Fréttablaðið - 12.07.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.07.2022, Blaðsíða 4
FIAT.IS • ISBAND.IS FULLKOMINN Í BORGARFERÐIR „Ítölsk hönnun hefur alltaf veitt okkur í HAF studio mikinn innblástur og þess vegna varð rafknúinn Fiat 500e fyrir valinu.“ Haf steinn Júlí us son og Karítas Sveins dóttir NÝ SENDING Á LEIÐINNI – TRYGGÐU ÞÉR EINTAK ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA ragnarjon@frettabladid.is FERÐALÖG Brottfarir Íslendinga frá Keflavíkurflugvelli í júní mældust um 66 þúsund og hafa þær einungis tvisvar áður mælst svo margar í júní, eða árin 2016 og 2018. Þetta kemur fram í tölum Ferða­ málastofu. Þegar mest var, í júní 2018, voru brottfarir 71 þúsund. Frá áramótum hafa brottfarir Íslend­ inga verið um 266 þúsund eða 83 prósent af því sem þær mældust á sama tímabili 2018. n Landinn flaug út í stórum stíl í júní Íslendingar ferðast nú nánast eins mikið og fyrir faraldurinn. sigurjon@frettabladid.is BRETLAND Á næstu vikum stendur breski herinn að þjálfun tíu þúsund úkraínskra hermanna, æfingarnar munu fara fram í Bretlandi. Ben Wall ace, varnarmálaráðherra Bret­ lands, staðfesti þetta um helgina. Talið er að úkraínski herinn missi um tvö hundruð hermenn dag hvern. Skiptir það sköpum fyrir vonir Úkraínu að nýir hermenn séu vel þjálfaðir. Rúmlega þúsund breskir hermenn koma að þjálfuninni, sem fer fram víða um Bretland. Úkraínsku her­ mennirnir, sem fyrst um sinn voru aðeins sjálfboðaliðar með litla sem enga hernaðarreynslu, fá grunn­ þjálfun frá breska hernum, svo sem í meðhöndlun vopna, skyndi­ hjálp á vígvelli, eftirlitsaðferðum og kennslu í lögum um vopnuð átök. n Úkraínumenn æfa í Bretlandi Sjálfboðaliðar í her Úkraínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Forstjóri Síldarvinnslunnar segir kaup félagsins á útgerð­ arfélaginu Vísi í Grindavík dæmi um skynsamleg við­ skipti. Þingmaður Viðreisnar hefur áhyggjur af frekari samþjöppun í sjávarútvegi og segir þjóðina kalla eftir sanngirni. bth@frettabladid.is VIÐSKIPTI Hlutabréf í Síldarvinnsl­ unni hækkuðu um 7,4 prósent í við­ skiptum gærdagsins eftir að félagið tilkynnti um kaup á útgerðarfélag­ inu Vísi í Grindavík. Samtals nema viðskiptin um 31 milljarði króna en með þeim verða seljendur í Grindavík meðal kjöl­ festufjárfesta í Síldarvinnslunni hf. Hanna Katrín Friðriksson, þing­ maður Viðreisnar, telur kaupin sýna enn og aftur hve brýnt sé að fara ofan í saumana á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. „Við erum að horfa upp á enn frekari samþjöppun á eignarhaldi. Það er það sem er að gerast. Yfirráð yfir auðlindum þjóðarinnar færast á sífellt færri hendur.“ Að sögn Hönnu Katrínar er held­ ur lítið eftir af helstu rökum þeirra sem hafa staðið vörð um óbreytt kerfi. „Þeir sem harðast hafa gengið fram hafa einmitt haldið því fram að þær breytingar, sem við í Við­ reisn höfum talað fyrir, muni leiða til samþjöppunar á eignarhaldi. Sem er einmitt það sem er að gerast innan núverandi kerfis. Það er stóra myndin í þessu. Það fer að verða heldur lítið eftir af helstu rökum þeirra sem standa á bremsunni, verð ég að segja.“ Hanna Katrín segir þetta enn eina sönnun þess að þjóðin geti ekki beðið mikið lengur eftir aðgerðum. „Það þarf ekkert að skrifa f leiri skýrslur um þessi mál. Það er búið að kortleggja allt sem þarf að kort­ leggja. Stjórnmálamenn þurfa bara að hafa kjark til að standa með almannahagsmunum og ráðast í þær breytingar á kerfinu sem meiri­ hluti þjóðarinnar er að kalla eftir.“ Gu n nþór Ing va son, f r a m­ kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, segist ekki gefa mikið fyrir gagn­ rýni á viðskipti sem hann segir marka ákveðin þáttaskil og fela í sér stórtíðindi. „Ég hef heyrt fólk lýsa yfir ánægju með viðskiptin en ég kannast líka alveg við gagnrýnina.“ Að hans mati er frekar sérstakt að heyra stjórnmálamenn gagn­ rýna viðskipti sem muni styrkja tvö öflug félög og séu í rauninni til þess fallin að auka gagnsæi. „Síldarvinnslan er skráð félag á markað og í rauninni eru eigendur Vísis að skrá sitt félag á markað í gegnum Síldarvinnsluna með þess­ ari sölu. Það er í anda þess sem kallað hefur verið eftir. Að auka gagnsæi í sjávarútvegi. Ég myndi því telja þetta jákvætt skref í þá átt.“ Að mati Gunnþórs er vel hægt að benda á aukna samþjöppun í sjávarútvegi við þessi tíðindi. „En fyrir mér eru þetta fyrst og fremst skynsamleg viðskipti. Vísir hefur fjárfest í fullkominni vinnslu í Grindavík. Fyrirtækið hefur yfir hátæknivinnslu að ráða í námunda við alþjóðaflugvöll og Síldarvinnslan kemur að borðinu með heimildir. Þar af leiðandi passa þessi félög vel saman. Við erum sannfærð um að viðskiptin muni styrkja bæði félögin til lengri tíma. Það er það sem vakir fyrir okkur,“ segir Gunn­ þór. Kaup Síldarvinnslunnar á Vísi eru háð niðurstöðu áreiðanleika­ könnunar og samþykki hluthafa­ fundar Síldarvinnslunnar hf. og Samkeppniseftirlitsins. Svandís Svavarsdóttir mat­ væla ráðherra sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki ætla að tjá sig um viðskiptin, eða hvaða þýðingu þau kunni að hafa, fyrr en Samkeppnis­ eftirlitið hefur haft tækifæri til að fara yfir málið. n Áhyggjur af frekari samþjöppun Útgerðarfélagið Vísir hefur fjárfest í hátæknivinnslu í Grindavík að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hanna Katrín Frið- riksson, þingmaður Viðreisnar Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar ingunnlara@frettabladid.is JAPAN „Lögreglan hefði átt að bregðast fyrr við til að koma í veg fyrir þetta brjálæði,“ segir Royta­ tio Suzuki, sendiherra Japans, um morðið á Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans. Suzuki frétti af morðinu snemma á föstudeginum. Hann vaknaði við skilaboð frá vini sínum á Filippseyj­ um sem sagðist vera harmi sleginn yfir skotárásinni. Fregnirnar slógu Suzuki og hann opnaði vafrann í símanum og skannaði allar helstu fréttaveitur. Honum þótti átakan­ legt að sjá myndefnið sem birtist af árásinni. En af myndböndunum að dæma þótti Suzuki að viðbrögðin hefðu mátt vera skjótari. „Tveimur skotum var hleypt af. Þrjár sekúndur liðu á milli skotanna og hið seinna hæfði hann. Þessar þrjár sekúndur skildu á milli lífs og dauða,“ segir Suzuki en hann telur að ef þetta hefði verið í Bandaríkjunum hefði leyniþjónustan getað komið í veg fyrir árásina. „Leyniþjónustan í Bandaríkjunum er þjálfuð fyrir svona kringumstæð­ ur en árásin kom japönsku lögregl­ unni í opna skjöldu.“ Skotárásir og morð eru sjaldgæf í Japan enda eru vopnalög þar ströng. „Það að eiga og bera byssu er ekki eitthvað sem Jap­ anar líta á sem sjálfsagðan rétt sinn,“ útskýrir Suzuki. „Það er hættulegt að eiga byssu í miklu þéttbýli og Japan­ ar líta á það sem heilbrigða skynsemi að hafa ströng lög um skotvopn.“ n Sendiherra gagnrýnir hæg viðbrögð lífvarða Abe Roytatio Suzuki sendiherra Japans á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Nánar á frettabladid.is 4 Fréttir 12. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.