Skessuhorn


Skessuhorn - 21.07.2021, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 21.07.2021, Blaðsíða 9
MiðviKudAgur 21. Júlí 2021 9 Keppnisgreinar Landsmóts UMFÍ 50+ eru fjölbreyttar og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi Boccia - Bridds - Fjallahlaup - Frjálsar íþróttir - Golf - Gröfufimi - Göngufótbolti - Götuhlaup - Hestaíþróttir Körfubolti - Pílukast - Pútt - Pönnukökubakstur - Ringó - Skák - Staurakast - Stígvélakast - Sund Sjáumst kát og hress! Stykkishólmsbær Hafnargötu 3 340 Stykkishólmur Sími: 433-8100 netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is KT.: 620269-7009 SK ES SU H O R N 2 02 1 Auglýsing um skipulagsbreytingu á deiliskipulagi við Nónvík Stykkishólmi Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti þann 24. júní 2021 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Nónvík við Hjallatanga 48 Stykkishólmi. Tillagan er auglýst samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í megin dráttum að lóð Hjallatangi 48 er stækkuð í suð – austur átt að hesthúsahverfi. Byggingarreitur er stækkaður í sömu átt. Mörk deiliskipulagsins færast að hluta til að mörkum deiliskipulagsins fyrir hesthúsahverfið. Stígur á því svæði sem lóðarstækkun nær yfir fellur út og tillaga að nýjum göngustíg settur inn. Einnig er gert ráð fyrir gestastæðum í götu ásamt snúningsstæði. Tillagan verður til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa og á heimasíðu Stykkishólmsbæjar, www. stykkisholmur.is, frá og með 21. júlí til og með 1. september 2021. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við deiliskipulagsbreytinguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 1. september 2021, til skipulagsfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið skipulag@stykkisholmur.is. Skipulagsfulltrúi Stykkishólmsbæjar. vestlenska hljómsveitin grasasn- ar lauk nýverið upptökum á nýrri plötu, sem heitir Prine, og hefur að geyma lög bandaríska lagasmiðsins og flytjandans John Prine. Meðlim- ir grasasna tóku fyrir löngu ástfóstri við John Prine. En vegur hans sem lagasmiðs og flytjanda og áhrifa- valds í bandarískri tónlist óx gríðar- lega mikið hin síðustu ár. upptökur á nýju plötunni stóðu yfir í nokkur ár og reynt var að vanda til verka auk þess sem metnaður og ástríða fyrir verkefninu voru í hávegum. grasasnar vinnur að metnaði að því að skapa sér sérstöðu og það eru ekki margir slíkir tónlistarhópar sem hafa haldið jafn lengi út. Hljómsveitina skipa bræðurnir Sigurþór Kristjánsson (trommur og söngur) og Halldór Hólm Kristjánsson (bassi, söngur), Steinar Berg (söngur, kassagítar) og Sigurður Bachmann, (raf- og kassagítar). Til að fagna væntanlegri útgáfu plötunnar á síðasta ári höfðu grasasnar tryggt sér miða á tónleika John Prine sem fara áttu fram í royal Festival Hall í london 25. febrúar árið 2020. voru hljómsveitarmeðlimir ferðbúnir að leggja af stað út á flugvöll þegar tónleikunum var aflýst. Prine hafði nokkru áður dottið á sviðinu og slasast á mjöðm. Tónlistarmaðurinn var þá fluttur á sjúkrahús í heimaborg sinni Nashville, smitaðist þar af Covid- 19 og lést 7. apríl sama ár. Þannig enduðu tónleikamiðarnir ónotaðir, en rammaðir upp á vegg. vegna langs framleiðslutíma vínyl platna kemur íslensk útgáfa plötunnar ekki formlega út í föstu formi fyrr en í nóvember á þessu ári. lag af plötunni kom hins vegar út í þessari viku á Spotify sem smáskífa, bæði í enskri og íslenskri útgáfu; Spanish Pipedream – Sunnlenskir draumórar. Einnig kom þar út EP, sem inniheldur þrjú lög á ensku og íslensku sem ekki verða á plötunni. Þá er nú farið í loftið myndband þar sem grasasnar flytja Sunnlenska draumóra. mm Grasasnar. F.v. Sigurþór, Sigurður, Halldór Hólm og Steinar Berg. Grasasnar gefa út plötu tileinkaða John Prine

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.