. Enska Bridger- ton-stjarnan, leikarinn Regé-Jean Page, ásamt kær- ustunni, Emily Brown, sem starfar í auglýs- ingabransanum. Leikaraparið Rami Malek og Lucy Boynton kynntist við tökur á kvik- myndinni Bohemian Rhapsody. Sir Cliff Richard lét sig ekki vanta á mótinu. Hollywood-stjörnuna Kate Winslet má sjá fyrir miðri mynd. Árið 2012 hlaut Winslet heiðursorðu bresku krúnunnar fyrir leiklist. Nýlega einhleypur Tom Cruise fagnaði sex- tugsafmælinu í síðustu viku. Fyrirmenni og frægðarfólk lét sig ekki vanta á áhorfenda- pallana á Wimbledon-mótinu í London í vikunni sem leið. ninarichter@frettabladid.is Wimbledon-mót inu í tennis lauk um helgina með sigri Ser- bans Novak Djokovic, sem vann mótið í sjöunda skipti á ferlinum. Elena Rybakina frá Kasakstan vann kvennamótið deginum áður. Wimbledon er eitt af fjórum Grand slam-tennismótunum, ásamt Ástr- ölsku, Frönsku og Bandarísku opnu mótunum, en Wimbledon-mótið er einstakt að því leyti að það fer fram á grasvelli. Hér er um að ræða eitt frægasta íþróttamót heims en á sama tíma er mótið sannkallaður yfirstéttarvið- burður, enda eru meðlimir bresku konungsfjölskyldunnar fastagestir. Hefðir Wimbledon fela í sér alhvít- an klæðaburð fyrir keppendur. Það er einnig hefð að borða jarðarber og rjóma á mótinu. Ólíkt því sem gerist á öðrum mótum eru auglýsingar í lág- marki. Þær auglýsingar sem sjást eru gjarnan lágstemmdar og frá lúxusfyrirtækjum á borð við Rolex. W i m b l e d o n - mótið fer fram í Wimbledon-þor p- inu svokallaða, sem er stórt úthverfi í suð- ve s t u rh lut a L ondon . Wimbledon-mótið fór fyrst fram árið 1877 í Enska krikket- og tennis- klúbbnum, eins og hann kallaðist í þá daga.n Sláttur á elítunni í London ninarichter@frettabladid.is Bob Dylan varð áttræður í fyrra og heldur ótrauður áfram, með sex- tíu ára feril að baki. Tónleikaferð vegna nýjustu plötunnar, Rough and Rowdy Ways, stendur nú yfir og hefur söngvarinn ferðast um Banda- ríkin þver og endilöng síðan í nóvem- ber í fyrra. Síðasti leggur ferðarinnar er Evróputúr sem hefst í september. Dylan hefur leika í Osló, fer þá næst til Stokkhólms og síðan til Kaup- mannahafnar. París og Brussel eru næst á listanum og þá lýkur 11 mán- aða tónleikaferðinni í Amsterdam þann 17. október. Athygli vekur að símabann er á öllum tónleikunum og er tónleika- gestum gert að skila símum í öryggis- tösku. Því geta þeir ekki notað tækin meðan á sýningu stendur. Símabannið er ekki nýtt fyrirbæri hjá stjörnunni en Dylan rataði í frétt- irnar eftir tónleika í Austurríki í apríl 2019, þegar hann stöðvaði tónleika í miðju lagi til að ræða við áhorfendur sem höfðu reynt að ná af honum myndum þrátt fyrir bannið. „Við getum annaðhvort spilað eða stillt okkur upp,“ sagði hann pirr- aður við áhorfendur áður en hann söng eitt lag í viðbót og gekk svo af sviðinu. Hljómsveitin lauk þá kvöldinu snemma með ósunginni útgáfu af „Just like Tom Thumb’s Blues.“ Árið 2010 birti The Wall Street Journal grein þar sem höfundur lýsti því hvernig Dylan brosti aldrei á tón- leikasviði og talaði aldrei beint við áhorfendur. Hann hvorki dansaði né ferðaðist um á sviðinu, en þrátt fyrir það kynni hann svo sannarlega að setja á fót stórkostlega sýningu, á eigin forsendum. Dylan hefur einn- ig verið gagnrýndur fyrir frjálslegar endurútsetningar á tónleikum þar sem lögin verða næsta óþekkjanleg. Tónlistarmaðurinn hefur vaðið fyrir neðan sig ef bransinn skyldi bregðast honum og setur ekki öll eggin í eina körfu. Fyrir nokkrum árum sneri hann sér að viskíbrans- anum. Hann framleiðir í dag nokkrar viskítegundir undir merkjum Hea- ven’s Door í Tennessee. Miðstöð vörumerkisins er í 160 ára gamalli kirkju í miðbæ Nashville. n Símabann og vonir um viskíframa Dylan í New York árið 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTy 18 Lífið 12. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.