Fréttablaðið - 12.07.2022, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 12.07.2022, Blaðsíða 13
Fasteignir.Frettabladid.is Fasteignablaðið 28. TBL. 12. júlí 2022 Miklaborg kynnir: Sérstak- lega fallegt og mikið endur- nýjað einbýli á í Skerjafirði, um 2 mínútna gang frá sjón- um. Heillandi endurnýjaður suðurgarður tengist glæsilegri stofu með gólfsíðum gluggum í einstöku flæði. Birta og gott flæði einkennir húsið sem er í heillandi skandinavískum stíl þar sem úti- og innirými kallast skemmtilega á. Komið er inn í forstofu með góðum skápum. Á vinstri hönd er hjónasvíta, inn af henni er gott baðherbergi með sturtu. Barnaálman er á hægri hönd frá holi, þar er nýuppgert fallegt baðherbergi með flísum, gólfhita, sturtu og opnanlegum glugga. Barnaherbergin eru nú tvö en þrjú skv. teikningu og auðvelt væri að breyta í fyrra horf. Eldhúsið er opið í sígildum stíl og stofurnar eru bjartar og tengjast vel garðinum. Sökklar, gólf og berandi inn- veggir eru steinsteypt og útveggir eru hlaðnir. Síðustu tvo áratugina hafa verið gerðar miklar endurbætur ytra og innra. Árið 2002 var þakjárn endurnýjað á íbúðarhluta, en árið 2016 á bílskúr. Neysluvatns- og frárennslislagnir voru endur- gerðar, sett ný inntök fyrir heitt og kalt vatn, auk brunns við götu árið 2005. Það ár var eldhús flutt og endurgert og hjónasvíta útbúin. Rafmagnstafla var endurnýjuð árið 2005 og allar raflagnir og tenglar og rofar endurnýjaðir árið 2006. Breytingar á lagnakerfi og innra skipulagi og viðbætur við húsið eru eftir teikningum sem samþykktar eru af byggingarfull- trúa. Hitalagnir eru í stétt fyrir framan húsið. Árið 2010 var sprunguviðgert á framhlið og vesturhlið með inndælingu í veggi og allir veggir múraðir og sílanvarðir og skipt um öll gler og glugga. Árið 2016 var byggð 28,8 fm glæsileg borðstofa með gólfsíðum gluggum og sérstaklega stórum rennihurðum. Allir gluggar og hurðir viðbyggingarinnar eru álklæddir, en burðarvirki er úr stáli og timbri. Garður endurgerður frá grunni á töfrandi hátt, með úthugsaðri samsetningu á plöntum sem blómstra á mismunandi tímum. Stór sólpallur með hitaveitupotti var settur á suðurhlið og veggir þeirrar hliðar voru klæddir að utan með sítrusvið. Sólar nýtur í garðinum frá morgni til kvölds. Í garðinum er jafnframt rúmgóð verkfæra- og hjólageymsla. Árið 2017 var bílskúrinn tekinn í gegn, loft gipsklædd og epoxy lagt á gólfin, þar eru mjög góðir skápar eftir endilöngum vegg. Þá var settur gólfhiti og fallegt harð- parket á allt íbúðarrýmið utan baðherbergja sem eru flísalögð. Gólfhiti í íbúðarrými er sjálfstýrð- ur, nema í borðstofu sem er með eigið kerfi. Árið 2021 var sett falleg timburklæðning úr lerki við þak- skegg. Útveggir hafa verið málaðir reglulega, síðast nú í sumar. Einstaklega heillandi og skemmtilegt endurnýjað einbýli á þessum vinsæla stað. n Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsd. lgf, sími 773-6000 og thorunn@miklaborg.is Mikið uppgert einbýli í Skerjafirði Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali. Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu. BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið. Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is Sérhæfð lögfræðiþjónusta með áherslu á 60+ Borðstofan tengist veröndinni með rennihurðum. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum, meðal annars er ný borðstofa með gólfsíðum gluggum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.