Skessuhorn


Skessuhorn - 21.07.2021, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 21.07.2021, Blaðsíða 11
MiðviKudAgur 21. Júlí 2021 11 SÍGILD TÓNLIST Í SÖGULEGU UMHVERFI DAGSKRÁIN ÖLL Á REYKHOLTSHATID.IS MIÐASALA Á TIX.IS ARÍUR OG MOZART FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ KL. 20 CLARA OG GLAZUNOV LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ KL. 20 SÖNGLÖG OG SCHUBERT LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ KL. 16 INGIBJÖRG ÝR OG BRAHMS SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ KL. 16 Auður Hafsteinsdóttir Bjarni Frímann Bjarnason Bryndís Halla Gylfadóttir Gunnhildur Daðadóttir Herdís Anna Jónasdóttir Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir Sigurbjörn Bernharðsson Sigurður Bjarki Gunnarsson Steinunn Birna Ragnarsdóttir Þórunn Ósk Marínósdóttir Fyrirlestur í Snorrastofu: Þorsteinn frá Hamri Ástráður Eysteinsson prófessor í bókmenntafræði Hátíðarmessa í Reykholtskirkju sunnudag kl. 14 reykholtshátíð, sem fram fer um helgina 23. – 25. júlí, fagnar 25 ára afmæli sínu í ár en hún var fyrst haldin í reykholti árið 1997 og er ein af elstu tónlistarhátíð- um landsins. Hátíðin hefur allt- af verið haldin í kringum vígslu- afmæli reykholtskirkju sem ber upp á síðasta sunnudag júlímán- aðar. Á hátíðinni í ár verða fernir tónleikar, fjölbreytt og skemmti- leg efnisskrá og frábærir músík- antar, bæði tíðir gestir á reyk- holtshátíð sem hafa sumir hverjir fylgt hátíðinni frá upphafi og aðr- ir sem eru að koma í fyrsta sinn fram á hátíðinni í ár. í tilefni af- mælisársins verður frumflutt nýtt verk eftir ingibjörgu Ýr við ljóð Þorsteins frá Hamri sem var ætt- aður úr Borgarfirði. Yfirskrift há- tíðarinnar, sígild tónlist í sögu- legu umhverfi, lýsir vel inntaki hennar og áherslum. Sveitasælan í reykholti og fagur hljómburð- ur reykholtskirkju veitir bæði áheyrendum og tónlistarmönn- um tækifæri til að upplifa hágæða tónlistarflutning á einum sögu- frægasta stað landsins. Á opnunartónleikum reyk- holtshátíðar sem hefjast klukk- an 14 á föstudeginum mun Her- dís Anna Jónasdóttir flytja þekkt- ar óperuaríur ásamt Bjarna Frí- manni Bjarnasyni píanóleikara. Þær reykholtsstöllur Auður Haf- steinsdóttir fiðluleikari og Bryn- dís Halla gylfadóttir sellóleik- ari munu flytja strengjadúó Jóns Nordal, sem fagnar 95 ára afmæli sínu í ár. Einnig mun hljóma hinn ástsæli strengjakvintett Mozarts í g-moll með Sigurbirni Bernharðs- syni og gunnhildi daðadóttur á fiðlur en þau eru að koma í fyrsta sinn fram á reykholtshátíð. list- rænir stjórnendur hátíðarinnar, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Sigurður Bjarki gunnarsson taka einnig þátt í flutningnum auk Bjarna Frímanns sem tekur sér ví- óluna í hönd. Á laugardeginum verða tvennir tónleikar: Klukkan 14 hefjast tón- leikar sem heita Sönglög og Schu- bert þar sem Herdís Anna ásamt Bjarna Frímanni syngur lög aðal- lega eftir íslenska höfunda og eft- ir hlé verður fluttur strengjakvin- tett í C-dúr eftir Franz Schubert. Klukkan 20 um kvöldið verða tónleikar sem nefnast Clara og glazunov þar sem flutt verður strengjatríó í B-dúr eftir Schu- bert, sónata fyrir tvær fiðlur eftir lecclair, dúett fyrir víólu og selló eftir Beethoven og þrjú sönglög fyrir sópran og strengjakvartett eftir Clöru Schumann. Eftir hlé verður svo fluttur stengjakvin- tett í A-dúr eftir Alexander glaz- unov. glazunov var eitt fremsta og virtasta tónskáld rússlands um aldamótin 1900 og naut mikilla alþjóðlegra vinsælda. Kvintett- inn eftir glazunov er ægifagur og mætti tvímælalaust telja hann einn af földum fjársjóðum kamm- erbókmenntanna. Mögulega hef- ur hann aldrei verið fluttur á ís- landi áður. lokatónleikar reykholtshá- tíðar verða svo á sunnudeginum þar sem fluttur verður píanókvar- tett í g-moll eftir Mozart og verk- ið draumljóð eftir ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur. Eftir hlé verð- ur á dagskrá strengjasextett í B- dúr eftir Johannes Brahms. Á tón- leikunum á sunnudeginum verð- ur Steinunn Birna ragnarsdóttir sérstakur gestur en hún var upp- hafskona þessarar tónleikahátíðar í reykholti í tengslum við vígslu- afmæli kirkjunnar. Einnig má nefna að á laugardeg- inum klukkan 13 verður Ástráð- ur Eysteinsson, prófessor í bók- menntafræði, með fyrirlestur um Þorstein frá Hamri og á sunnu- deginum verður hátíðarmessa í reykholtskirkju klukkan 14. vaks Ýmislegt verður á dagskrá fyrir unnendur klassískrar tónlistar í Reykholti um helgina. Ljósm. af fésbókarsíðu Reykholtshátíðar. Tónlistarhátíð í Reykholti um helgina

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.