Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2021, Qupperneq 12

Skessuhorn - 06.10.2021, Qupperneq 12
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 202112 tilnefningar til Íslensku mennta- verðlaunanna voru kynntar í gær, á alþjóðlegum degi kennara. Verð- launin eru veitt til að auka veg menntaumbótastarfs og vekja at- hygli á vönduðu skóla- og frístund- astarfi með börnum og ungling- um. einn kennari af Vesturlandi fékk tilnefningu í flokknum; fram- úrskarandi kennari. Það er Heið- rún Hámundardóttir, kennari við Brekkubæjarskóla og tónlistar- skólann á akranesi. Hún er ein af fimm kennurum sem fá tilnefningu að þessu sinni og er hún tilnefnd fyrir metnaðarfulla og árangursríka tónmennta- og tónlistarkennslu. Úr umsögn sem fylgdi tilnefningu Heiðrúnar segir: „Heiðrún er tón- menntakennari sem fer sínar eigin leiðir í kennslu og alltaf með áhuga nemenda að leiðarljósi. Hún hefur einstakt lag á að ná til allra nem- enda og hefur þann eiginleika að ná góðum tengslum við fólk á öllum aldri. allir nemendur fá að blómstra á eigin forsendum og fá tækifæri til að prófa sig áfram hvort sem það er með því að spila á hljóðfæri, syngja eða sjá um tæknimál á öllum við- burðum skólans.“ Verðlaunin sjálf verða veitt mið- vikudaginn 10. nóvember næst- komandi. arg Stofnfundur fyrir aDHD Vestur- land verður næstkomandi mánu- dag, 11. október en um er að ræða útibú frá aDHD samtökunum. en þess ber að geta að um þrjú þús- und einstaklingar, bæði fullorðn- ir og börn, eru nú á biðlista eftir greiningu. um helmingur hjá hinu opinbera og helmingur hjá einka- stofum. Stofnfundurinn fer fram í Grunnskólanum í Borgarnesi og opnar húsið kl. 17:30. tilgangur með stofnun aDHD Vesturlands er að færa samtalið um aDHD í heimabyggð og mynda tengslanet þeirra sem eru með aDHD og að- standenda. „Þó uppeldisleg heilræði Guttav- ísna séu sem betur fer flest farin í glatkistu minninganna má fullyrða að börn með aDHD lendi oftar en önnur börn í erfiðum samskiptum við nánustu aðstandendur og um- hverfi sitt almennt - ekki síst vegna hvatvísinnar og vandkvæða við að uppfylla hefðbundnar kröfur um aga og einbeitingu. Skilningur á aDHD góð sam- skipti byggð á þeirri þekkingu geta verið lykillinn að uppbyggjandi uppeldi og heilbrigðu fjölskyldulífi. Á fundinum mun Sólveig Ágríms- dóttir sálfræðingur fjalla um jákvæð samskipti foreldra og barna og áhrif mismunandi uppeldisaðferða eða uppeldisstíla á sjálfsmynd barna og þroska,“ segir í tilkynningu frá aDHD samtökunum. Sólveig hefur verið brautryðjandi í umfjöllun um aDHD á Íslandi og gaf hún út bókina Ferðalag í flug- hálku, sem fjallar um aDHD og unglinga. auk þess hefur Sólveig um árabil starfað á BuGL, Barna- og unglingageðdeild. arg Bygging Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi gengur vel en fram- kvæmdir hófust sumarið 2020 og er byggingin nú fokheld og innivinna komin af stað. Það er verktakafyrir- tækið Húsheild sem sér um fram- kvæmdirnar. að sögn ólafs Ragn- arssonar, annars eiganda Húsheild- ar, ganga framkvæmdir mjög vel. „Staðan er bara býsna góð og það er góður gangur á verkinu. Skila- tími er áætlaður um miðjan júní á næsta ári og ég sé ekki annað en að það ætti alveg að standast,“ seg- ir ólafur í samtali við Skessuhorn. ólafur segir Bygginguna nokkuð flókna en húsið er 710 fermetrar að stærð og í laginu eins og skip. „Það er ekki á hverjum degi sem maður er með svona verk en þetta er vel útbúið og undirbúningur góður hjá Framkvæmdasýslu ríkisins,“ segir ólafur. Byggingin mun hýsa þjón- ustumiðstöð þjóðgarðsins, sýning- ar- og kennsluaðstöðu og starfs- mannarými. um er að ræða tvær byggingar sem tengjast með mið- rými. Í annarri byggingunni verður aðstaða fyrir daglegan rekstur þjóð- garðsins og í hinni verður það sem snýr að kennslu, fræðum og upplýs- ingastarfi á vegum þjóðgarðsins. arg/ Ljósm. Ólafur Ragnarsson Frá fundinum í gærkvöldi. Ljósm. Reykhólahreppur Íbúafundur um sameiningarvalkosti í Reykhólahreppi Á mánudaginn var haldinn í Reyk- hólaskóla íbúafundur um grein- ingu sameiningarvalkosta Reyk- hólahrepps. Róbert Ragnarsson og Gunnar Úlfarsson frá RR Ráðgjöf fóru yfir ferli sameiningar sveit- arfélaga og þá sameiningarmögu- leika sem nefndir hafa verið, ef Reykhólahreppur kannaði vilja til sameiningar við önnur sveitarfé- lög. Gestur fundarins var Gauti Jóhannesson forseti bæjarstjórn- ar múlaþings en það varð til við sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshér- aðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Hans skilaboð á fundinum voru að engar patentlausnir væru til en menn ættu að leita möguleika og ræða lausnir frekar en að horfa á það sem mögulega væri að. Íbúar Reykhólahrepps gátu kom- ið sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum samráðsforrit en frestur- inn til þess rann út í gærkvöldi. vaks Stofnfundur ADHD Vesturlands Frá frumsýningu á leiksýningunni Leitinni í Brekkubæjarskóla í febrúar 2019. En leikritið samdi Heiðrún í samstarfi við Samúel Þorsteinsson. Ljósm. úr safni Heiðrún tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna Heiðrún Hámundardóttir hefur verið tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi kennara. Ljósm. Brekkubæjarskóli Unnið að bygg- ingu Þjóðgarðs- miðstöðvar á Hellissandi. Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi orðin fokheld Bygging Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi gengur vel.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.