Fréttablaðið - 02.08.2022, Side 6
gar@frettabladid.is
DALABYGGÐ Bjóða á félagsheimilið
á Staðarfelli til sölu. Hvorki Dala-
byggð né kvenfélagið Hvöt og ung-
mennafélagið Dögun, sem eiga
samtals 35 prósent í húsinu á móti
sveitarfélaginu, geta eða vilja leggja
fé í nauðsynlegt viðhald.
Forystumenn Dalabyggðar fund-
uðu með fulltrúum félaganna um
miðjan júlí. „Ljóst er að félagsheim-
ilið þarf á umtalsverðu viðhaldi að
halda og ekki eru forsendur fyrir
rekstri þess,“ er bókað um málið í
fundargerð byggðarráðs Dalabyggð-
ar. „Fram kom að félögin gætu ekki
tekið húsið yfir. Var það samhljóða
niðurstaða fundarins að skásti val-
kosturinn væri að selja húsið.“ n
Félagsheimilið á
Staðarfelli til sölu
gar@frettabladid.is
BORGARBYGGÐ Byggðarráð Borgar-
byggðar hefur þegið boð Fasteigna-
þróunarfélagsins Festis og JVST
arkitekta um að þessir aðilar leiði
vinnu við heildarskipulag í Brák-
arey í Borgarnesi. Verður það gert í
samstarfi við bæjaryfirvöld.
„Lögð verði áhersla á samráð við
íbúa og hagsmunaaðila í skipulags-
og hugmyndavinnu. Byggðarráð
hefur væntingar til þess að nýtt
rammaskipulag muni taka mið
af því að í Brákarey verði blönduð
byggð og starfsemi sem muni laða
að sér mannlíf og auka lífsgæði
íbúa,“ segir byggðarráðið í sam-
þykkt sinni um málið. n
Nýtt skipulag færi
líf út í Brákarey
Brákarey í Borgarnesi.
olafur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Nú styttist óðum í að
heilbrigðisráðuneytið og félags- og
vinnumarkaðsráðuneytið flytji í ný
húsakynni við Síðumúla í Reykjavík.
Stórhýsið við Síðumúla 24 hýsti
áður Tryggingamiðstöðina, en á
árunum fyrir hrunið voru þar höfuð-
stöðvar FL-Group, fjárfestingafélags
sem meðal annars var móðurfélag
Icelandair.
Ráðuneytin tvö hafa á undan-
förnum árum lent í heilmiklum
húsnæðishrakningum, meðal ann-
ars vegna þess að rakaskemmdir og
mygla virðast hafa elt þau á röndum.
Vonandi rætist úr þegar þau kom-
ast í ný heimkynni í Síðumúlanum,
sem á árum áður var stundum nefnd-
ur Blað-Síðumúli í gamni vegna
þess hve mörg dagblöð höfðu þar
ritstjórnarskrifstofur sínar, meðal
annars Vísir og Dagblaðið sem síðar
sameinuðust undir merki DV. Í síðu-
múlanum voru líka Tíminn (síðar
NT) og Þjóðviljinn og raunar flest, ef
ekki öll dagblöð landsins, önnur en
Morgunblaðið, sem var í Aðalstræti
þar til blaðið flutti í Kringluna og
loks upp að Rauðavatni.
Húsnæðið í Síðumúla er hugsað
sem lausn til bráðabirgða þar til
búið verður að gera upp húsnæði
fyrir ráðuneytin við Skúlagötu 4, í
Sjávarútvegshúsinu sem nú er verið
að gera gagngert upp.
Upphaflega áttu ráðuneytin að
f lytja í Síðumúlann í maí síðast-
liðnum. Húsnæðið var sagt henta
starfsemi þeirra vel og ekki þyrfti að
gera miklar breytingar. Þetta hefur
dregist nú í um þrjá mánuði og enn
standa yfir framkvæmdir í húsinu.
Slíkar tafir eru ekki með öllu óþekkt-
ar þegar kemur að framkvæmdum á
vegum ríkisins.
Nú er í öllu falli búið að merkja
húsið vel og vandlega Stjórnarráðinu
og ráðuneytunum þótt enn sé pappír
fyrir gluggum. n
Ráðuneyti flytja til bráðabirgða í Síðumúlann
Búið er að merkja fyrrum höfuð-
stöðvar TM og FL-Group Stjórnarráði
Íslands þótt enn virðist nokkuð í að
framkvæmdum ljúki innandyra.
Hjónin Halldóra Árnadóttir
og Karl B. Örvarsson voru
í gær að leggja lokahönd á
brotthvarf sitt frá Reykjum í
Hrútafirði þar sem þau hafa
rekið skólabúðir um langt
árabil.
gar@frettabladid.is
DALABYGGÐ „Við hyggjumst fyrst
og fremst reka ferðaþjónustu á
Laugum,“ segir Karl B. Örvarsson,
sem ásamt konu sinni Halldóru
Árnadóttur er að hverfa úr Hrúta-
firði eftir að hafa rekið þar vinsælar
skólabúðir í tvo áratugi.
Karl og Halldóra hafa nú ásamt
fleirum gert samning við Dalabyggð
um kaupleigu á byggingum gamla
skólans á Laugum í Sælingsdal.
Neyti þau forkaupsréttar að tveim-
ur árum loknum eignast þau allar
byggingarnar og land þar í kring
fyrir samtals 270 milljónir króna.
Karl segir að þau Halldóra eigi í
viðræðum við Húnaþing vestra um
uppgjör vegna Reykja.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í
janúar á þessu ári sögðu hjónin það
hafa komið þeim í opna skjöldu að
ekki ætti að framlengja samstarfið
við þau heldur fara í viðræður við
UMFÍ um rekstur skólabúða á
Reykjum frá og með í haust.
„Þetta kemur sér eins illa fyrir
okkur og frekast getur verið,“ sagði
Karl þá.
Samkvæmt svari frá UMFÍ er búist
við að gerð samkomulags um Reyki
ljúki á næstu dögum
Aðspurður hvort ætlunin sé að
reka skólabúðir á Laugum líkt og
gert hafi verið á Reykjum bendir
hann á að þar sé þegar rekið hótel
að sumarlagi. Áformin snúi að því að
byggja upp frekari ferðaþjónustu. Þó
sé ekki útilokað að skólabúðir verði
á Laugum á veturna.
„Við eigum eftir að skoða þetta
allt betur,“ segir Karl. Þau muni fá
aðgang að staðnum í október og
eignirnar síðan afhentar um ára-
mótin.
Mannvirkin sem tekin verða á
kaupleigu eru hótel. skólahús, þrjú
einbýlishús, íþróttahús, sundlaug og
tjaldstæði með þjónustuhúsi. „Stað-
urinn er mjög spennandi og hér eru
alls kyns möguleikar,“ segir Karl.
Auk mannvirkjanna fylgir með
13,1 hektari lands og allt lausafé í
húsunum að undanskildum lista-
verkum úr eigu Dalabyggðar.
Skúlptúr eftir Ásmund Sveinsson
er sérstaklega nefndur í kaupsamn-
ingnum og kveðið á um að hann sé
í eigu sveitarfélagsins en verði ekki
fjarlægður strax.
Að sögn Karls fer hann fyrir
ónefndu félagi þeirra Halldóru og
fleiri aðila. „Þetta er of stór biti fyrir
bara okkur tvö,“ útskýrir hann. n
Hjónin úr skólabúðum í Hrútafirði í
ferðaþjónustu á Laugum í Sælingsdal
Stór sundlaug og pottar eru á Laugum í Sælingsdal enda nægur jarðhiti þar á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
Hjónin Karl B. Örvarsson og Halldóra
Árnadóttir. MYND/AÐSEND
gar@frettabladid.is
FJALLGÖNGUR Vinsældir fjallsins K2
fara ört vaxandi meðal fjallgöngu-
manna. Áður beindu þeir f lestir
sjónum sínum að Everest að sögn
spænska blaðsins El País en nú hefur
orðið breyting á.
Er rakið í El País að fram til
febrúar í fyrra hefði Everest verið
klifið 10.658 sinnum en K2 aðeins
377 sinnum. Í sumar hafi fjalla-
garpar nánast staðið í röð við hinn
alræmda Flöskuháls í K2 til að kom-
ast upp þetta næsthæsta fjall jarðar
með sína 8.611 metra en síður en
svo minni áskorun en Everest sem
er 8.848 metrar. Þann 22. júlí síðast-
liðinn náðu 145 manns á topp K2 á
einum og sama deginum.
Miklar hættur af ís- og snjóskr-
iðum steðja að fólki í Flöskuháls-
inum og það er því afleitur staður
fyrir mannsöfnuð. n
Nánast öngþveiti
í Flöskuhálsi K2
Fjallgöngukona við K2 árið 2017.
thorgrimur@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Fyrsta kornflutningaskipið
sigldi úr höfn frá Odesa í gærmorgun
eftir að Rússar og Úkraínumenn
gerðu með sér samkomulag um
öruggar siglingar með hveiti og korn-
meti um Svartahaf. Búist er við því
að flutningaskipið M/V Razoni komi
til Bosporussunds í Tyrklandi í dag.
Vonir standa til þess að samkomu-
lagið muni létta á verðbólgu og mat-
vælaskorti í löndum sem reiða sig
á innflutt korn. Innrás Rússa hefur
stuðlað að alþjóðlegri matvæla-
kreppu vegna truflana á kornút-
flutningi bæði frá Úkraínu og Rúss-
landi og hefur valdið áhyggjum af
mögulegum hungursneyðum í lönd-
um sem talin eru í áhættuhópum.
Samningurinn var gerður þann 22.
júlí síðastliðinn en efasemdir komu
fljótt fram um framkvæmd hans
þegar Rússar gerðu árás á Odesa
nánast um leið og hann hafði verið
undirritaður. Verði samningnum
framfylgt þykir það framfaraspor í
því að sporna við afleiðingum stríðs-
ins í Úkraínu á heimsbyggðina.
António Guterres, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, sagði skipið bera
milljónum fólks von og kallaði brott-
för þess „gríðarmikið sameiginlegt
afrek.“ n
Fyrsti kornfarmurinn lagður af stað frá Úkraínu
Kaupskipið Razoni á leið frá Odesa með farm af korni innanborðs.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
6 Fréttir 2. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ