Skessuhorn - 21.07.2021, Síða 9
MiðviKudAgur 21. Júlí 2021 9
Keppnisgreinar Landsmóts UMFÍ 50+ eru fjölbreyttar
og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi
Boccia - Bridds - Fjallahlaup - Frjálsar íþróttir - Golf - Gröfufimi - Göngufótbolti - Götuhlaup - Hestaíþróttir
Körfubolti - Pílukast - Pútt - Pönnukökubakstur - Ringó - Skák - Staurakast - Stígvélakast - Sund
Sjáumst kát og hress!
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3
340 Stykkishólmur
Sími: 433-8100
netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is
KT.: 620269-7009
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Auglýsing um skipulagsbreytingu
á deiliskipulagi við Nónvík
Stykkishólmi
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti þann 24. júní 2021
að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Nónvík við
Hjallatanga 48 Stykkishólmi. Tillagan er auglýst samkvæmt
1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í megin dráttum að lóð Hjallatangi 48 er
stækkuð í suð – austur átt að hesthúsahverfi. Byggingarreitur er
stækkaður í sömu átt. Mörk deiliskipulagsins færast að hluta til að
mörkum deiliskipulagsins fyrir hesthúsahverfið. Stígur á því svæði
sem lóðarstækkun nær yfir fellur út og tillaga að nýjum
göngustíg settur inn. Einnig er gert ráð fyrir gestastæðum í götu
ásamt snúningsstæði.
Tillagan verður til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa og á
heimasíðu Stykkishólmsbæjar, www. stykkisholmur.is, frá og með
21. júlí til og með 1. september 2021.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til
að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við deiliskipulagsbreytinguna
þarf að skila skriflega eigi síðar en 1. september 2021, til
skipulagsfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340
Stykkishólmi eða á netfangið skipulag@stykkisholmur.is.
Skipulagsfulltrúi Stykkishólmsbæjar.
vestlenska hljómsveitin grasasn-
ar lauk nýverið upptökum á nýrri
plötu, sem heitir Prine, og hefur að
geyma lög bandaríska lagasmiðsins
og flytjandans John Prine. Meðlim-
ir grasasna tóku fyrir löngu ástfóstri
við John Prine. En vegur hans sem
lagasmiðs og flytjanda og áhrifa-
valds í bandarískri tónlist óx gríðar-
lega mikið hin síðustu ár. upptökur
á nýju plötunni stóðu yfir í nokkur
ár og reynt var að vanda til verka
auk þess sem metnaður og ástríða
fyrir verkefninu voru í hávegum.
grasasnar vinnur að metnaði
að því að skapa sér sérstöðu
og það eru ekki margir slíkir
tónlistarhópar sem hafa haldið
jafn lengi út. Hljómsveitina skipa
bræðurnir Sigurþór Kristjánsson
(trommur og söngur) og Halldór
Hólm Kristjánsson (bassi, söngur),
Steinar Berg (söngur, kassagítar)
og Sigurður Bachmann, (raf-
og kassagítar). Til að fagna
væntanlegri útgáfu plötunnar á
síðasta ári höfðu grasasnar tryggt
sér miða á tónleika John Prine
sem fara áttu fram í royal Festival
Hall í london 25. febrúar árið
2020. voru hljómsveitarmeðlimir
ferðbúnir að leggja af stað út á
flugvöll þegar tónleikunum var
aflýst. Prine hafði nokkru áður
dottið á sviðinu og slasast á mjöðm.
Tónlistarmaðurinn var þá fluttur
á sjúkrahús í heimaborg sinni
Nashville, smitaðist þar af Covid-
19 og lést 7. apríl sama ár. Þannig
enduðu tónleikamiðarnir ónotaðir,
en rammaðir upp á vegg.
vegna langs framleiðslutíma
vínyl platna kemur íslensk útgáfa
plötunnar ekki formlega út í föstu
formi fyrr en í nóvember á þessu ári.
lag af plötunni kom hins vegar út í
þessari viku á Spotify sem smáskífa,
bæði í enskri og íslenskri útgáfu;
Spanish Pipedream – Sunnlenskir
draumórar. Einnig kom þar út EP,
sem inniheldur þrjú lög á ensku og
íslensku sem ekki verða á plötunni.
Þá er nú farið í loftið myndband þar
sem grasasnar flytja Sunnlenska
draumóra. mm
Grasasnar. F.v. Sigurþór, Sigurður, Halldór Hólm og Steinar Berg.
Grasasnar gefa út plötu
tileinkaða John Prine