Skessuhorn - 21.07.2021, Síða 11
MiðviKudAgur 21. Júlí 2021 11
SÍGILD TÓNLIST Í SÖGULEGU UMHVERFI
DAGSKRÁIN ÖLL Á
REYKHOLTSHATID.IS
MIÐASALA Á TIX.IS
ARÍUR OG MOZART
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ KL. 20
CLARA OG GLAZUNOV
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ KL. 20
SÖNGLÖG OG SCHUBERT
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ KL. 16
INGIBJÖRG ÝR OG BRAHMS
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ KL. 16
Auður Hafsteinsdóttir
Bjarni Frímann Bjarnason
Bryndís Halla Gylfadóttir
Gunnhildur Daðadóttir
Herdís Anna Jónasdóttir
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Sigurbjörn Bernharðsson
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Þórunn Ósk Marínósdóttir
Fyrirlestur í Snorrastofu:
Þorsteinn frá Hamri
Ástráður Eysteinsson
prófessor í bókmenntafræði
Hátíðarmessa
í Reykholtskirkju
sunnudag kl. 14
reykholtshátíð, sem fram fer um
helgina 23. – 25. júlí, fagnar 25
ára afmæli sínu í ár en hún var
fyrst haldin í reykholti árið 1997
og er ein af elstu tónlistarhátíð-
um landsins. Hátíðin hefur allt-
af verið haldin í kringum vígslu-
afmæli reykholtskirkju sem ber
upp á síðasta sunnudag júlímán-
aðar. Á hátíðinni í ár verða fernir
tónleikar, fjölbreytt og skemmti-
leg efnisskrá og frábærir músík-
antar, bæði tíðir gestir á reyk-
holtshátíð sem hafa sumir hverjir
fylgt hátíðinni frá upphafi og aðr-
ir sem eru að koma í fyrsta sinn
fram á hátíðinni í ár. í tilefni af-
mælisársins verður frumflutt nýtt
verk eftir ingibjörgu Ýr við ljóð
Þorsteins frá Hamri sem var ætt-
aður úr Borgarfirði. Yfirskrift há-
tíðarinnar, sígild tónlist í sögu-
legu umhverfi, lýsir vel inntaki
hennar og áherslum. Sveitasælan
í reykholti og fagur hljómburð-
ur reykholtskirkju veitir bæði
áheyrendum og tónlistarmönn-
um tækifæri til að upplifa hágæða
tónlistarflutning á einum sögu-
frægasta stað landsins.
Á opnunartónleikum reyk-
holtshátíðar sem hefjast klukk-
an 14 á föstudeginum mun Her-
dís Anna Jónasdóttir flytja þekkt-
ar óperuaríur ásamt Bjarna Frí-
manni Bjarnasyni píanóleikara.
Þær reykholtsstöllur Auður Haf-
steinsdóttir fiðluleikari og Bryn-
dís Halla gylfadóttir sellóleik-
ari munu flytja strengjadúó Jóns
Nordal, sem fagnar 95 ára afmæli
sínu í ár. Einnig mun hljóma hinn
ástsæli strengjakvintett Mozarts í
g-moll með Sigurbirni Bernharðs-
syni og gunnhildi daðadóttur á
fiðlur en þau eru að koma í fyrsta
sinn fram á reykholtshátíð. list-
rænir stjórnendur hátíðarinnar,
Þórunn Ósk Marinósdóttir og
Sigurður Bjarki gunnarsson taka
einnig þátt í flutningnum auk
Bjarna Frímanns sem tekur sér ví-
óluna í hönd.
Á laugardeginum verða tvennir
tónleikar: Klukkan 14 hefjast tón-
leikar sem heita Sönglög og Schu-
bert þar sem Herdís Anna ásamt
Bjarna Frímanni syngur lög aðal-
lega eftir íslenska höfunda og eft-
ir hlé verður fluttur strengjakvin-
tett í C-dúr eftir Franz Schubert.
Klukkan 20 um kvöldið verða
tónleikar sem nefnast Clara og
glazunov þar sem flutt verður
strengjatríó í B-dúr eftir Schu-
bert, sónata fyrir tvær fiðlur eftir
lecclair, dúett fyrir víólu og selló
eftir Beethoven og þrjú sönglög
fyrir sópran og strengjakvartett
eftir Clöru Schumann. Eftir hlé
verður svo fluttur stengjakvin-
tett í A-dúr eftir Alexander glaz-
unov. glazunov var eitt fremsta
og virtasta tónskáld rússlands um
aldamótin 1900 og naut mikilla
alþjóðlegra vinsælda. Kvintett-
inn eftir glazunov er ægifagur
og mætti tvímælalaust telja hann
einn af földum fjársjóðum kamm-
erbókmenntanna. Mögulega hef-
ur hann aldrei verið fluttur á ís-
landi áður.
lokatónleikar reykholtshá-
tíðar verða svo á sunnudeginum
þar sem fluttur verður píanókvar-
tett í g-moll eftir Mozart og verk-
ið draumljóð eftir ingibjörgu Ýr
Skarphéðinsdóttur. Eftir hlé verð-
ur á dagskrá strengjasextett í B-
dúr eftir Johannes Brahms. Á tón-
leikunum á sunnudeginum verð-
ur Steinunn Birna ragnarsdóttir
sérstakur gestur en hún var upp-
hafskona þessarar tónleikahátíðar
í reykholti í tengslum við vígslu-
afmæli kirkjunnar.
Einnig má nefna að á laugardeg-
inum klukkan 13 verður Ástráð-
ur Eysteinsson, prófessor í bók-
menntafræði, með fyrirlestur um
Þorstein frá Hamri og á sunnu-
deginum verður hátíðarmessa í
reykholtskirkju klukkan 14.
vaks
Ýmislegt verður á dagskrá fyrir unnendur klassískrar tónlistar í Reykholti um helgina. Ljósm. af fésbókarsíðu Reykholtshátíðar.
Tónlistarhátíð í Reykholti um helgina